Fylkir - 01.01.1927, Qupperneq 77
79
kr. frá eigna og tekjuskatti, 8% millión rúmlega frá verzlunartollum
og verðtol!um; rúmar SVs millión kr. frá áfengum drykkjum, alskonar
tóbaki, kaffi, sykri, og sælgæti, þ. e. rúmlega % allra tekna. Fengust
því næstum 9 milliónir kr. frá þessum þremur gjaldliðum. Pósttekjur
og símatekjur námu als 1906 þús. kr., sem gaf um 112 þús. kr. ágóða.
En 673 þús. ki, voru eftirgjald eftir jarðir, vaxtabréf o. s. frv., eins
og tablan sýnir. — Verzlunarhalli varð ekki síðastl. ár, samkv. ofan-
'rituðu, yfir 2 milliónir kr.
Hve alvarleg núverandi fjárkreppa er, má ráða af orðum fjármála-
ráherra sjálfs í ofangreindri ræðu, þ. á. m. að fjárhagur bankanna út
á við hafi á umliðnu ári versnað sem svaraði 585 þúsundum punda
sterling, þ. e. 13 milliónir kr. ísl. með nú gildandi verði, og sömuleiðis
af því að nýnefndir bankar áttu ekki, við síðustu áramót, að því sem
ræða fjármálaráðherra sýnir, nægilegt fé í hirzlum sínum til að greiða
þá upphæð í hreinu gulli eða silfri hvað þá meira. — Samkvæmt
Landsreikningnum fyrir árið 1925, námu skuldir ríkissjóðs, í lok þessa
árs, 11 millión 832 þúsundum kr. (sjá framan ritað) og samkvæmt hér
að ofan birtu yfirliti yfir tekjur og gjöld ríkissjóðs, námu afborganir
ríkisskulda á umliðnu ári alls 976 þúsundum kr. Ættu því allar ríkis-
skuldir við síðustu áramót ekki að hafa verið yfir 11 millión kr. (ná-
kvæml. 10,856 þús. kr.), ef ríkið hefði engin lán tekið á síðastl. ári.
En í ofangreindri fjárlaga-frv. ræðu er ess getið, að síðastl. ár hafi 3
millión kr. lán verið tekið fyrir veðdeild ríkisins með tilgreindum vöxt-
um og hafi sú deild byrjað að starfa að útlánum I. Okt. s. 1. Sé það
lán tekið upp á landssjóðs ábirgð eða ábirgist ríkið greiðslur af því og
endúrborgun þess í mynt eða fasteign, þá hefir ríkisskuldin í síðustu
árslok verið þeim mun hærri, nl. nærri 14 milliónir kr. Síðastliðinn
vetur lagði stjórnin tvö frumvörp markverð fyrir Alþing. Annað þeirra
beiðist samþ. þess til að taka nýtt lán að upphæð 4% millión kr. fyrir
veðdeild 4. flokk, og er kaupstöðum ætlað þar af um 4 milliónir kr.(
en afgangurinn ræktunarsjóði. Lán þetta fæst að sögn með mjög góð-
um borgunarskilmálum. Hitt frumvarpið fer þess á leit, að Alþingi
leyfi Landsbankanum að taka tveggja millión dollara (þ. e. 9 millión
kr.) lán hjá New York-borgar banka, vextir sé 5%. Samtals eru lán
þessi næstum 14 millión kr. Verði þessi frumvörp samþykt og lán þessi
tekin upp á ríkis ábirgð, þá nema skuldir ríkisins um leið og þau eru
itekin næstum 14 millión kr. meir en þær námu við s. 1. árslok, þ. e.
27% millión'Jcr. En samkv. L. R. fyrir 1925 voru allar eignir ríkisins
þá metnar á 28% millión kr. rúml. (sjá hér að framan), þ. e. rúml. 1
millión meira en ríkisskuldirnar nema nú, þegar nýnefnd lán hafa ver-
ið tekin. Nýnefnd frumvörp hafa mætt talsverðri mótspyrnu á þingi,
einkum af hálfu Framsóknarflokksins, sem telur íhaldsflokkinn, einlc-