Óðinn - 01.07.1931, Side 20

Óðinn - 01.07.1931, Side 20
68 ÓÐINN Hannes Thorsteinsson bankastjóri. Hann andaðist 17. naaí síðastl., á 68. ári. fæddar 2. okt. 1863, sonur Árna landfógeta Thorsteinsson og eldri bróðir Árna tón- skálds Thorsteins- son. Hann var lög- fræðingur og hafði tekið próf við há- skólann í Kaup- mannahöfn 1892. Var hann fyrst aðstoðar- maður föður síns á landritaraskrifstof- unni og fjekst jafn- framt við málaflutn- ingsstörf. En er ís- landsbanki var stofn- aður 1904, varð hann par starfsmaður og skömmu síðar lög- fræðilegur ráðanaut- ur bankans. 1920 varð hann bankastjóri og hafði pað starf í 4 ár, en hvarf pá frá pví og gegndi eftir pað enguýföstu starfi, enda fór pá heilsu hans að hnigna og átti hann við langvinn veikindi að stríða á siðustu árunum. Hann bjó altaf í húsi foreldra sinna par sem hann var fæddur og uppalinn og hjelt par öllu í sömu skorðum og áður hafði verið. Hann var vænn maður.og'vel látinn, en gaf sig sem minst við opinber- um málum. Aldrei kvæntist hann. það væri »drukkit« upp, en aðrir hafi borið við, að enn væri ekki farið að laga ölið. Síðan bætir Hárr við: »Sjaldan hittir leiðr í lið«. Sveinbjörn skýrir orðið »lið« á þessum stað = öl, samdrykkja (campotatio), og er það sýni- lega hárrjett. 1 Snorraeddu segir: »Lið heitir öl« sbr. útg. Þorleifs Jónssonar, Kaupmh. ár 1875, bls. 85. í fornum kveðskap er skáldskapur tíð- um nefndur Hárs lið og Yggs lið = öl Óðins, sbr. Kórm. 5. 1. Hugsunin í erindinu er sýni- lega þessi: Hárr hvetur til, að hver og einn leggi slund á það, að koma sjer vel við alla, því aldrei sje neinum manni tekið með fagn- aði, er leiður þyki. Allir vilji sem fyrst losna við hann. Þess skal enn fremur getið, að orðabók Fritz- ners skýrir orðið »lið« í 65. erindi Hávamála á sama hátt og Sveinbjörn = öl.Jog segir orðið »lið« í norrænu sama orð og »leiþus« á Gotnesku. 1 þýðingu sinni á Nýjatestamentinu hefur Úlphílas biskup þýtt gríska orðið sikera (oíxequI, sem þýðir öl og áfengur orðinu »leiþus« (Lúk. Völundarkviða 5. og Kom par af veiði veðreygr skyti Völundr liðandi of langan veg, drykkur, með gotneska 1, 15.). i. er. 5. orð: veðreygr. Slagfiðr ok Egill, sali fundu auða, gengu út ok inn ok umb sáusk. »Veðreygur skyti« skýrir Finnur = veður- glöggur skotmaður. f*essi skýring er ekki senni- leg. Sjómónnum er nauðsyn að vera glögg- skyggnir á veðrafar; skotmönnum miklu síður. Sje fyrsta samstafa orðs þessa »veðr«, en ekki »ve«, þá er miklu líklegra, að hjer sje átt við veðurbarin augu, er rauð hafa orðið og vatn rennur úr af útiveru í köldum og hvössum stormi. Sveinbjörn skiftir á hinn bóginn orði þessu í samstöfur þannig: »ve — þreygr« og skýrir það = heimfús (af »ve« = heimili og sagnorðinu »þreygja«). Þessi skýring virðist mjer samrým- ast betur efni kviðunnar. Það var eðlilegt, að Völundur væri heimfús til Hervarar, og þótt »nauðr« (hin þungu örlög) hefði skilið þau um stund og hún flogið á brott, þá vænti hann stöðugt, að hún kæmi aftur. Ella hefði hann farið að leita hennar sem bræður hans heit- meyja sinna, sbr. 7. er. .... svá beið hann kvánar, ef hánum sinnar ljósrar of koma gerði. Orðið »ve« finst enn í norsku bygðamáli í merkingunni: arinn, heimili, sbr. A. Torp Etymologisk Ordbok bls. 851. Völundarkviða 7. er. 6. orð: gim fastan. Hann sló goll rautt við »gim fastan«, lukði hann alla lind baugum vel; svá beið hann sinnar ljósrar kvánar. ef hánum of koma gerði. Finnur skýrir »gim« = eld, og »fastan« = atviksorð, er þýði óaflátanlega, stöðugt. Orðabók Fritzners skýrir orð þetta á sama hátt. Kveður hann það vera þolfall af lýsingarorðinu »fastr« í eintölu, eins og það líka sýnilega er. Fyrstu tvær ljóðlínurnar þýðir Finnur svo: »Hann (nfl. Völ.) sló rautt gullið óaflátlega = smíðaði gullhringa. Skýring þessi er ljós, en þó er það við hana að athuga, að orðmyndin: »fastan«, ef það er tekið sem atviksorð, er með öllu ó- venjuleg, jafnvel rangmynduð (sprogstridig), en k.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.