Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.06.1880, Page 25
l6l
ur en 3 mánuðir eru liðnir frá því að innköllunarfrest-
uðinn var útrunninn. Ef ólögmætur dráttur verður
á greiðslu gjaldsins, skal greiða það tvöfalt, og ef ein-
hver leitast við að skjótast undan að greiða erfðagjald
að öllu eða nokkru, skal greiða það þrefalt, sem und-
an átti að draga.
4. Undanþegin öllu erfðagjaldi eru þau bú, sem
að frádregnum skuldum nema ekki 200 kr., og þar af
leiðir, að þegar það hjóna, sem lengur lifir, skiptir
með erfingjum hins framliðna, og búshluti hins fram-
liðna ekki nemur 200 kr., þá á ekkert erfðagjald að
greiða. Af fjárstyrk, sem manni er gefinn í arfleiðslu-
skrá sjer til framfæris eða til annars um tiltekið ára-
bil eða meðan hann lifir, á ekki að greiða erfðagjald
sjerstaklega. Ef erfingi, sem á að greiða 4x/2 af 100
í erfðagjald af arfahluta sínum, deyr áður en erfða-
gjaldið átti að vera greitt af hendi samkvæmt undan-
farandi grein, og erfingjar hans eru ekki náskyldari
honum en svo, að þeir einnig eiga að greiða 4% af
100 af arfi sínum eptir hann, ber þó ekki að greiða
tvisvar sinnum 4J/2 af 100 af þessum arfahluta, heldur
í síðara skiptið að eins '/2 af hundraði.
VI.
Grjalcl af afsali fasteigna.
1. Gjald þetta, sem er lögboðið með tilsk. 8.
febrúar 1810, sbr. opið brjef 5. maí s. á., berað greiða
af verði allra fasteigna, í hvert skipti sem þær eru afsal-
aðar nýjum eiganda. Til fasteigna ber að telja ekki að
eins jarðir og kaupstaðarhús, heldur hverja landeign
sem er, hvort sem hún hefur sjerstakan dýrleika í
jarðabókinni eða ekki, svo sem kaupstaðarlóðir, þurra-
búðarlóðir, vergögn, sem og ítök í annara manna lönd,
enn fremur hús og bæi, ekki síður til sveita en í kaup-
stöðum, verzlunarstöðum og fiskiverum, sbr. rhbr. 17.
Timarit hins islenzka bókmenntafjelags. I. II