Bókasafnið - 01.02.1978, Blaðsíða 6
ÞÓRIR RAGNARSSON:
Ráðstefna um
upplýsingamál
Föstudaginn 28. okt. 1977 var haldin ráð-
stefna um upplýsingamál á Hótel Loftleið-
um. Var hún haldin á vegum Rannsókna-
ráðs ríkisins og með fulltingi NORD-
FORSK. Kjörorð hennar var: UPPLÝS-
INGAR ERU VERÐMÆTI. Hér á eftir
verður gerð grein fyrir þessari ráðstefnu.
Stuðst er að nokkru leyti við fréttatilkynn-
ingu sem Rannsóknaráð sendi fjölmiðlum
af þessu tilefni.
Aðdragandi
Árið 1975 skipaði Rannsóknaráð ríkisins
nefnd til þess að gera tillögur um skipulag
upplýsingaþjónustu í raunvísindum og
tækni hérlendis. Skilaði nefndin tillögum
sínum ári síðar og birtust þær í skýrslu sem
kom út á vegum Rannsóknaráðs undir heit-
inu Skipulag upplýsingamála á íslandi.
Helstu tillögurnar voru raktar í 1. tbl.
Bókasafnsins 1976 (bls. 13).
Ráðstefnan á Hótel Loftleiðum fjallaði
um upplýsingastarfsemi hér á landi í raun-
vísindum, tækni og skyldum greinum og
voru niðurstöður fyrrnefndrar skýrslu eink-
um lagðar til grundvallar. Jafnframt var
kynnt tæknileg upplýsingaþjónusta eins og
hún er rekin erlendis.
Gestir
Gestir á ráðstefnunni voru um 90 talsins.
Voru það fulltrúar frá ýmsum opinberum
stofnunum svo sem bókasöfnum, rann-
sóknastofnunum og stjórnvöldum, enn-
fremur fulltrúar frá félagasamtökum og at-
vinnufyrirtækjum.
Þrír erlendir gestir sóttu ráðstefnuna. Það
voru K. Ingemann Pedersen verkfræðingur
frá Dansk teknisk oplysningstjeneste, Dan
Fink arkitekt forstöðumaður Bygningstekn-
is studiearkiv í Kaupmannahöfn og Sauli
Laitinen forstöðumaður upplýsingadeildar
við hina tæknilegu rannsóknastofnun ríkis-
ins í Helsingfors.
Þeir Dan Fink og K.I. Pedersen notuðu
tvo daga á undan ráðstefnunni til þess að
fara í rannsóknastofnanir og iðnfyrirtæki og
kynna sér hvernig menn öfluðu upplýsinga í
þessum stöðum. Einnig sátu þeir félagar
fund með framkvæmdanefnd Rannsókna-
ráðs. Var m.a. rætt um stofnun tæknilegrar
upplýsingaþjónustu á íslandi og nauðsyn
þess að setja á fót hérlendis fastanefnd um
upplýsingamál.
Sauli Laitinen kom hingað til lands
einkum í þeim erindum að kynna tölvuleit
að upplýsingum. Verður nánar vikið að
henni síðar.
Dagskráin
Efni ráðstefnunnar verður í stuttu máli
best lýst með því að nefna erindi þau sem
6