Óðinn - 01.07.1931, Síða 23

Óðinn - 01.07.1931, Síða 23
ÓÐINN 71 Jeg kem þá að lokum að þeim orðum, er jeg vil skýra á aðra leið, en þeir skýrendur, sem jeg hef átt kost á að kynnast. Eru orð þessi þrjú talsins. Hýmiskviða 39. erindi 1. orð: hörmeitit. Próttöflugr kom en véar hverjan á ping goða vel skulu drekka ok hafði hver öldr at Ægis pann’s Hýmir átti; »eitt hörmeitit«. Er flett er upp skýring Finns á: »eitt hörmeitit«, fæst að eins þessi úrlausn: »Óskiljanlegt og af- bakað«. Ekki get jeg fallist á, að ekki sje unt að skilja, við hvað er átt, þvi Sveinbjörn hefur skýrt orð þessi meistaralega, sem hans var von og vandi. Þrátt fyrir það hygg jeg, að orðin »eitt hörmeitit« sjeu afbökuð. Kem jeg að því síðar. Sveinbjörn breytir í engu orðunum »eitt hörm- eitit« nema enda »t« í »þ« = hörmeitiþ, er hann hefur heimild til, og tekur hann siðara helming erindisins þannig saman: en véar skulu drekka vel eitt (= heitt) öldr (= öl) hverjan hörmeitiþ at Ægis =: en guðirnir skulu drekka vel heitt öl (nfl. úr ölhitukatlinum) heima hjá Ægi sjer- hvern línskurðarmánuð = haustmánuð. Ekki getur það talist nein óleyfileg breyting hjá Svein- birni, þótt hann breyti »hörmeitit« i »hörmeitiþ«, þvi að stafirnir: t, ð og þ eru hafðir jöfnum höndum og eftir geðþótta hvers í fornum hand- ritum (sbr. orðab. hans, bls. 808 um stafinn t.). Sagnorðið »meita« kemur fyrir i eddukv. og þýðir = skera í sundur (sbr. meita manar = skera fax af hestnm). Hörmeitiðr þýðir eigin- lega = sá, sem sker hör, sker lín til klæða. Hörmeitiðr táknar þá haustmánuð, því þá hófu konur línskurð, fatasauma. Sagnorðið »meita« er nú fallið brott úr nútíðarmálinu, en þó lifir enn þá nafnorðið: meitill, og nýmyndin að »meitla« = höggva í sundur. Sveinbjörn sýnir og í orðabók sinni með tilvitnunum í fornrit, að stafurinn »h« er oft feldur úr fyrir framan raddstaf t. d.: ann fyrir hann. Það er því ekkert því til fyrirstöðu, að »heitt« geti breyst í »eitt«. En hvað er það þá, sem gerir skýring Svein- bjarnar vafasama? Jeg er ekki svo lærður að jeg viti, hvort nokkur mánuður á hausti (eða haustið) hafi verið kallaður línskurðarmánuður. Jeg hygg helst, að svo hafi ekki verið, og tel eins og próf. Finnur ekki ólíklegt, að orðin »eitt hörmeitit« sjeu afbökuð og færð úr lagi. Jeg legg því til, að »eitt« og »hörmeitit« sje ritað í einu orði = eitthörmeitit, því jeg hygg, að orð þetta hafi slitnað í sundur í tvö orð sakir klaufalegrar og ónákvæmrar skriftar þess, er rilaði handritið. Enn fremur álít jeg, að síð- ara »/« í »eitt« hafi upprunalega verið »r« en ekki t, og fyrsta samstafa orðsins eitr, en ekki eitt. Þá fáum vjer orðið: eitrhörmeitið, ef vjer breytum enda-tjeinu í ð, sem vjer höfum fulla heimild til. Eitrhör er þá sama og eitrtvinni = ormur sbr. eitrþvengr = ormur (serpens) Lex. poet. bls. 129. Meitiðr = sá, er sker í sundur, drepur. Eitrhörmeitiðr er þá = ormabani = veturinn. Til samanburðar má benda á, að Egill Skallagrímsson kallar sumarið: dalfiskamiskunn = ormalíkn (sbr. Eglu, kap. 47). Sigurðarkviða en meiri, 2. orð: »reiði« (í 2. er.). Sigurör Grana logi allr lægðisk sverði keyrði, fyr lofgjörnum eldr sloknaði bliku »reiði« fyr öðlingi, es Reginn átti. Orðin »bliku reiði«, eða 7. Jjóðlínu, telur Finnur próf. óskiljandi. Þetta er þó tæpast rjett, því að minsta kosti hafa tveir ágætir málfræð- ingar, þeir Sveinbjörn og Guðbrandur Vigfússon, gefið ljósa skýringu á orðum þessum. Báðir taka þeir orðið »reiði« sem hvorugskyns-orð, er þýði = söðull, hnakkur (sbr. reiðver nú), en »bliku« taka þeir sem 3ju pers. þátíðar í fleir- tölu af sagnorðinu »blíkja«, sem síðar hefur breytst í veika sögn: blika, blikaði í þátíð. Af sterku sagnorðsmyndinni »blíkja« finst í forn- máli að eins 3ja pers. í eintölu nútíðar og 3ja pers. fieirt. þátíðar: »bliku« (sbr. Völundarkv. 8. er. skildir bliku þeira | við enn skarða mána. Þarna er orðmyndin »bliku« sýnilega 3ja pers. þátíðar í fleirt. og þýðir = ljómuðu. Sveinbjörn þýðir ljóðlínurnar: »bliku reiði, es Reginn átti: Splenduerunt ephippia, Regino olim possessa« = söðull Regins ljómaði (nfl.: í birtu vafurlogans ljómaði af söðlinum, er var gulli búinn). 1 Corp. poet. þýðir Guðbrandur stað þennan, ef jeg man rjett: »The saddle of Regin gleamed«. Er það nákvæmlega sama þýðing og skýring Sveinbjarnar. En hvað er þá helst athugavert við þessa skýring þeirra? Það er tvent. Fyrst það, að lýsingarorðið: lofgjörnum í 6. ljóðlínu vantar

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.