Óðinn - 01.07.1931, Page 35

Óðinn - 01.07.1931, Page 35
ÓÐI N N ákaflega góðan mat í miðdegisverð«. — Svo leidd- umst við heim að húsinu og komst jeg brátt í jafn- vægi innan um þetta góða fólk. — Um kvöldið var afarfjölmenn samkoma. Við töluðum þar báðir, bæj- artrúboði Clausen, sem jeg hef talað um í fyrra bind- inu, og jeg. Um kvöldið, er við sátum saman á prestssetrinu, spurði læknirinn mig, hvort jeg gæti ekki komið aftur, er þessari ferð væri lokið, og talað á opinberu móti fyrir öllum æskulýð hjeraðsins. Prest- urinn tók undir það og sagðist skyldi skrifa til Ric- ards að senda mig í októbermánuði aftur þangað vestur. ]eg tók vel undir þetta og fann að jeg hefði ekki að öllu orðið þeim til vonblekkingar, úr því að þeir vildu að jeg kæmi aftur. Næsta dag var jeg um kyrt og heimsótti lækninn. Upp frá því tókst með okkur ágæt vinátta. Hann var hinn mesti ágætis- maður. — Um kvöldið ókum við til Bækmarksbro það er járnbrautarstöð og talsvert þorp. Þar predik- aði jeg í trúboðshúsinu og var það yfirfult af fólki. ]eg átti að fara með næturlestinni kl. 10 og varð því að fara um leið og jeg hafði lokið predikun minni. Fyrir utan húsið var niðamyrkur og stóð þar hópur af pillum, sem höfðu verið að gera hálfgerðar óspektir meðan á samkomunni stóð. Þegar jeg kom út, tvístruðust þeir út í myrkrið. ]eg rakst á einn »Hvað heitirþú?* spurði jeg. »Varðar yður um það?« »Nei, eiginlega ekki, en mjer þætti gaman að vita það«. »]æja, jeg heiti ]ust«, svaraði hann dræmt. »Það er fallegt nafn, það er víst sama og latneska orðið ]ustus, sem þýðir rjettlátur. Ertu það, ertu rjettlátur gagnvart Guði?« — »Nei«, sagði hann. »Hugsaðu nú um að þjer ríður á að verða það, flýttu þjer að sættast við Guð áður en það verður of seint*. — ]eg tók í hönd honum og kvaddi hann og flýtti mjer á járnbrautarstöðina og hjelt leiðar minnar. Svo hjelt jeg áfram bæ úr bæ og alstaðar var mjer tekið opnum örmum. ]eg talaði á samkomum og kyntist persónlega fjölda af fólki, einkum drengj- um. Verð jeg nú að fara að hafa hraðan á, því annars yrði þetta oflangt mál, en um þennan kafla ferðarinnar hef jeg skrifað svona rækilega til þess að gefa sýnishorn af ferðum mínum um Danmörk á þessari þýðingarmestu ferð fyrir mig. ]eg fjekk svo mikið af brjefum, mest frá drengjum og ungum piltum, sem skrifuðu mjer um andlega eða sið- ferðilega erfiðleika sína; jeg sat oft á nóttunni við að svara þeim brjefum. Þannig fjekk jeg brjef frá unglingspilti í Álaborg. Hann hjet Gunnar Höyer og var sonur kennara þar í bænum. Hann gekk í 5. 8H bekk latínuskólans. Fyrst þegar jeg byrjaði að lesa brjefið, hjelt jeg að það ætti að vera skammabrjef. Það byrjaði svo kalt og formlega. »Hr. Pastor Frid- riksson! Þjer munuð verða undrandi á því að fá brjef frá mjer, sem þjer aldrei hafið sjeð eða heyrt getið um. En þjer megið vita, að jeg er vinur Edvards Matthiessen, og með því jeg hef sjeð að þjer hafið orðið honum til hjálpar, þá datt mjer í hug, hvort þjer gætuð ekki hjálpað mjer líka«. Svo kom um trúar erfiðleika hans og skrifuðumst við á nokkur brjef. Hann var 18 ára. — þessir tveir drengir í latínuskólanum í Álaborg urðu svo bestu vinir mínir þar, og er jeg heyrði Álaborgar getið komu þeir alt af fram í huga minn. Snemma í október kom jeg svo aftur til Kaup- mannahafnar, og dvaldi þar hálfsmánaðar tíma og talaði þar á ýmsnm stöðum á nálega hverju kvöldi. ]eg hafði margar unaðarstundir í K. F. U. M. og sjer í lagi með Ricard. ]eg heimsótti marga sunnu- dagaskóla, þar á meðal sunnudagaskólann í Nazaret- sókn. Þeim skóla veitti vinur minn Knútur Zímsen forstöðu. Fann jeg að hann var þar áhrifaríkur og í mesta uppáhaldi. Fyrri vikuna er jeg dvaldi í Kaupmannahöfn, fjekk jeg eitt sinn brjef frá Skovgaard-Petersen, sem þá var prestur í Maarum á Norður-Sjálandi, og bað hann mig að hjálpa sjer og messa hjá sjer næsta sunnudag, Hann hafði fengið veiki þá, sem í Dan- mörku er kölluð »Præstesyge«, en það er einslags hæsi, svo mögnuð að varla heyrist hvað menn segja, og getur verið hætta á að röddin missist alveg. Hann átti þann sunnudag að ferma og bað hann mig að taka það að mjer, nema að leggja hendurnar yfir börnin, það ætlaði hann sjálfur að gera. — ]eg gat ekki vel sagt nei við þessu, en aftur fanst mjer það vera mjer um megn að framkvæma hámessu með fermingu, á dönsku, jeg sem aldrei hafði komið mjer að, að tóna á íslensku. Með ráði sjera Ricards skrifaði jeg honum og tjáði honum allan huga minn í þessu efni, og stakk upp á því, hvort ekki væri hægt að fá nágranna prest, t. d. sjera Stricher í Græsted til þess, og skyldi jeg þá messa fyrir hann. Um þetta gengu svo nokkur skrif og varð þetta úr. ]eg átti að fara næsta laugardagskvöld út til Græs- sted og hafa hámessuna þar, en sleppa við auka- verkin. Á laugardagsmorgun hafði jeg óþolandi tann- pínu og það í insta jaxlinum, svo að ástandið þótti mjer ískyggilegt. Loks tók jeg í mig ilsku og fór niður í bæ og rakst þar á tannlæknis-auglýsingar- spjald og þaut þar upp án þess að gá nánar að. ]eg

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.