BFÖ-blaðið - 01.03.1967, Side 1
3. OG 4. TBL. 1967
-BLAÐIÐ
FÉLAGSRIT BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA
Gefið út í samvinnu við Abyrgð h/f.
BFO
Hœgri umferð í Svíþjóð
í sambandi við breytinguna úr
vinstri í hægri umferð í Svíþjóð hinn
3. september sL bauð MHF (Bindind
isfélg ökumanna í Svíþjóð) fulltrúa
frá BFO að taka þátt í sérstakri dag-
skrá, sem bifreiðaeigendafélögin í Sví-
þjóð (M, MHF og KAK), ásamt
(HTK) og sænsku vegagerðinni (SV
F) efndu til. Undirritaður þáði boð
þetta, en fulltrúar voru frá öllum bind-
indisfélögum á Norðurlöndum og voru
flestir þeirra einnig fulltrúar trygging-
afélaga bindindismanna í viðkomandi
löndum. Alls sóttu um 190 erlendir
fulltrúar dagskrá þessa, sem tók yfir
dagana 2.-4. september, þar af fjöldi
fslendinga.
Undirbúningur undir hægri umferð
í Svíþjóð var mjög yfirgripsmikill og
hnitmiðaður og fylgdi honum stórkost-
leg áróðursstarfsemi, til þess að búa
fólk sem bezt undir breytinguna.
Fannst sumum nóg um allan áróður-
inn og sögðu, að menn væru orðnir
„fullir upp í háls" af áróðri. Því
svöruðu hægri nefndar menn: „Það er
ekki nóg, hann á að ná alveg upp í
heilann"! Og það virðist sem þessi
starfssemi hafi borið tilætlaðan árang-
ur, því hægri umferðin í Svíþjóð hefur
BFÖ-BLAÐIÐ
gengið mjög vel og slysalítið síðan
3. september sl. Ég held að óhætt sé
að segja, að Svíum hafi tekizt það,
sem okkur íslendinga vanhagar svo
mjög um, að framkalla umferðarvakn-
ingu meðal allrar þjóðarinnar.
Ég kom til Stokkhólms að kvöldi
1. september. Strax og komið var inn
í flugafgreiðsluna á Arlanda, var okk-
ur farþegunum afhentur lítill bækling-
ur, ritaður á Sænsku, Finnsku, Norsku,
Ensku, Frönsku og Þýzku, sem skýrði
frá fyrirhugaðri breytingu og tilhögun
hennar. Allsstaðar gat að líta lítið sex-
kantað merki, með gulu H á svörtum
fleti. Á leiðinni inn í miðborgina
þurftum við oft að aka á móti aksturs-
stefnuörvum og einstefnuaksturs-
merkjum, en víða var búið að „af-
hjúpa" breyttar merkingar.
f Stokkhólmi hófst almennt um-
ferðarbann kl. 10 að morgni laugar-
daginn 2. september og stóð til kl.
15 á H-daginn, 3. september. Máttu
þá aðeins leigubílar og strætisvagnar
aka auk, að sjálfsögðu, lögreglu-,
sjúkra- og slökkviliðs- og undanbágu-
Éílar starfsmanna við breytinguna.
Þessi tími var notaður til að fullgera
allar breytingar á umferðarmerkjum,
1