Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Blaðsíða 93
93
um stjðrn safnaðarmála og skipun sóknarnefnda, og
fnmmarp til laga um að söfnuðirnir taki að sjer um-
sjón og fjárhald kirkna.
Hinir sömu nefndarmenn hafa og", einkum vegna
þess ágreinings, sem á sjer stað milli þeirra og meiri
hluta nefndarinnar, um niðurjöfnun og innheimtu sókn-
argjaldsins, samið sjerstakt frumvarp til laga um sókn-
argjald til prests.
Öll þessi frumvörp fylgja með þessu álitsskjali
nefndarinnar, samkvæmt ósk tjeðra nefndarmanna.
(Minni lilutinn).
Frunmarp
til laga um stjðrn safnaðarmála og skipun sóhiarnefnda.
x. gr.
í hverri kirkjusókn landsins skal sóknarprestur-
inn halda almennan safnaðarfund, að minnsta kosti einu
sinni á ári, til að ræða um kirkjuleg málefni safnaðar-
ins.
2. gr.
Safnaðarfundur skal ætíð haldinn í júnímánuði ár
hvert, og skal á þeim fundi kjósa þrjá menn í sóknar-
nefnd, til að veita sameiginlegum málum safnaðarins
forstöðu ásamt sóknarprestinum, á því fardagaári, er
þá fer í hönd.
3- gr.
Hver sóknarmaður, sem geldur til prests og kirkju,
hefir atkvæðisrjett á safnaðarfundi og kosningarrjett
og kjörgengi til sóknarnefndar.
4- gr
Hver sóknarmaður, sem kjörgengi hefir, er skyld-
ur til að vera í sóknarnefnd, að minnsta lcosti annað-
hvort ár, ef hann er til þess kosinn með meira hlut
atkvæða á safnaðarfundi.