Bókasafnið - 01.02.1978, Blaðsíða 31
háskóla íslands, að haldin séu námskeið
fyrir kennara, sem starfa, eða hyggjast starfa
í. skólasöfnum, þar sem höfuðáhersla verði
lögð á kennslufræðileg og uppeldisleg
markmið skólasafna". Þannig var eitt af
fyrstu viðfangsefnum félagsins í samvinnu
við Kennaraháskóla íslands að efna til
námskeiðs fyrir kennara sem starfa á skóla-
söfnum, þar sem höfuðáhersla yrði lögð á
hinn kennslufræðilega þátt safnanna. Viku-
námskeið var svo í júní 1976. Þátttakendur
voru 30 víðsvegar af landinu. Aðalfyrirlesari
var Kurt Hartvig Petersen námskeiðsstjóri
frá danska kennaraháskólanum. í framhaldi
af námskeiðinu var haldin ráðstefna á veg-
um félagsins og Sambands íslenskra barna-
kennara um nauðsyn skólasafns í skóla-
starfi. Aðalfyrirlesari var Kurt Hartvig
Petersen. Einnig flutti Jónas Pálsson skóla-
stjóri erindi um nauðsyn skólasafna í skóla-
starfi og Kristján Gunnarsson fræðslustjóri
talaði um skólasöfn í Reykjavík. Fundar-
stjóri var Helgi Jónasson fræðslustjóri í
Reykjanesumdæmi.
Á ráðstefnunni voru eftirfarandi ályktan-
ir samþykktar samhljóða:
Skorað er á viðkomandi yfirvöld:
1. Að komið verði upp miðstöð fyrir öll
skóla- og bókasöfn á landinu, sem annist
ýmsa sameiginlega þjónustu og sjái m.a.
um flokkun, skráningu og frágang bóka
og annarra safngagna.
2. Að komið verði upp kennslugagnamið-
stöðvum við fræðsluskrifstofur umdæm-
anna, sem annist m.a. kennslufræðilega
ráðgjöf við uppbyggingu, rekstur og
skipulag skólasafna. Þar verði einnig
dýrari kennslugögn og tæki, sem skól-
arnir geti haft aðgang að.
3. Fundurinn leggur áherslu á að starf
skólasafnvarðar er fyrst og fremst
kennslustarf og því skorar fundurinn
eindregið á Kennaraháskólann að taka
upp kennslu í þeirri grein. Bæði sem
skyldugrein og sem valgrein að auki fyrir
þá sem hyggjast starfa í skólasöfnum.
Ennfremur var lögð áhersla á, að við
hönnun skólabygginga verði tekið tillit
til skólasafna.
Félagið hafði strax í upphafi samband við
Danmarks Skolebibliotekarforening og á
vegum þess fóru nokkrir félagsmenn í
námsferð til Danmerkur sumarið 1976 til að
kynnast dönskum skólasöfnum og mið-
stöðvum.
Mörg ár eru síðan fyrst var rætt um nor-
rænt samstarf á sviði skólasafna. En það var
þó ekki fyrr en haustið 1976 að nokkrir
sænskir og danskir skólasafnverðir hittust,
og ákveðið var að halda norrænt mót skóla-
safnvarða í Uddevalla í Svíþjóð sumarið
1977. Á þessum undirbúningsfundi sam-
þykktu fundarboðendur ályktun þess efnis
Framhald á bls. 40
31