Fylkir - 01.01.1927, Qupperneq 53
55
Sé brermisteinssýra unnin úr þeirri miljón kg., þá fást um 3 miljón
kg. brennisteinssýru, eins og eftirfylgjandi formúla sýnir:
nS03+nH20=nH2SÖ4.
Eins og þegar er sagt, er atom vigt brennisteins talin 32, þegar
atom vigt hydrogens (vætkis) er talin 1, og atom vigt oxygens «r talin
16. Af því getur hver maður séð að vigt hinna ósameinuðu efna til
vinstri handar, nl. 80+18=98, er jöfn vigt hinna smeinuðu efna til
hægri handar, og að vigt brennisteinsins er tæplega Vs þar af. Eni
3 miljón kg. brennisteinssýru, seld eins og nú, segjum á 2 kr. kg.,
nl. hrein og tær brennisteinssýra, ekki mórauður, rjúkandi lögur,
gerir 6 miljón kr., upphæð, sem ætti að borga kostnaðinn við að
hreinsa brennisteininn og breyta honum í sýru eins og hér er sagt;
jafnvel þó uppgripin yrðu mun minni og verðið á sýrunni mun lægra
en hér er gert ráð fyrir; því nytsemi sýrunnar er margvísleg og meira
verð en markaðsverð hennar sýnir.
Brennisteins þríoxyd gerir dýrabein uppleysanleg og nýtileg sem
frjóefni, auðveldar en hægt er á annan hátt, nema með brennisteins-
sýru einni. Hún breytir þeim í >superphosphat«, svo dýrmætt og svo
mikið notað til jarðræktar. Hverjar 1000 smálestir af beinum, sem út
eru fluttar árlega héðan frá lslandi, í því kjöti og fé, sem landsmenn
senda til útlanda fyrir aðfluttar vörur, geta, sé brennisteinssýra notuð
eins og hér er sagt, gefið landsmönnum allt að 15 hundruð smálestir
superphosphats, en það, selt á 330—400 kr. smál., gerir % millión
til 600 þúsund kr. Bændur geta reiknað hvers virði það er fyrir þá
og' hve langt það fer til túnræktar. Útflutningur fjár og kjarnmestu
matvæla er sér á parti. Erlendis er ýmislegt annað unnið úr brenni-
steini, t. d. er hann ásamt phosphorus notaður í eldspítur og óteljandi
margt annað. — Það er því ekki að undra þó útlendir ferðamenn komi
til Mývatnsöræfa. Og það er ekki aðeins til að sjá eldborgirnar þar
og myndarlegt fjallafólk eða hlusta á fuglasönginn þar á vatninu,
heldur til að sjá sprengiefnin, sem þar liggja ofanjarðar ónotuð.
Sýnishom þau, sem eg hef safnað af brennisteini, eru þessi:
Nr. 22 tekið 1918 í Ljósavatnsskarði, pýrites, ranglega flokkað hér,
heyrir til næsta flokki á undan.
Sýnish. nr. 35 og nr. 60, voru bæði tekin á Þeystareykjum sumarið
1919 og send til efnarannsókna-stofunnar um haustið, sama ár (sbr. 3
og 4. bls. V. árg. Fylkis). Hið fyrtalda er hreinn brennisteinn.
Sýnish. nr. 111, einnig frá Þeystareykjum, tekið sumarið 1920 við
eina 100 ríkisdali á ári, til ársins 1851. Þá var hreinsuninni hætt.
(Sjá sömu bls.).