Fylkir - 01.01.1927, Side 59
61
af lífslopti og myndar 2,2 tonn kolsýru, sem gerir 33,000 ten.m. lopts
óhæfa til innöndunar. Þar, sem 3000 manns búa, og brenna, segj-
um 10 smál. á hverjum sólarhring á vetrum, þá verður eyðslan af lífs-
lopti auðvitað 10 falt meiri, n.l. 16 smálestir, og kolsýrumynduninn 22
smál. á sólarhring, og 330,000 ten. m. andrúmslopts eru um leið gexðir
óhæfir til innöndunar. Sé dauða logn myndar kolsýran lag niður við
jörðina, sem getur þakið, þó 1 m. á þykt, % úr ferkm. þ. e. álíka stórt
svæði sem 3000 manns byggja sumstaðar hér á Islandi.
Furðar nokkurn, að böm og fólk, sem ekki getur verið úti, fái
kvef, brjóstveiki og »berkia«, af að anda þessu eiturlopti að sér dag
eftir dag, viku eftir viku, og jafnvel mánuð eftir mánuð á vetrum,
kaldasta tíma ársins. Er að furða þó berklaveikin færist í vöxt með
aukinni kolaeyðslu í kaldari hýbýlum en gömlu torfbæirnir voru og
að sumu leyti með verri loptræslu, síðan stromparnir gengu úr móð,
því að opnir gluggar taka ekki í burt kolsýruna frá gólfinu. Hún
liggur þar kyr, nema það, sem góðir stofuofnar, sem ekki reykja, taka
af henni til sín, en fæstir af þeim eru svo góðir, að þeir gefi enga kol-
sýru frá sér inn í herbergin; og miðstöðvar bæta lítið úr skák. Lopt-
ræsla í herbergjunum er engin, þar sem þær eru, nema sérstaklega sé
um búið, og það auðvitað með auka kostnaði. Hún kemur í veg fyrir
ryk og reyk frá slæmum ofnum, en skatturinn fyrir kolaeyðslu og
lopteitrunin, þar, sem þau eru brend, heldur áfram eftir sem áður.
Engin meðöl, engar lækna-samkundur, engin berklahæli geta fyrirbygt
né stöðvað brjóstveikina hér á landi, meðan lopteitrun af ryki og reyk,
í illum og köldum húsakynnum heldur áfram.
Hér á Islandi lifir enginn heilbrigðu lífi, án þess að hafa hreint
lopt og nægan hita. Kolsýran í herbergjum má ekki vera yfir 5% né
hitinn undir 15°C til þess að sitjandi sé í þeim. Hver fullorðinn maður
andar frá sér svo nemur nálægt 200 grm. kolefnis á sólarhring. En
það framleiðir um 700 grm. af kolsýru. Má því herbergið alls ekki
vera minna en 12 ten.m. (=48 ten. álnir), helzt ekki minna en 15—
16,8 ten.m. á mann [sbr. reglugerð Reykjavíkur, tilvísaða í grein J.
Þorlákss. »Orkulindir á íslandi«. 96. bls. (sjá Fossanefndar-álit meiri-
hlutans útg. 1919)]. Og hitinn má helzt ekki vera minni fyrir börn og
gamalmenni og hitavant fólk, en 20'C. né minni en 16° C. fyrir full-
hraust vinnandi fólk, en það svarar til þess, að hita þurfi hér á ls-
Iandi herbergin um 14—18 stig til jafnaðar alt árið { gegn, teljandi
meðal árshita 2°C., þaæ sem landið er bygt norðan lands og sunnan.
En til að hita herbergi, segjum 15 ten.m. á stærð, svo að meðal hiti
þess sé 16° C. alt árið, þó að algerð loptskifti verði á hverri klukku-
stund, þarf að ætla 15X14, þ. e. 210, hitaeiningar á hverri klukku-
stund, þ. e. 1840000 hitaeiningar á ári, ætlandi 1 hitaeiningu á