Óðinn - 01.07.1931, Page 28
76
ÓÐINN
Jón Djörnsson
og Ragnhildur Erlendsdóttir.
Jón Björnsson er fæddur 6. október 1858 á
Seljalandi i Hörðudal í Dalasýslu. Foreldrar
hans] voru Björn Kristjánsson, fæddur og upp-
alinn á Seljalandi, en móðir hans var Hólm-
friður Jónsdóttir frá Hrísum í Helgafellssveit,
en móðir hennar var Hólmfríður dóttir Gísla
Ólafssonar bisk-
ups í Skálholti.
Jón ólst upp hjá
foreldrum sínum
fram yfir ferm-
ingu, en var síð-
an vinnumaður
á ýmsum stöð-
um í Hörðudal
fram til ársins
1880, en þá flutt-
ist hann að Stóra-
Fjalli i Borgar-
hreppi tilmerkis-
hjónanna Kristó-
fers Finnboga-
sonar og Helgu
Pjetursd. Ottesen
og var hjá þeim
í 2 ár við smíðar, því hann var hagleiks maður,
bæði á trje og járnsmiði og ýmsa aðra vinnu,
en er þau hættu búskap, var hann í vinnu-
mensku á ýmsum stöðum í Borgarhreppi til
1889. Þá byrjaði hann búskap á jörðinni Jarð-
langsstöðum í Borgarhreppi og giftist árið eftir
Ragnhildi Erlendsdóttur. Hún er fædd 18. októ-
ber 1865 á Jarðlangsstöðum. Foreldrar hennar
voru Erlendur Guðmundsson, sonur Guðmund-
ar bónda á Jarðlangsstöðum Erlendssonar frá
Ánabrekku, en kona hans var ættuð af Akranesi.
Ragnhildur misti móður sína, er hún var á 8.
ári, og bjó faðir hennar með ýmsum ráðskon-
um þar til hún var 17 ára, en þá tók hún við
allri innanhússtjórn hjá föður sínum og komu
þá brátt í Ijós hinir miklu og góðu húsmóður-
hæfileikar hennar. Hún átti 4 systkini, sem öll
voru yngri en hún, og tvö hálfsystkini, því að
faðir hennar var tvígiftur, og varð hún að ann-
ast um uppeldi yngri systkina sinna og fórst
það sem annað ágætlega úr hendi. Heimilið var
í þjóðbraut og var þar því mikill gestagangur
og fylgdi honum oft mikið erfiði og umstang
og var það ekki minst vegna hins mikla drykkju-
skapar sem á þeim árum mátti segja að væri í
blóma sínum, en þessu heimili stjórnaði Ragn-
hildur með hinni mestu prýði fram til ársins
1889 að hún giftist Jóni Björnssyni, er þá tók
þar við öllum búsforráðum af föður hennar.
Bjuggu þau síðan 16 ár á Jarðlangsstöðum, en
urðu að flytja þaðan sökum þess að eigandi að
parti af jörðinni
vildi fá sinn
hluta til ábúðar,
en tvíbýli gátu
þau ekki búið í
á þessum stað,
og fluttu því ár-
ið 1905 að Öl-
valdsstöðum í
Borgarhreppi og
hjuggu þar síð-
an til 1929 að
Björn sonur
þeirra tók við
búinu.
Á Jarðlangs-
stöðum bygði
Jón Björnsson. Jón öll hús yfir
menn og skepn-
ur og á Ölvaldsstöðum var alt i kaldakoli er hann
kom þangað, svo að ekki var nokkur kofi, sem
staðið gæti ári lengur, og varð hann því á tveimur
fyrstu árunum að byggja þar öll hús frá grunni.
Túnið var þá þýft, en fyrir löngu hefur Jón
sljettað það alt og aukið að mun.
Mörg störf hefur Jón int af hendi i þágu
sveitarfjelags síns, og má t. d. nefna, að sóknar-
nefndarmaður hefur hann verið óslitið í 36 ár,
í hreppsnefnd í 28 ár, í búnaðarfjelagsnefnd um
20 ár, brunabótavirðingamaður síðan 1908 og
úttektar- og virðingamaður um langt skeið. Öll
þessi störf hefur hann leyst af hendi með ein-
stakri alúð og samviskusemi, enda ber hinn
langi starfstími hans í þessum efnum greinileg-
an volt þess, hvernig samsveitungar hans hafa
metið störf hans og framkomu. Þau Jón og Ragn-
hildur hafa nú verið í hjónabandi um 40 ár og
hafa eignast 12 börn, eru 10 þeirra í lífi, 3 synir
og 7 dætur, og eru þau öll hin mannvænlegustu.
Ragnhildur Erlensdóttir.