Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Side 53
53
hin nú verandi Staðarbakka sókn, sem sameinast
við Melstaðar sókn, en Staðarbakkakirkja skal leggj-
ast niður. Kirkjujarðir, ítök, hlunnindi og innstæða
Staðarbakka-prestakalls, nema jörðin Húkur, leggst
til þessa brauðs. Frá þessu brauði leggjast 500 kr.
til Staðar í Hrútafirði, og 300 kr. til Tjarnar á
Vatnsnesi.
c. Tjörn á Vatnsnesi: Tjarnar og Vesturhópshóla
sóknir. jpessu brauði leggjast 300 kr. frá Melstað.
d. Breiðabólstaður í Vesturhópi: Breiðabólstaðar og
Víðidalstungu sóknir.
e. f>ingeyrar: þnngeyra og Undirfells sóknir með
hinni núverandi Grímstungu sókn. Grímstungukirkja
skal leggjast niður. Frá þessu brauði leggjast 500
kr. til Hofs á Skagaströnd.
f. Hjaltabakki: Hjaltabakka og Holtastaða sókn.
g. Auðkúla : Auðkúlu og Svínavatns sóknir.
h. Bergstaðir : Bergstaða og Bólstaðarhlíðar sóknir ;
hin núverandi Blöndudalshóla sókn skal sameinast
við Bergstaða sókn, og Blöndudalshólakirkja leggj-
ast niður. Jarðir Blöndudalshóla-prestakalls leggj-
ast til Bergstaða.
i. Höskuldsstaðir: Höskuldsstaða sókn.
k. Hof: Hofs og Spákonutells sóknir. þ>essu brauði
leggjast 500 kr. frá jþingeyrabrauði.
17. Skagafjarðar-prófastsdæmi.
a. Hvammur: Hvamms og Ketu sóknir. f>essu brauði
skulu leggjast 500 kr. frá Glaumbæ.
b. Rípur: Rípur, Fagraness og Sjávarborgar sóknir.
c. Glaumbær: Glaumbæjar, Víðimýrar og Reyni-
staðar sóknir. Meðan brauðið heldur klausturgjald-
inu af Reynistað, leggjastfrá þvi 500 kr. tilHvamms
prestakalls.
d. Mælifell: Mælifells og Reykja sóknir.
e. Goðdalir; Goðdala og Ábæjar sóknir.