Fylkir - 01.01.1927, Síða 45

Fylkir - 01.01.1927, Síða 45
47 er af kísilsýru 1 blágrýti í samanburði við það, sem Baulusteinn eða liparít geymir, þá er basalt eða blágrýti þeim mun ríkara af alumína, jámoxyd, alkaliefnum og magnesía. Eftirfylgjandi efnagreining af basalti frá Steinheim á Þýzkalandi sýnir það ljóst. Silica 50,21; Alumína 14,22; Jámoxyd 13,11; Kalk 7,84; Magnesía 8,67; Kalí 0,66; Natron 3,92; Glæðitap 2,01; (sbr. 141. bls. Bruhns Petrographie). Hverjum, sem athugar blágrýti íslands, blandast varla hugur um, að það geymi talsvert af járni og öðrum nytsömum málmum. Þess- vegna tók eg, þegar á fyrsta sumri rannsókna minna, einn blágrýtis- mola, sýnish. nr. 14., hér á Akureyri og sendi suður til efnagreiningar. Næsta sumar, 1919, tók eg enn tvö sýnishorn, nr. 43, frá Ljósavatni og nr. 54. frá Djúpadai við Eyafjörð. Haustið 1924 fékk eg sýnishom af blágrýti frá Bæ í Sléttuhlíð, nl. nr. 122, og annað nr. 128 frá Alcureyri og sendi suður til efnagreiningar. En hef ekki enn séð neina efnagrein- ing á þeim, enda varla til þess ætlandi, að Efnarannsóknar-stofan geri það fyrir mín orð ein og endurgjaldslaust, án þess að stjómarráðið, eða Alþingi, hafi svo fyrirskipað. Síðastliðið haust, á ferð Iminni til Reykjastrandar, tók eg m.a. eitt sýnishorn af basalti, en hef ekki enn sent það né hin suður til efnagreiningar, af skiljanlegum ástæðum, því ekkert hinna fimm ofantöldu basalt-sýnishoraa hefur, það eg veit, enn verið efnagreint; og sjálfur hef eg ekki haft efni á að borga sérstak- lega fyrir efnagreiningar. — Það borgar sig víst betur að láta útlend istór-gróða félög rannsaka landið og vinna úr efnum þess, en að gera það sjálfur. Grágrýti (Dolerít) er, eins og' nafnið bendir til, grátt á lit, mun lin- ara en blágrýti, alt höggvanlegt og ágætt byggingaefni, en miklu sjaldgæfara en blágrýti hér á lslandi. Finst þó talsvert á Skaga við Skagafjörð, einnig milli Þingeyarsýslu að norðan og Ámessýslu að sunnan og á Snæfellsnesi (G. G. B.), einnig í Reykjadalnum í S.- Þingeyarsýslu, en óvíða mikið í stað. 1 Vallnafjalli við Bárðardal er og talsvert af grágrýti. Úr því fjalli er sýnish., nr. 15, tekið, sumarið 1918; beint upp af bænum Stóruvellir í vestanverðum Bárðardal. Sá hær er bygður úr grágrýti. Gabbro, ljósgrá steintegund, mun stórkomóttari en grágrýti og heldur linari. Er mjög sjaldgjæf á norðurlandi, en finst á austurlandi. 5. Tinnusteinn. (L. Silex. Þ. Qvarz. E. Qvarts), einnig nefndur hér »Kvarts«, er Silica (þ. e. Silicium-tvíoxyd), oftast hvítur á lit, annars gljáandi og tær, stundum glansandi, ókleyfur, með ójöfnu brotsári, harðari en gler, h. 7, e. þ. 2,65, helzta krystalmynd sexstrendingur með sex-hliða toppum, annars rhombiskir sexhymingar, í ýmsum myndum. Samsetning, SiQk. Bráðnar ekki fyrir lóðplpu, nema blandaður sé
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/182

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.