Óðinn - 01.07.1931, Page 12

Óðinn - 01.07.1931, Page 12
60 ÓÐINN þeir starfrækt prentsmiðj- una í nokkur ár og var hún fyrst í Þingholtsstræti 21, en síðan bygðu þeir yfir hana steinhúsið í Ing- ólfsstræti. Steyptu eigend- ur Fjelagsprentsmiðjunnar þessum prentsmiðjum sam- an og fluttu Fjelagsprent- smiðjuna í húsið við Ing- ólfsstræti, sem þeir keyptu með Rún, en áður hafði prentsmiðjan haft húsnæði á leigu. Síðan hefur prentsmiðjan verið rekin á þess- um stað, en húsið verið hækkað um eina hæð og lengt til muna, og viðbygging hefur verið reist með endilangri austurhliðinni, því að störf prentsmiðjunnar hafa sífelt aukist og húsnæði smátt og smátt reynst of lítið. Þegar Fjelagsprentsmiðjan keypti Rún, fylgdi með í þeim kaupum ein setjaravjel, hin fyrsta, sem fluttist hingað til lands, og eina, sem þá var hjer. Skömmu síðar keypti hún aðra setjaravjel, og loks hina þriðju árið 1927, og eiga ekki aðr- ar prentsmiðjur hjer jafnmargar setjaravjelar. Jafnframt þessum vjelakaupum hefur prentsmiðjan keypt margs- konar^ aðrar nýtísku vjelar, sum- part til þess að flýta prentun og sumpart til þess að geta leyst af hendi sem fjölbreyttasta prentun. Hún hefur flest átt þrjár hrað- pressur, og er ein þeirra sjálfvirk, þ. e. a. s. »leggur í sig« sjálf, eins og það er kallað, hún tekur ó- prentaðan pappírinn upp með sog- skálum og rennir honum inn yfir letrið. Er það vjelin frá Rúnar- prentsmiðjunni og fyrsta vjelin af því tægi, sem kom hingað til lands. Þá á prentsmiðjan fjórar litlar prentvjelar, og er ein þeirra sjálf- virk. Fyrir sjö árum fjekk prent- smiðjan tæki til að prenta upp- hleypt letur, og vatnsmerki prent- ar hún einnig. Hún hefur ogstryk- unarvjel, til þess að prenta höfuð- bækur, og átta aðrar smávjelar til ýmiskonar prentstarfa, og eina málmsteypuvjel (stereotype), sem notuð er til þess að gera mót af prentletri. Árið 1925 fjekk prentsmiðjan áhöld til þess að búa til stimpla úr togleðri, en áður þurfti að fá þá frá útlöndum. Ellefu rafmagnshreyflar (mótorar) eru nú í prentsmiðjunni, og áður en ráfstöðin var reist við Elliðaár, átti prentsmiðj- an litla rafstöo, sem lýsti prentsmiðjuna og hreyfði vjelarnar. Á siðari árum hefur prent- smiðjan leyst af hendi margvíslega smáprentun, svo sem dagatöl, brjefhausa, reikningseyðublöð, ýmislega litprenlun o. s. frv., og hefur til þess hin fjölbreyttustu tæki, sem völ er á. Slík prent- un fer mjög í vöxt með vaxandi viðskiftum og tjölbreytni í atvinnuvegum. Fjelagsprentsmiðjan hefur frá upphafi prent- að mikinn fjölda hóka, blaða og timaríta, sem oflangt yrði hjer upp að lelja. Skal hjer aðeins nefna fátt eitt af handa hófi, — og helst það, sem kunnast er. Bœkur: íslendingasögur allar. Fornbrjefasafn, síðan farið var að prenta það á íslandi, orðabækur G. T. Zoéga, Saga Reykja- vikur, F'imtíu ára minningarrit vita á ís- landi, Myndabók Rikharðs Jónssonar, Islands Adressebog og 400 ára sögu prentlistarinnar á íslandi eftir Klemens Jónsson, sem kom út Bygging Fjelagspreiilsmiðjiinnar við Ingólfsstrœli. Steindór Gunnarsson, prenlsm iðjusljóri.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.