Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR4. DESEMBER 1981. Dr. Gunnar Thoroddsen um stjómarmyndunina ísamtalsbók Vöku: Hvorki langur né dul- arfullur aðdragandi „Ég gerði engar tilraunir til þess að spilla fyrir stjórnarmyndun Geirs Hall- grimssonar eða til þess að reyna sjálfur að mynda stjórn, meðan hann hafði umboð til þess. Sá möguleiki, sem ég kannaði og kynnti þingflokki sjálf- stæðismanna, kom ekki til sögunnar fyrr en með samtölum framsóknar- manna við mig þriðjudaginn 29. janúar. Og ég itreka, að Geir hafnaði honum,” segir Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra 1 Samtalsbókinni, sem komin er út hjá bókaútgáfunni Vöku. Þar ræðir Ólafúr Ragnarsson við dr. Gunnar. Bæði síðdegisblöðin sögðu frá undirbúningi að þessari stjórnarmynd- un 31. janúar. Margir hafi haldið fram, að stjórnarmyndunin hafi átt sér lengri aðdraganda en fram kemur í Samtals- bókinni. Dr. Gunnar segir, að Tómas Árna- son hafi vakið máls á þessum mögu- leika rétt fyrir þingfund 29. janúar. „Það kom fram, að þetta mál hefði verið rætt við Geir Hallgrímsson, for- mann Sjálfstæðisflokksins, daginn áður,” segir Gunnar. „Geir hefði ekki viljað sinna því, og varð þvi ekki frekar af viðræðum þarra við hann.” „Það má segja, að þingmenn Fram- sóknarflokksins, sem töluðu við mig, siðan tekið málið í minar hendur,” hafi gefið mér ábendingar, og ég hafi segirGunnar. -HH. Þeir eru kampakátir yfir nýju bókinni, Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra og Ólafur Ragnarsson útgefandi: (Mynd Bjarnleifur). Sambandshúsið: SÍS HÆTTl VID AÐ SEUA Margra mánaða samningaþjarki, um kaup ríkissjóðs á Sambandshúsinu, er nú loks lokið, þar sem SÍS hætti við að selja fasteignina við Sölvhólsgötu. Samkvæmt upplýsingum frá SÍS náðist í júlí óformlegt samkomulag um öll meginatriði viðvíkjandi kaupunum milli fulltrúa rikissjóðs og Sambandsins. Síðan hefur hið síðamefnda þurft að biða eftir staðfestingu Stjórnarráðsins á þvi að ríkisstjórnin hefði áhuga á þessum kaupum. Hafði SÍS, að sögn, reynt itrekað að fá fram svör stjórn- valda um málið, en án árangurs. Því var hætt við sölu á húsinu og verða höfuðstöðvar SÍS því áfram við ' Sölvhólsgötu um einhvern tíma. -JSS. Að sjátfsögðu leikur ísland í Póstsendum Sportvöruverslun ingóffs Óskarssonar Klapparstíg 44. — Sími 11783. HÉXER8ÓKIN Sartland Hiarta tromp HJARTA ER TROMP eftir Barböru Cartland Hin kornunga og fagra Cerlssa er óskllgetin dóttir fransks hertoga og enskrar hefðarmeyjar. Faðlr hennar var tekinn af lífi í frönsku stjómarbyltingunni og Cerissa ótt- ast um líf sitt. Hún ákveður þvi að flýja tll Englands. I Calais hlttir hún dularfullan Englendlng, sem lofar að hjálpa henni, en þegar til Englands kemur, gerast margir og óvæntir atburðir. — Bækur Bar- böru Cartland eru spennandi og hér hittir hún beint i hjartastað. DRAUMAMAÐURINN HENNAR eftir Theresu Charles Lindu dreymdi alltaf sama draum- inn, nótt eftir nótt, mánuð eftir mánuö. Draumurinn var orðinn henni sem veruleiki og einnig mað- urinn í draumnum, sem hún var oröin bundin sterkum, ósýnilegum böndum. En svo kom Mark inn í líf hennar; honum giftist hún og með honum elgnaðist hún yndislegan dreng. Þegar stríðlð brauzt út, flutti hún út í sveit meö drenginn og fyrir tilviljun hafna þau í þorpinu, sem hún þekkti svo vel úr draumnum. Og þar hitti hún draumamanninn sinn, holdi klæddan... 3. ■Qkcote* Qrauma madurinn hennar Hulin fortíd HULIN FORTÍÐ eftir Theresu Charles Ung stúlka missir minnið í loftárás á London, kynnist ungum flug- manni og giftist honum. Fortiðin er henni sem lokuð bók, en haltr- andi fótatak í stiganum fyllir hana óhugnanlegri skelfingu. Hún miss- ir mann sinn eftir stutta sambúö og litlu siðar veitlr henni eftirför stórvaxinn maöur, sem haltrandi styðst viö haekjur. Hann ávarpar hana nafni, sem hún þekkir ekki, og hún stirðnar upp af skeifingu, er í Ijós kemur, að þessum manni er hún gift. — Og framhaldið er æsilega spennandil VALD VILJANS eftir Sigge Stark Sif, dóttir Brunke óðalseiganda, var hrífandi fögur, en drambsöm, þrjósk og duttlungafull. Hún gaf karlmönnunum óspart undir fót- inn, en veittist erfitt að velja hinn eina rótta. Edward var ævintýramaður, glæsi- menni meö dularfulla fortíð, einn hinna nýríku, sem kunningjar Brunke forstjóra litu niöur á. Hann var óvenju viljasterkur og trúði á vald viljans. En Sif og Edward fundu bæði óþyrmilega fyrir því, þegar örlögin tóku í taumana. SIGGE STARK VALD VILJANS SIGNE BJÖRNBERG Hættulegur leikur HÆTTULEGUR LEIKUR eftir Signe Björnberg j Bergvík fannst stúlkunum eitt- hvað sérstakt við tunglskin ágúst- nóttanna. Þá var hver skógarstigur umsetinn af ástföngnu ungu fólki og hver bátskæna var notuð til aö flytja rómantíska elskendur yfir merlaðan, spegilsléttan vatnsflöt- inn. Tunglskiniö og töfraáhrif þess haföl sömu áhrlf á þær allar þrjár. Elsu, dóttur dómarans, fröken Mörtu og litlu .herragarðsstúlk- una*. Allar þráðu þær Bertelsen verkstjóra, — en hver með sínum sérstaka hætti. ÉG ELSKA ÞIG eftir Else-Marie Nohr Eva Ekman var ung og falleg, en uppruni hennar var vægast sagt dularfullur. Ekki var vitað um for- eldra hennar, fæðingarstað eða fæðingardag. Óljósar minningar um mann, Ijóshæröan, bláeygan, háan og spengilegan, blunda í und- Irvitund hennar. Þennan mann tel- ur hún hugsanlega vera föður sinn. Álíka óljósar eru minningarnar um móðurlna. Þegar Eva fær heimsókn af ung- um, geðþekkum manni, sem býðst til að aöstoða hana viö ieltina að móður hennar, fer hún meö honum til Austurríkis. Hún veit hins vegar ekkl, að meö þessari ferö stofnar hún lífl sínu í bráöa hættu. ELSE-MARIE NOHR ÉGELSKÁtHQ SKUGGSJÁ BÓKABÚD OUVERS STEINS SE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.