Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Blaðsíða 6
6
nákvæmlega, sem nauðsynlegt þótti, til að geta leið-
rjett tekju-upphæðir brauðanna á þann hátt, að þær
hvervetna væru ákveðnar eptir sömu eða sem líkust-
um grundvallarreglum, en á þessu voru allmikil mis-
smíði í mörgum skýrslum, eins og athugasemdir nefnd-
arinnar bjer á eptir munu sýna. þ>ar á móti sá nefnd-
in sjer ekki fært, að framkvæma reikningslega endur-
skoðun út í yztu æsar á öllum skýrslunum, og leið-
rjetta hvervetna þann skakka, sem af því leiðir, að
ekki hefir ávallt verið fylgt rjettum reglum um það,
hver verðlagsskrá heíir verið viðhöfð við útreikning
til peningaverðs á einstökum tekjugreinum; en eins
og þetta hefir sumstaðar verið leiðrjett af próföstunum,
og þá einnig verið tekið til greina í athugasemdum
nefndarinnar, þannig hefir nefndin fullvissað sig um,
að þessi skakki yfir höfuð er svo óverulegur, að leið-
rjetting hans hefði verið án áhrifa á tillögur nefndar-
innar um uppbót brauðanna.
Til þess að hafa greinilegt yfirlit yfir tekjur brauð-
anna, samdi nefndin skýrslur í töfiuformi yfir tekjur
allra brauða á landinu, eins og þær eru tilgreindar í
hinu nýja brauðamati, og fylgja skýrslur þessar á-
litsskjali þessu til nauðsynlegs samanburðar við þær
breytingar og leiðrjettingar, sem nefndin hefir leyft
sjer að gjöra við tekjumat brauðanna*.
Breytingar þessar og leiðrjettingar eru einkum
fólgnar í því, að’ reikningsvillur eru leiðrjettar, að' tekju-
liðir eru til færðir, sem sleppt hefir verið, og að arð-
urinn af prestssetrunum og hlunnindum þeirra hefir
verið hækkaður, þar sem nefndinni virtist auðsætt, að
hann væri oflágt metinn, bæði eptir sjerstaklegum
kunnugleika nefndarmanna í því efni, bendingum pró-
fastanna í athugasemdum þeirra við hinar einstöku
*) Skýrslum þessum verður að sleppa að sinni, rúmsins vegna.
Útgef.