Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Blaðsíða 46
una þar opt eins vel hag sínum eins og á hinum tekju-
meiri brauðum.
Viðvíkjandi kirknaskipuninni hafði nefndin sjer
þá grundvallarreglu hugfasta, að eigi bæri að fækka
kirkjum, nema þar sem það gæti skeð, án þess að af
því leiddu tilfinnanlegir erfiðleikar fyrir söfnuðina að
sækja kirkju. En að því leyti þetta ekki er til fyrir-
stöðu, álítur nefndin, að rjett sje að leggja kirkjur nið-
ur, þegar það jafnframt getur greitt fyrir samsteypu
brauða, og þannig stutt að því að bæta kjör presta-
stjettarinnar. þ>að er einnig í þessu tilliti takandi til
greina, að kirkjurnar, fyrir slíka sameiningu tveggja
sókna í eina, mundu verða betur efnum búnar, og
guðsþjónustan geta fram farið í veglegri húsum en nú
víða á sjer stað.
Samkvæmt þessum grundvallarreglum hefir nefnd-
in samið meðfylgjandi:
Frumv arp
til laga um skipun prestakalla og kirkna.
i. grein
Á landinu skulu vera þau prestaköll, er nú skal
greina:
i. Nor ður-Múla-pr ófastsdæ mi.
a. Skeggjastaðir: Skeggjastaða sókn. þ>essu brauði
leggjast 200 kr. frá Hofi í Vopnafirði.
b. Hof í Vopnafirði: Hofs sólcn. Frá þessu brauði leggj-
ast 200 kr. til Skeggjastaða, 200 kr. til Desjarmýr-
ar, og 200 kr. til Stöðvar í Stöðvarfirði.
c. Elofteigur: Hofteigs sókn.
d. Kirkjubær í Tungu: Kirkjubæjar sókn.
e. Hjaltastaður: Hjaltastaðar og Eyða sóknir.
f. Valþjófsstaður: Valþjófsstaðar sókn.
g. Ás í Fellum: Áss sókn.