Óðinn - 01.07.1931, Síða 5

Óðinn - 01.07.1931, Síða 5
53 ÓÐINN benti þegar á, hve þýðingarmikið væri að tengja Hjeraðið og F'irðina með akbraut — og Fagri- dalur væri eina færa leiðin. Hann andaðist í Hjarðarholti 3. júní 1901 úr lungnabólgu, er hann hafði aflokið sínu kærasta embæltisverki, ferm- ingu ungmenna. Eins og reyndar mátti heita tíska á fyrri árum foreldra minna í Hjarðar- holti, að á vetrum væri fleira eða færra ungmenna við eilt- hvert nám, hóklegt eða verklegt, eða hvorttveggja, hjá prestum eða öðrum mentamönnum, þar sem heimilisástæð- ur leyfðu, eins víst er það, að í Hjarð- arholti var í þeirra tíð, árlega, ung- mennaskóli í ein- hverri mynd, og þessi kvöð fylgdi staðnum til eftir- mannsins, sem í mörg ár hjelt uppi allmyndarleg- um unglingaskóla með opinberum styrk, enda er stað- urinn, að mjer virð- ist, sjálfkjörinn sem miðstöð mentalífs- ins t sýslunni, flestra hluta vegna. Guðlaug Margrjet, kona sjera Jóns Guttorms- sonar, var fædd á Brekku í Fijótshlíð 2. des. 1938. Foreldrar hennar vóru Jón Jónsson bóndi á Brekku og Margrjet Hjálmarsdóttir prests á Hallormsstað Guðmundssonar. Föðurætt síra Hjálmars er alkunn, en móðurætt hans er þannig rakin í æfisögu Gisla læknis Hjálmarssonar, eftir sjera Sigurð Gunnarsson próf. á Hallorms- stað: Kona sjera Hjálmars Guðmundssonar og móðir Margrjetar á Brekku, var Guðrún Gísla- dóttir, bónda í Laugardalshólum í Árnessýslu, Þórðarsonar Gíslasonar, en kona Gísla og móðir Guðrúnar, var Margrjet Jónsd. í Laugardalshólum Jónssonar, en kona Jóns og móðir Margrjetar, var Helga Ásmundsdóttir, lögrjettumanns í Laugar- dalshólum t’orieifssonar. Ivona Pórðar Gíslasonar var Gunnhildur Guðmundsd. Jónssonar, en móð- ir Gunnhildar var Guðlaug Pálsdótt- ir, Erasmussonar prests í Hrepphól- j um, Pálssonar prests, Erasmus- i sonar prests í Odda, Willadssonar. Var Erasinus fyrsti rekt- or í Skálholtsskóla, af jótskri ætt, og síðast prestur á Breiðabólsst. Hann var tengdasonur Gísia biskups Jóns- 1 sonar og officialis. Guðlaug Mar- grjet ólst upp hjá foreldrum sínum á Hallormsstað til tí ára aldurs, og síðar á^Brekku til 16 ára i aldurs, og loks hjá móðurbróður sín- um á Höfða, og þaðan giftist hún. Eftir missi manns síns flutti frú Guð- laug til Reykjavikur og dvaldi þar hjá Guðlaugu dóttur sinni til æviloka og andaðist hún 27. 27. nóv. 1926. — Böin þeirra hjóna vóru 7 og náðu þau öli fullorðinsaldri. 1. Guölaug Ingibjörfi, f. 20. mars 1860 á Höfða á Völl- um, gift 1889 Andrjesi Bjarnasyni1) söðlasmið, Laugaveg 11 í ReyUjavlk. Feirra börn: a. Jón, f. 14. nóv. 1891, gekk í Mentaskólann, d. 15. maí 1911, barnlaus. b. Kristinn, f. 3. febr. 1893, málarameistari t Rvík,, 1) Andrjes Bjarnason, f. í Hvítuhlíð í Bitru 28 marts 1855, d. í Rvik 15. janúar 1908, kv. í fyrra sinn Jórunni Guðmundsdóttur ljósmóður, f. 18. okt. 1885 i Borgar- firði, d. 25. ág 1874, Peirra barn: Ólafía, f. 2 april 1882 í Galtarholti, kennari við barnaskólann í Reykjavlk. B Sjera Jón Giillormsson.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.