Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981. 13 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Islenskur ullarfaf naður vekur athygli utan lands sem innan Haustfundur ullariðnaðarins var haldinn fyrir skömmu. Árlega koma á þessum árstíma saman ullarfram- leiðendur og seljendur og bera saman sin plögg. Að þessu sinni þótti for- ráðamönnum tilvalið að bjóða gest- um að haustfundi loknum á tískusýn.- ingu i Hollywood og að sjálfsögðu var tískufatnaðurinn úr ull. Hér var um sömu sýningu að ræða og sýnd var í tengslum við heimsókn forseta íslands til Oslóar og Stokkhólms 1 októbermánuði. „Viðbrögð gesta á tískusýning- unum bæði í Osló og Stokkhólmi voru afar góð,” sagði Jens Pétur Hjaltested hjá Útflutningsmiðstöð iðnaðarins í stuttu spjalli við blaða- mann DV. „Sýningarnar komu mjög á óvart og í Noregi höfðu menn á orði að þeir hefðu ekki átt von á því að sjá svona fínar flíkur frá okkar litla íslandi. Menn hafa sjálfsagt eingöngu átt von á fslensku lopapeysunni og þvi undr- ast fjölbreytt úrval á kvenfatnaði okkar, kjólum, drögtum og kápum,” sagði Jens Pétur. Við landar metum spámenn i eigin landi og dáumst að þessum glæsilega íslenska tískufatnaði, sem fleygt hefur fram á skömmum tíma. Lopa- peysur og skinnkápur hafa reynst skjólgóður fatnaður árum saman og fallegur þar að auki. Úrvalið hefur aukist gífurlega og snið og mynstur uppfylla tiskukröfur nútímans. Hand- og vélprjónaður kvenfatnaður svo sem kjólar, dragtir og peysur úr finna bandi en áður og fleirí litum en hefðbundnum sauðalitum hafa vakið athygli. Má þvi með sanni segja, að íslenskur tiskufatnaður spanni nú yfir allt sviðið, frá sport- fatnaði yfir í glæsileg samkvæmisföt. Myndirnar sem fylgja orðum okkar til frekari skýringar voru tekn- ar á tfskusýningunni í Hollywood á dögunum, að loknum haustfundi ull- ariðnaðarins. -ÞG. | Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamiega sendið okkur þennan svarseftil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaital heimiliskostnaðar i fjolskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis- 1 tæki. 1 Nafn áskrifanda 1--------------------------------------------------------- I i ii .1 Sími Heimili d---------------------- J i Fjöldi heimilisfólks. í Kostnaður í nóvembermánuði 1981. Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. iUpplýsingaseðill ! til samanburðar á heimiliskostnaði Kvenskór Kuldaskór NÝ SENDING AF SPARISKÓM TEKIN UPP í DAG Teg.1002 Litur: svart og hvítt leður Stærðir: 36-40 Verð kr. 310. Teg. 1004 Litur: dökkblátt leður m/gráu Stærðir: 3 1/2 - 7 1/2 Verð kr. 295.- Teg. 1003 Litur: svart og bordo leður Stærðir: 36-40 Verð kr. 320.- Teg.100 Litur: grátt, dökkblátt og dökkbrúnt leður. Stærðir: 3 1/2 - 7 1/2 Verð kr. 330.- sfSs** Teg. 5523 Litur: beige, bordo og dökkblátt leður, loðfóðraðir Stærðir: 3 1/2-7 1/2 Verð kr. 590.- Teg. 452 Litur: drappað leður, loðfóðraðir Stærðir: 3 1/2 - 7 1/2 Verð kr. 599.- Teg. 453 Lhur: drappað leður, loðfóðraðir Stærðir: 3 1/2 - 7 1/2 Verð kr. 599.- Teg. 4407 Litur: beige og bordo rúskinn með nylonstönguðum bol Stærðir: 3 1/2-7 1/2 Verð kr. 520.- a Sendum í póstkröfu V|«u muyaruoy u ® STJÖRNUSKÓBÚDIN Laugavegi 96 — Við hliðina á Stjörnubíói — Sími 23795 Opið laugardag til kl. 16.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.