Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Blaðsíða 1
Inngangsorð.
-Ejins og við ráðgjörðum í auglýsingu okkar, dags.
27. júlíísumar, er prentuð var í ,JJjóðólfi‘ og ,ísafold‘,
byrjum við nú útgáfu kirkjulegs tímarits, og sendum
af stað hið fyrsta hepti þess. Viljum við, þegar það
nú byrjar göngu sína, skýra með fám orðum frá til-
gangi þess, stefnu og ritstjórn, eins og við höfum
hugsað okkur það.
Eins og við tókum fram í áður greindri auglýs-
ingu, þótti okkur nauðsyn til bera, að til væri það rit
hjer á landi, sem rita mætti í um andleg og kirkjuleg
málefni, bæði vísindalega guðfræði, stjórn á kirkjuleg-
um málefnum og kirkjulegt líf. Virtist okkur því
meiri þörf á þessu, sem við ætlum, að fæstir prestar
hjer á landi hafi nokkurt útlent kirkjulegt tímarit í
höndum. Viljum við í ritinu leitast við að glæða og
viðhalda vísindalegu lífi og áhuga hjá andlegrar stjett-
ar mönnum, meðal annars með því, að þeim gefist
kostur á, að láta í ljósi skoðanir sínar um guðfræðis-
efni í ritinu; og að hinu leytinu ætlum við ritinu að
glæða kristilegt trúarlíf hjá lærðum og leikum, með
vekjandi greinum um andleg efni. Viljum við þess
vegna að tímaritið hafi inni að halda ritgjörðir: um
ýmsar greinir guðfræðinnar; um bækur þær, sem koma
Kirkjutíðindi fyrir ísland. T. 1