Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1878, Blaðsíða 88
88
Af öllum jörðum, sem metnar eru til dýrleika,
hvort heldur eru bænda-eignir, eignir kirkna eða presta-
kalla, þjóðeignir, eignir fátækra eða stofnana, eða hverju
nafni, sem nefnast, skal því sá, er á jörðunni býr, eða
hefir hana til afnota, greiða kirkjutíund, 3/10 álnar af
hundraði hverju.
Undanþágur þær, sem einstakir menn hingað til
hafa notið, frá því að gjalda kirkjutíund af lausaíje,
skulu og hjer eptir af numdar.
2. gr.
Af öllum húsum skal greiða kirkjutíund, io aura
af hverjum ioo krónum í virðingarverði húsanna, hvort
sem þau eru einstakra manna eign, eða þjóðeign, ef
þau fylgja eigi jörð þeirri, er metin sje til dýrleika.
pó er kirkjan sjálf undanþegin gjaldi þessu.
3- gr.
Gjald þetta skal húsráðandi greiða, hvort sem
hann er eigandi eða leiguliði. Af opinberum bygg-
ingum, sem til almennrar notkunar eru hafðar, greiðir
eigandi gjaldið.
4- gr.
Gjald þetta skal greiða af virðingarverði húsanna.
Virðing húsanna skal fram fara eptir þeim reglum,
sem landshöfðingi setur.
5- gr.
Hver sá utansóknarmaður, sem stundar sjóróðra
á opnu skipi 6 vikur samfleytt eða lengur, skal greiða
til kirkju þeirrar sóknar, þar sem hann rær fyrst á
almanaksárinu, sætisfisk, hálfa alin. í fiski eða pening-
um. Sá, sem hefir greitt gjald þetta einu sinni á ár-
inu, þarf eigi að greiða það optar á því ári.