Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Blaðsíða 100
(Minni hlutinn).
Frumvarp
til laga um, að söfnuðirnir taki að sjer umsjón og fjdr-
hald kirkna.
1. gr.
fegar meiri hluti sóknarmanna, sem gjalda til
kirkju í einhverri kirkjusókn, óska að söfnuðurinn taki
að sjer fjárhald og umsjón kirkjunnar, og eigandi eð-
ur umráðamaður hennar er fús til að láta þetta af hendi,
skal kirkjan afhent söfnuðinum, að fengnu samþykki
stiptsyfirvaldanna.
2. gr.
Hver söfnuður á heimting á að fá kirkju sína til
umsjónar, þegar kirkjan er eigi einstakra manna eign.
í>ó má eigi svipta presta þá, er hafa kirkjur að ljeni,
þá er lög þessi öðlast gildi, kirkju-fjárhaldinu að óvilja
þeirra, nema stiptsyfirvöldin álíti prestinn óhæfan til
að sjá um fje kirkjunnar.
3- gr.
Nú vill eigandi eða forráðamaður einhverrar kirkju
afhenda fjárhald hennar og umsjón söfnuðinum, og
er kirkjuráðanda rjett, að bera það mál upp við hjer-
aðsprófastinn. Skal þá prófastur sjá um, að haldinn
verði almennur safnaðarfundur í kirkjusókninni, og
málið borið upp fyrir söfnuðinum. Verði meiri hluti
atkvæða sóknarmanna, þeirra er til kirkju gjalda, móti
því, að söfnuðurinn taki við fjemálum kirkjunnar, er
það mál þar með fallið að sinni.
4- gr.
fegar kirkja er afhent söfnuði, skal prófastur
með tveim óvilhöllum úttektarmönnum, er valdsmaður
nefnir, gjöra nákvæma úttekt á kirkjunni, áhöldum
hennar og gripum. Skulu þeir meta sanngjarnt álag á
kirkjuna og það, sem henni fylgir, ef þeim virðist þess