Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Wagner aðalerfingi Natalie Wood: ERFÐASKRÁIN OPNUDÍGÆR Natalie Wood arfleiddi eiginmann sinn, Robert Wagner, að íbúðum sín- um, bílum og skartgripum, eftir þvi sem i ljós kom þegar erfðaskráin var gerðkunnígær. Þau hjónin höfðu fjárfest saman í framleiðslu kvikmynda og sjónvarps- þátta eins og „Charlies Angels”, sem hefur verið mjög vinsæll vestanhafs og voru almennt álitin einhver efnuðustu leikarahjónin í Los Angeles og Holly- wood. í erfðaskránni var Wagner tilnefndur til að ráða skiptum. Sjálfum eru honum ætlaðir bílar fjölskyldunnar, húsgögn öll, málverk, skartgripir, persónulegir munir og leigulaus afnot heimila þeirra til dánardægurs. Afgangi eignanna er skipt í erfða- skránni í tvo sjóði. Rennur annar til Wagners en hinn til barnanna. Þau eru Katharine (17 ára) dóttir Wagners af fyrra hjónabandi, Natasha (11 ára) dóttir Natalie af fyrra hjónabandi og dóttir þeirra beggja, Courtney (7 ára). Ekki var gert kunnugt hvað eignirnar hefðu numið miklu. ,,Ég treysti eiginmanni mínum til þess að uppfylla þessar óskir,” skrifaði Natalie í erfðaskrána, sem gerð var í april 1980. Móðir hennar fær árlegan lífeyri samkvæmt erfðaskránni og systrum hennar eru ánafnaðar gjafir. Los Angeies Times hefur í gær eftir konu að nafni Marilyn Wayne að hún hafi heyrt kvenmannsrödd hrópa: „Hjálpið mér! Einhver hjálpi mér!” — nóttina sem Natalie Wood drukknaði. Segir Wayne að hún hafi verið stödd í báti á sama lóninu og snekkja þeirra Natalie og Roberts lá við festar. Hún og vinur hennar tóku neyðarópið ekki alvarlega því að þau héldu að það hefði borizt frá einhverri snekkjunni úr gleð- skap eða fagnaði. Heyrðu þau að aðrar raddir kölluðu í myrkrinu: „Við erum að koma.” Ekki vantar glæsileikann né tækninýjungarnar, svo sem System Kalt 3, sem er það allra nýjasta. Alltaf eru þeir frá Nordmende fyrstir með tæknibyltingar til landsins, svo sem Transistor In-line-myndlampa, System Kalt 2 og nú System Kalt 3. Þeir láta ekki að sér hæða Vestur-Þjóðverjar. Þá eru það litsjónvörpin frá Stærð var Tilboðsverfl Staðgreiösluverfl. 20" 44.180“ 10.980.- 9.980.- 22" 42.4977 10.980.- 9.980.- 27" 14,6007 13.950.- 13.250,- Mannskæðar rigningar Úrhcllisrigningar hafa gengið yfir j heimili sín. | vatni. Vegarköflum hefur skolað burt Rio de Janeiro og nágrenni að undan-í Rigningarnar hafa leitt af sér og það jafnvel með bílum og vegfar- förnu og hafa orðið 46 manns að aldur- skriðuföll og flóð. Hafa heilu húsin endum. tila, 23 hafa slasazt og 1250 misst | grafizt undir skriðum eða lent undir I NORDMENDE eru ekki ódýrustu tækin í bænum. Gæðin kosta sitt en verðmunurinn er þó sáralítill og kaupin borga sig. Auk þess bjóðum við mjög góð greiðslukjör, þannig að þetta er ekkert mál: 2000 út og rest á 6 mánuðum. Líttu inn og fáðu þér eitt Það borgar sig , Skipholti 19, Sími 29800. NORDMENDE HAPPDRÆTTI SJALFSTÆÐISFLOK KSINS Dregið á morgun Vinsamlegasf gerið skil í happdrættinu sem allra fyrst. Skrifstofa happdrættisins í Valhöll, Háaleitisbraut 1, sími 82900, verður opin í dag frá kl. 9 til 22 og á morgun frá kl. 9 til 19. Sækjum — Sendum Sækjum — Sendum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.