Fylkir - 01.01.1927, Síða 6
s
dugandi verkfræðingar stjórna, né meiri en % þess, sem hann hefur
orðið bæði í Reykjavík og hér á Akureyri (né neitt yfir 600—750 kr.
hvert kílówatt til jafnaðar). Peninga hagnaðurinn af því, yrði allt að
40 kr. á hvert nef á ári, auk hreinlætis og almennari heilsu, og það
þó færri læknar og færri lyfsalar væru.
Þakkimar, sem eg hef fengið fyrir það erindi, eru ennþá mest van-
þakklæti og opinber óvirðing, »hitun íveruherbergja með rafmagni
væri fjarstæða ein, sem engum orðum væri eyðandi að« (sbr. ritgerð
J. Þorlákssonar í Fossanefndaráliti meiri hlutans, bls. 94, útg. 1919).
Hr. J. Þ. hefur ekki, það eg veit, afturkallað né afsakað þau orð sín
síðan. Tjónið, sem af þeim þvættingi og því glapræði hefur hlotizt, er
næstum ómetanlegt frá alþýðu sjónarmiði. Því heilsu-tjón og' ham-
ingjutjón alþýðu verður aldrei metið til peninga.. Hinsvegar hafa fá-
einir kolasalar og steinolíusialar, læknar og lyfsalar, stórgrætt á því
að útiloka sem lengst húshitun með rafmagni.
Hvað kalkvinslu og sementsvinslu snertir, þá er hvorttveggja lífs-
nauðsyn, ef Islendingar vilja ekki alveg gefast upp í baráttu sinni
betri híbýlum, efnalegu sjálfstæði og ahnennri heilsu. — En lil þess
að geta rannsakað skeljabirgðir umhverfis landið, verð eg að fá nægi-
legan fjárstyrk, til þess að ferðast eftir þörfum kringum landið og
til þsss að geta gefið mig við vísindalegum rannsóknum árið l gegn,
og haft nægilegan lífeyri til að lifa eins og starfandi og dugandi
manni sæmir, — en það hef eg aldrei haft síðustu 10 árin.
Vinsamlegast.
Akureyri, 23. Marz 1925.
Frímann B. Amgrímsson.
P. S.
iSkýnslan fylgir með næsta pósti, ef ekki í dag. Þetta bréf er þér
heimilt að lesa, eigi aðeins fyrir Ingólfi Bjamasyni alþm., heldur og
fyrir aðal-fjárveitinganefndinni. Síðan birta í »Tímanum«, ef erindi
mitt fær illar undirtektir. F. B. A.