BFÖ-blaðið - 01.03.1967, Blaðsíða 27
í árslok 1966 var 2.505 og iðgjalda-
tekjur námu 7.125.000 krónum. Fast-
ráðið starfsfólk í árslok 1966 var 5
talsins.
6. Stóra-Bretland.
Ansvar International stofnaði bind-
;indistryggingafélagið Ansvar Insur-
ánce Company Ltd í London árið 1959.
;Ansvar International á 75 % af hlut-
um í félaginu, en aðrir hluthafar eru
Brezka bindindishreyfingin (The
Brithish Temparance Movement),
Hambrosbanki og Varde í Noregi.
Annast félagið allan almennan trygg-
ingarekstur. Fjöldi tryggjenda í árs-
lok 1966 var 28.300 og iðgjaldatekjur
námu 41.740.00 krónum. Fastráðið
starfsfólk var í árslok 1965 54 talsins.
Einnig rekur Ansvar International
endurtryggingafélagið Ansvar Agency
Ltd í London, sem annast dreifingu
endurtrygginga fyrir öll Ansvarsfél-
ögin. Iðgjaldatekjur þess félags námu
um 30 milljónum árið 1965.
7. Ástralía.
f Ástralíu var árið 1961 stofnað
eins konar útibú frá Ansvar Insur-
ance Co í Englandi, sem hefur með
höndum allan almennan trygginga-
rekstur. Fjöldi tryggjenda þar fer ört
vaxandi og var í árslok 1966 6.290 og
iðgjaldatekjur námu um 29 milljónum
króna það ár. Fastráðið starfsfólk var í
árslok 1965 30 talsins.
Öll fyrrnefnd félög eru aðilar að
svokölluðum Ansvarssamtökum. Sam-
anlögð iðgjöld þeirra allra námu á ár-
inu 1966 um 695 milljónum króna og
samanlagður fjöldi tryggjenda nam í
árslok 1966 um 352 þúsundum. Þá eru
einnig starfandi bindindistrygginga-
félög vestan hafs, eitt í Kanada, Ab-
stainers Insurance Company, sem hefur
náið samband við Ansvar Internation-
al, og tvö í Bandaríkjunum, Central
Security Mumal í Chicago og Preferr-
ed Risk í Iowa. Preferred Risk er um
15 ára gamalt félag og orðið geysiöfl-
ugt, iðgjaldatekjur þess voru yfir 600
miUjónir króna árið 1965.
Ansvar International er með á
pr jónunum stofnun bindindistrygging-
afélaga í fleiri löndum og er mér kunn-
ugt um að Nýja Sjáland, Þýzkaland
og HoUand séu í athugun hjá félaginu
sem væntanleg bindindistrygginga-
lönd. Þá hefi ég einnig frétt, að frönsk
yfirvöld hafi rætt við forsvarsmenn
Ansvars um möguleika á stofnun fél-
ags þar, en þau telja það muni vera
mikilsvert að koma á stofn bindindis-
tryggingum þar í Iandi, ef það gæti
orðið til þess að stemma stigu við hinu
mikla áfengisböli, sem franska þjóðin
á við að etja.
Ég hef nú rakið nokkuð aðdraganda
að stofnun bindindistryggingafélag-
anna og skýrt frá félögum þeim, sem
mér er kunnugt um að eru starfandi í
heiminum. Þá langar mig til að hug-
leiða aðeins, hverju þessi félög hafa
komið til leiðar, hvaða hag bindindis-
samtök kunna að hafa af þeim og
hverra hagsmuna hver einstakur bind-
indismaður nýtur hjá þeim. Ég ætla
mér ekki þá dul að gefa tæmandi svör
við þessum spurningum, en ætla að
reyna að gera nokkra grein fyrir þeim.
Hverju hafa hincLindistryggingafélög-
in komið til leiðar?
Þau hafa sýnt það og sannað, að
það borgar sig að lifa í bindindi, að
bindindismenn eru betri ökumenn en
BFÖ-BLAÐIÐ
27