Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Qupperneq 71
71
17- Skagafjarðar-prófastsdæmi.
Nefndin stingur upp á, að leggja niður Fagraness-
prestakall, og sameina það við Rípur-prestakall. Tekj-
ur hins fyrnefnda brauðs eru c. 600 kr., og hins síðar-
nefnda c. 420 kr. Enn fremur stingur nefndin upp á,
að sameina Glaumbæ og Reynistaðarldaustur, þannig,
að hið síðarnefnda brauð leggist niður sem sjerstakt
brauð. Sameining þessi virðist engum erfiðleikum
bundin, og af tekjum hins sameinaða brauðs, sem eru
c. 2430 kr., virðist mega leggja 500 kr. til fátækra
brauða, svo framarlega sem preststekjur þær af klaustr-
inu, sem greiddar eru úr landssjóði, haldast. Enn frem-
ur leggur nefndin það til, að Knappstaðir, sem er lít-
ið brauð, með tekjum að upphæð 280 kr., þegar tillag-
ið af Eriksens lcollektu (132 kr.) ekki er talið með, verði
sameinaðir við Barð í Fljótum, sem hefir í tekjur rúmar
1300 kr. Að vísu verða við þessa sameiningu 3 kirkj-
ur í Barðs-prestakalli, en að öðru leyti má eigi heita,
að brauðið verði erfiðara. Hið umgetna tillag, sem
Knappstaða brauð hefir haft af Eriksens kollektu, legg-
ur nefndin til, að verði lagt til Hofs, sem hefir í tekj-
ur 785 kr. 68 a., og þannig þarf uppbótar við. í þessu
prófastsdæmi eru enn tvö fátælc brauð, sem nefndin á-
lítur, að ekki geti komizt af án verulegrar uppbótar:
Hvammur í Laxárdal, með c. 520 kr., og Fell, með c.
570 kr. tekjum. Báðumþessum brauðum er heldur illa í
sveit komið, og leggur nefndin til, að hið fyrra verði bætt
upp með þeim 500 kr., sem stungið er upp á, að taka
frá Glaumbæ, og hið síðara með 400 kr. úr landssjóði.
Við umræðurnar um brauðaskipunina í prófastsdæminu
kom Viðvíkur-prestakall sjerstaklega til yfirvegunar í
nefndinni, og álítur hún þá skipun haganlega, sem nú
er, að Hofstaða sókn liggi til þessa prestakalls.
18. Eyjafjarðar-prófastsdæmi.
Hjer stingur nefndin upp á, að Stærra-Árskógs-