Óðinn - 01.07.1931, Blaðsíða 32

Óðinn - 01.07.1931, Blaðsíða 32
80 ÓÐINN María V. Hallgrímsdóttir. Hún er fædd. 21. ágúst 1905, í Reykjavík, dóttir Hallgríms kennara Jónssonar. Hún fór í Reykjavíkur mentaskóla að loknu barnaskóla- námi. Tók hún stúdentspróf vorið 1925. Sama ár var hún rituð í háskól- ann hjer. Las hún þar læknisfræði og lauk prófi síðast- liðið vor. Regar á leið sumar, sigldi hún til Danmerkur og hefur stundað par nám síðan. Sumarið 1929 tór María til Rýska- lands í stúdenta- skiftum og var sama sumar á stúd- entamótinu í Nor- egi. María Hall- grímsdóttir fjekk lofun fyrir nokkur- um styrk á sið- asta þingi. Ætlar hún að nota styrk pann til frekari fræðslu erlendis. sinn, tók hún á heimilið til sín móður sina aldraða og móðursystur og hafði einnig tengda- móður sína. Tvö börn tók hún á 1. ári og önn- ur tvö um 8 ára gömul og ól þau upp til full- orðins ára. Þurfti mikla umhyggju fyrir öllu þessu, en fyrir öllu var vel sjeð á Arnarnúpi. Má af þessu sjá, þótt stutt sje, hver kona Guðbjörg hefur verið, enda má óhætt segja, að sveitungar hennar, og allir, sem til hennar hafa þekt, líta nú á æfikvöldi hennar með aðdáun og virðing á dagsverkið, sem hún hefur af hendi leyst. Hún hefur verið alvörukona og ef til vill lífsatvikin stutt að því, en þó glaðleg og þýð í viðmóti; fordild er engin í fari hennar, en gest- risni sjálfsögð við alla, sem að garði ber, og liðsinni við alla, sem þurfa og hún nær til, því að góð kona er hún og guðhrædd í besta skiln- ingi sjálf, og hefur viljað kenna það öðrum, og því verið fasthaldin á gamlar og góðar heimilis- venjur. Börn hennar gáfu henni útvarpstæki nú á áttræðisafmæli hennar og hefur það glatt hana mjög, því að ekki mun hún nú lengur geta sótt helgar tíðir, svo sem venja hennar var jafnan. Af búskap Ijet hún árið 1908 og fjekk þá jörð- ina í hendur Elinborgu dóttur sinni og manni hennar, Guðjóni Þorgeirssyni, er búið hafa þar til þessa dags, og hún dvalið hjá þeim og dvel- ur enn. Sorgir hefur hún fengið að reyna, stríð og starf hefur líf hennar verið, en hún hefur sýnt sig starfinu vaxna, og nú líta sveitungar, og allir kunnugir, til hennar sem einnar hinnar mestu sæmdar- og merkiskonu í hvívetna, sem þeir hafa átt og þekt, og árna henni heilla á þess- um tímamótum og verðskuldaðra umbuna fyrir ágætt æfistarf. j^r j) # Sjera Friðrik Friðriksson: Starfsárin. Framh. Næsta dag kom vagn að sækja mig út til Nors, en það er prestsetur í nánd við Thisbet. Þar bjó sjera Krarup; var hann maður um fimtugt, lítill vexti og virtist mjer hann eldri en hann var. Hann var auðmjúkur maður og mjög elskulegur. Kona hans virtist vera miklu meiri skörungur en hann; hún las mjög enskar bækur og hafði þýtt bækling á dönsku. Þau eiga stálpuð börn og voru tvær dætur heima, en tveimur sonum hafði jeg kynst, öðrum í Levkey; hjet sá Kristian og las guðfræði; hinum kyntist jeg á Skaganum; var sá að læra verslun hjá kaupmanni þar; hann hjet ]akob, en þriðji bróðirinn, Jóhannes, var að læra landbúnað á herragarði á Sjálandi. Þessir þrír bræður koma nokkuð við sögu mína síðar. Það þótti mjer kynlegt, að alt fólkið tók sjer mið- degislúr á eftir hádegisverði; var þá dauðakyrð yfir öllu prestssetrinu. ]eg fór á meðan niður í lystigarð- inn og rifjaði upp fyrir mjer það sem jeg ætlaði að segja um kvöldið á samkomunni og hafði næðistíma til kl. 3, er síðdegiskaffi var drukkið. Lífið á sveita- prestssetri í Danmörk er mjög kyrlátt og óbrotið; prestar þar hafa venjulega engan búskap, leigja jörð- ina sjálfa, og hafa aðeins stóran lystigarð og mat- jurfagarð. Prestarnir hafa því miklu betra næði til að lesa og »studera«, en prestar á íslandi; fanst mjer ólíku saman að jafna kjörum þeirra og kjörum ís- lenskra presta. — Sömuleiðis áttu prestar í Dan- mörk hægra með að njóta uppbyggingar og uppörf- unar í starfi sínu, þar sem oftlega koma til þeirra aðrir prestar og trúaðir prjedikarar og halda hjá

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.