Fylkir - 01.01.1927, Page 69

Fylkir - 01.01.1927, Page 69
71 danska einokunar-félagið sýndu meiri forsjá. Þeir voru ekki að blanda sér í heims-pólitík, klæða sig í silki og skemta sér á sjónarleikjum og bíó. Enda var engin dýrtíð né hungursneyð á Grænlandi, meðan á styrjöldinni stóð. f ritgerð sinni Fjárstjórn Islands, útg. fyrir þremur árum síðan, lýkur Jón Þorláksson, núverandi Forsætisráðherra, lofsorði á fjár- stjóm landsins frá byrjun þessarar aldar til loka ársins 1916, og telur sjávarútveginn þeim mun arðsamari en landbúnaðinn, á sama tíma- bili og síðan, að ekki mætti leggja hömlur á hann. Skulda kreppa rík- isins og fjárþröng stafaði, segir höf., fyrst og fremst af trublun þeirri, sem komst á verzlunina á stríðsárunum og leiðin út úr þeim vandræð- um væri sparsemi á ýmsum öðrum sviðum en sjávarútveginum sjálf- um. Hér er ekki rúm til að rekja þá sögu, í þetta sinn, né til að rökræða orsakirnar til áfallinna þjóðskulda, enda hefur það mál verið rætt oft- ar en einu sinni í ritinu Fylkir. Hitt skal gert, lesendum skal vísað til ritgerðanna, Búskapur Islands og ráðsmenska (sjá 27.—56. bls. III. árg. Fylkis, útg. í Febrúar 1918) og tsland í stríði (sjá 86.—90. bls. IV. árg., 72.—96. bls. V. árg. og 17.—44. bls. VII. árg. sama rits, útg. á árunum 1919—1922); enn fremur til smágreinar með fyrir- sögninni Hvemig á að tryggja Islandi nægan peningaforða? (sjá 45. —46. bls. sama rits, útg. árið 1917). Loks vísast til greinanna Geng- isfallið og framtíðin (sjá 87.—89. bls. VIII. árg. Fylkis, útg. 1923), og Veðsetning fslands og viðreisn almennings, þ. e. fjárhagsins (sjá 60.—64. bls. IX. árg. sama rits, útg. 1924). Mergur málsins í öllum þeim ritgerðum er sá, að hér á fslandi, sé landbúnaðurinn (nl. kvikfjárrækt og garðrækt), ef með dugnaði og forsjálni rekinn, ólíkt tryggari og afkomumeiri atvinnuvegur en sjáv- arútvegurinn, rekinn, eins og síðan í byrjun þessarar aldar, meir af kappi en forsjá og með útlendu láns fé, sem landssjóður eða ríkissjóð- ur ábyrgist endurgreiðslu af eða gengur í ábyrgð fyrir. Með hinni miklu sjávarútgerð, jukust útgjöld landssjóðs og lands- manna hröðum fetum og neyddu stjórnina til að taka lán erlendis, jafnvel snemma á þessari öld, nl. undir eins og afráðið var að legg’ja sæsíma frá íslandi yfir Færeyar til Hjaltlands, breskrar eyar. Féð til þess fengu landsbúar að láni! og hétu að greiða símafélaginu 35.000 kr. árstillag um 20 ár = 700 þúsund króna, en með 4% vöxtum og vaxtavöxtum viðlögðum, rúmlega 2 milliónir króna. Með 5% vöxtum og vaxtavöxtum viðlögðum verður upphæðin 2% millión króna. — Um leið byrjaði stjómin lántökur og verðbréfakaup í Danmörku og hélt þeim áfram þar til Heimsófriðurinn skall á. Þá voru skuldir landsjóðs 1—-2 milliónir króna; lítil upphæð fyrir heilt þjóðfélag, en þó vísir til

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.