Fylkir - 01.01.1927, Qupperneq 31
33
skiftið til að koma upp vísi til steinarannsókna-stofu hér nyrðra, held-
ur eru þau rituð til þess að almenningur, sem nú lifir, og þeir sem
síðar koma til að starfa, sjái hve hyggilega og viturlega alþing hefur
breytt í þessu efni, og hvílík uppörfan það er, fyrir innfædda íslend-
inga, að leggja margra ára erfiði í að læra jafn örðuga vísindagrein
eins og steinafræðin er og reyna að vinna hér á landi, að vísindalegum
rannsóknum í þarfir almennings, því gróðafélagi engu hef eg nokk-
urn-tíma boðið vinnu mína og krafta, enda á engu þeirra, neina skuld
að gjalda. Hitt fanst mér skylt að gera, að sýna lit á trausti mínu og
tjrú á framtíð íslands, og reyna að vísa færan veg til að bæta húsa-
kynni almennings, án þess að eyða %—1 millíón króna á ári til
cement kaupa, 4—5 millíónum króna á ári til trjáviðarkaupa og
5—6 millíónum króna á ári til eldsneytis kaupa, og verða samt
að búa við ryk og reyk í kulda naustum eða kæfandi grenum, sem
drepa bæði börn og gamalmenni, þrátt fyrir alla lækna og öll meðöl.
Enn fremur vildi eg benda á veg til að gera landbúnaðinn svo trygg-
an og lífvænlegan, að fjöldinn þyrfti ekki að flýa sveitimar og fylla
kauptúnin af iðjuleysingjum og öreigum, eða fólki á vonarvöl. Og í
þriðja lagi var það áform mitt, að sýna og sanna, enn þá einu sinni,
að vatnsorka íslands, er og verður landsmönnum auðunna/rí, arðveen-
legri og heillaríkari orkulind en nokkur önnur, sem enn er fundin,
— þó Hekla, Katla, Krafla og fleiri gjósandi eldfjöll, verði máske
síðar tekin í þjónustu landsmanna, og þó Þingvalla, Þeystareykja og
Reykjahverfis hverirnir, og Reykjavíkur laugamar og allar aðrar
laugar á landinu, séu leiddar og reiddar til heimila þeirra, sem hafa
geð og getu til að nota jarðgufu, blandaða kolgufu, brennisteinssýru,
saltsým, saltpeturssýru og öðrum sýrum, eða gufum af alkalíefnum,
jafnvel rotnandi »organiskum« efnum, ammonía og cyanogen með-
talið, sem hæglega getur myndast og er ekki seint að stytta þeim
aldur, sem fá ögn af því í nefið. Það efni myndast oft þar, sem orga-
nisk efni rotna. En þeir, sem því fylgja, vita víst, hvað þeir fara,
enda ekki staður til að ræða það hér. Hitt skal eg gera, ef tíð og efni
leyfa, að leiða athygli lesarans að helztu atriðum ofangreindrar
skýrslu.