Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1981, Side 15
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1981. 15 tækifæri til að reyna að skapa annan og betri. Þessir menn eru konur. Með þennan skilning í huga tel ég að kvennaframboð hvar sem er sé róttækt framboð og við sem höfum starfað saman í sumar teljum að rót- tækasta pólitíska aflið í heiminum í dag sé einmitt að frnna í kvenna- eða mannúðarpólitíkinni. Þessi róttækni birtist m.a. í því að farið er að spyrja annarra spurninga en áður. (Reyndar eru þessar spurn- ingar ekki nýjar af nálinni því að kvennahreyfingin i Evrópu og Bandarikjunum fram til 1930—1940 hafði komist að sömu niðurstöðu og við nú.) Nú er spurt um sjálf lífsskilyrðin sem okkur er búin í heiminum. Þess er spurt hvort leyfa eigi endalaust brjáluðum tæknidýrkendum og blindum vísindahyggjumönnum að skipuleggja umhverfi okkar á þann veg sem er hættulegt bæði líkams- og sálarheill manna, umhverfi sem að lokum mun ganga af okkur dauðum ef ekki verður búið að myrka úr okkur lífið á annan og verri hátt áður. Hvað vilja karlmenn? Nú vitum við vel að það er til urm- ull af karlmönnum sem er á sama máli og við (enda þótt þeir af eðli- legum ástæðum skilji ekki kvenna- menningu til fulls) og vill reka ámóta pólitfk. Við teljum samt sem áður heppilegast að við konur fáum að vera í friði fyrir þeim við að móta þessa pólitík fyrst um sinn. Við teljum okkur geta betur dregið fram þá kúgunarþætti sem karlveldið (patriarkatið) hefur mótað og beitir til að halda völdum. Margir þessara kúgunarþátta bitna að sjálfsögðu lika á körlum. En nóg um það í bili, ef ég fer að fara nánar út í hugmynda- fræðina er það efni í aðra grein. Þessar hugleiðingar eru tilorðnar vegna kjallaragreinar Bjargeyjar Elí- asdóttur í DB 14. nóv., daginn sem fjölmenni kvennafundurinn var haldinn á Hótel Borg. Hún aðhyllist það sjónarmið sem ég nefndi fyrst, þ.e. að vandi bæði kvenna og karla verði leystur innan núverandi flokka- kerfis og þá að sjálfsögðu með því að fylkja sér um þann flokk sem hún fylgir, Alþýðubandalagið. Hún' nefnir réttilega að alþýðu- bandalagskonur hafi töluverð áhrif í borgarstjórn Reykjavikur og að þær hafi þar komið mörgu góðu til leiðar, s.s. þvi að reist hafi verið óvenju- mörg dagvistarheimili á yfirstand- andi kjörtímabili, þær séu líka ásamt konum úr samstarfsflokkunum, for- menn mikilvægra nefnda og ráða o.s.frv. Og því spyr hún eitthvað á þá leið, hvers við þurfum framar við, og hvort við séum að lítilsvirða það góða og óeigingjarna starf sem þessar konur hafa unnið? Alltaf hœgt að kippa f spottann Úr því að Bjargey spyr svona er ljóst að hún skilur ekki enn að við teljum karlveldinu ekki ógnað hvað þá heldur að það verði knésett (hvorki í Alþýðubandálaginu né öðrum flokkum) þó að konur „fái” að vinna sæmilega vel að svoköll- uðum „kvennamálum” um lengri eða skemmri tíma. Bæði er að þessi mál sem Alþýðubandalagið nefnir oftast sem dæmi um ágæti núverandi borgarstjórnarmeirihluta rista afar grunnt. Þau eru víðsfjarri því að snerta þann lifsgrundvöll sem tækni- menn eftirstríðsáranna hafa skapað og þá fjötra sem sá sami grundvöllur hneppir allt fólk í. (Nema valdakarl- ana sem þykir svo skelfing gaman að skapa óskapnað ámóta og miðbæinn í Kópavogi og Engihjallahverfíð). Og eins hafa þessar ágætu konur enga tryggingu fyrir því að Sigurjón for- seti eða einhver annar valdakarl kippi ekki í spottann þegar honum þykir nóg komið. Eða hvað gerði ekki Lenín gamli fljótlega eftir rússnesku byltinguna þegar hann hljóp á sig og „leyfði” alveg óvart Alexöndru Koll- oritay að koma í gegn mjög frjáls- lyndri hjúskaparlöggjöf strax árið 1918 þar sem skilnaðir voru leyfðir, kveðið á um fræðslu um getnaðar- varnir ,og frjálsar fóstureyðingar leyfðar. Jú, hann kippti í spottann, karl- anginn og lét búa til nýja hjúskapar- löggjöf þar sem talsvert var dregið í land konum til bölvunar. Siðar kom svo Stalín og bætti um betur og þá þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Hvorki rússneska byltingin né nokkur önnur þjóðfélagsbylting, svo vitað sé, hefur tekið mið af sjónar- miðum kvenna. Samt er það stað- reynd að ævinlega eru konur mjög virkar og duglegar á byltingatímum og vissulega „mega” þær vera með meðan á sjálfri orrahríðinni stendur en þeim er ævinlega sópað af vett- vangi eins fljótt og unnt er. Svipað mynstur er að sjá í umbótaþjóðfélagi okkar. Allt sem léttir konum og börnum lífið svo og öðrum minni- máttar kemst seint og illa í framkvæmd og aldrei er nein trygging fyrir því að ekki verði aftur að þessum aðilum þrengt þegar karl- veldinu hentar. Hvarnig muitu konur beita valdinu? Það ætti því að vera deginum ljós- ara að konur verða að hafa raunveru- leg völd til að ráða yfir og skipuleggja líf sitt og barna sinna á þann veg sem er í samræmi við árþúsunda baráttu mæðra og annarra kvenna fyrir varð- veislu lífsins (lífspólitikinni/kvenna- pólitíkinni). Þá loks hlýtur að linna hinum gamla pólitíska hráskinnaieik sem enn er leikinn með konur. Hvað annað en pólitísk stefna grundvölluð á reynslu og veruleik kvenna getur tryggt þeim þessi völd? Raunveruleg kvennavöld sem ekki verða hrifsuð af þeim eftir hentugleikum og geðþótta karlveldisins sem er fjandsamlegt líf- inu sjálfu? Það er þetta sem við stefnum að. Vissulega er mér ljóst að stéttaand- stæður eru eftir sem áður í fullu gildi en í stéttgreiningu sinni á kapítalísku þjóðfélagi gerði Karl Marx ekki ráð fyrir konum. Þær standa að stórum hluta utan við þá stéttgreiningu. (Ekki meira um það hér, það er líka efni í aðra grein). Nú má vitaskuld hugsa sér að konur myndu beita sínu eigin valda- kerfi (þ.e. valdi sem mótast af lífs- pólitík/kvennapólitík) jafnómannúð- lega og karlveldið gerir og hefur gert frá því að sögur hófust. Því viljum við hins vegar ekki trúa enda þá til lít- ils barist. Það yrði þá a.m.k. í fyrsta sinn í veraldarsögunni sem mæður gengju að því markvisst og meðvitað að upphugsa sem ferlegust drápstæki til að myrða þau börn sem þær sjálf- ar hefðu gengið með, haft á brjósti og fóstrað til manns. Hingað til hafa mæður grátið yfir þeim börnum sínum sem karlveldið hefur hrifsað af þeim i byssu- og sprengjufóður. Stuðningur við flokks- pólitískar konur Ég vil enda þessa grein með því að taka skýrt fram að kvennaframboð hvar sem er á landinu er alls ekki lít- ilsvirðing við þær konur sem vinna innan pólitísku fiokkanna. Það er þvert á móti stuðningur við þær. Við sem höllumst að því að kvennafram- boð sé vænlegasta lausnin fyrir konur núna, óskum öllum konum í póli- tísku starfi og félagsstarfi góðs gengis Þó að við séum ekki sammála fiokka- pólitík þeirra vitum við af reynslu að svo til allar konur sem fara að vinna á pólitískum vettvangi taka upp þau augljósu vandamál kvenna sem hvar- vetna blasa við: Lág laun, léleg vinnuaðstaða, tvö- og þrefalt vinnu- álag, áhyggjur og ábyrgð á heimili, skortur á dagvistarheimilum, ófull- nægjandi skólar o.fi., o.fi. Það eru hins vegar fáir ef nokkrir karlar sem taka þessi mál upp af sjálfsdáðum eða ótilneyddir og virðist þá ekki skipta miklu máli hvort þeir standa til hægri eða vinstri. Að þessu leyti eru þeir sammála og þeir eru sammála um miklu fieira þvert á öll fiokksbönd. Og um eitt eru ákaflega margir þeirra sammála þessa dagana. Að vinna gegn þeim konum sem nú hafa ákveðið að stefna að kvennaframboði í tveimur kaupstöðum. Vonandi eiga miklu fieiri konur í sveitum og kaupstöðum eftir að fara að dæmi Akureyrar- og Reykjavíkurkvenan og bjóða fram sérstaka kvennalista i sveitarstjórnat kosningunum í vor. Ég vil taka það fram að enda þótt stundum sé í grein þessari sagt „við álítum” þá er hér ekki um að ræða túlkun á suimæinun:ii hugmsndum þeirra kvenna er nú hafa ákveðið að b.ióða fram í Reykjavik. bem kunn- ugt er, er verið að vinna að hug- myndafræðilegum grundvelli fyrir það framboð en þær skoðanir sem ég set hér fram hafa mikið verið ræddar og finna mikinn hljómgrunn, bæði hjá þeim konum og mörgum fleiri. Helga Sigurjónsdóttir. „Hvað annað en kvennapólitík, grundvölluð á veruleika kvenna og reynslu þeirra getur tryggt þeim þessi völd. Raunveruleg kvennavöld sem ekki verða hrifsuð af þeim eftir geðþótta eða hentugleikum valdakerfis sem er fjandsamlegt lífinu sjálfu?” segir Helga Sigurjónsdóttir og telur, að kvennaframboð yrði róttækt framboð. Engin pólitík í spilinul Auðvitað fullyrða þessir menn, að engin pólitík hafi verið í spilinu þeg- ar ríkisstjórnarmeirihlutinn í Alþýðu- sambandi íslands ákvað að henda öllum kröfuatriðum verkalýðs- hreyfingarinnar út í hafsauga en gera þess í stað samkomulag um 3.25% kauphækun til vors. Hvað annað? Áttu menn von á öðru en að því yrði haldið áfram? f því sambandi langar mig að orða nokkrar spurningar, sem eru að vefjast fyrir fólki þessa dagana. Skyldi það engin áhrif hafa haft á afstöðu Asmundar Stefánssonar, for- seta ASÍ, að hann á sér alnafna í mið- stjórn Alþýðubandalagsins, sem fékk næstflest atkvæði i miðstjórnarkjöri í kjölfar samningagerðarinnar? Skyldi forsetinn hafa verið reiðubúin til slíkrar samningsgerðar ef flokkur hans hefði staðið utan rikisstjórnar? Halda menn, að formanni Verka- mannasambands íslands hafi þótt hæfa að semja um 3,25% launahækkun til verkafólks í sömu vikunni og gengi var lækkað um 6,5% ef formaður fiokks hans hefði ekki verið ráðherra? Skyldi það engin áhrif hafa haft á afstöðu Björns Þórhallssonar, að honum skyldi hafa hlotnast varafor- setasætið í ASÍ fyrir atbeina ríkis- stjórnarsamstarfsins eins og Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, benti á í ræðu á Landsfundi Sjálfstæðis- flokksins? Auðvitað harðneita allir þessir menn því, að pólitík hafi verið með í spilinu þegar þeir ákváðu án samráðs við samninganefnd ASÍ að henda öllum kjarakröfum sambandsins fyrir björg fyrir 3,25% — en þeim yfirlýsingum trúir enginn maður. Áfangasigur í stjórnmálaályktun flokks- ráðsfundar Alþýðubandalagsins, sem haldinn var á næstu dögum eftir að umræddur samningur var gerður og þar sem forseti ASÍ, Ásmundur Stefánsson, fékk næstflest atkvæöi í miðstjórnarkjöri í þakkarskyni, þá segir, að þetta fyrirkomulag hafi verið áfangasigur. Áfangasigur! Eðvarð Sigurðsson, formaður Dags- brúnar, kallaði samkomulagið frestun á vandanum. Það óbreytta verkafólk, sem jákvæðast heiti velur því, kallar það skipulagt undanhald. Á máli Ásmundar og Alþýðubandalagsins heitir það á- fangasigur að semja um 3,25% kauphækkun í sömu viku og gengi er fellt um 6,5%. Skyldu þeir ætla sér að vinna annan svona áfangasigur í vor? Ætli svarið ráðist af því hvort Alþýðubandalagið situr þá enn i ríkisstjórn? Kjallarinn Sighvatur Björgvinsson Slagorð Alþýðubandalagsins í síðustu kosningum var: Kjörseðillinn er vopn í kjarabaráttunni. Einkunn raunveruleikans er: Ríkisstjórnar- aðild Alþýðubandalagsins er ávisun á lakari lífskjör. Rangur tími AUs kyns viðbárur og afsakanir hafa verið hafðar uppi af ríkis- stjórnarmeirihlutanum í ASl um samkomulagið. M.a. sú viðbára, að tími til aðgerða hafi verið svo óhentugur. Það má rétt vera, en hvenær var það uppgötvað? Hver réði tímasetningunni? Var það ekki ASÍ-forystan sjálf, sem valdi þann samningstima, að ákvarðanir um aðgerðir hlytu að stefna á upphaf vetrar 1981? Ég veit ekki betur. Og var það ekki þessi sama forysta, sem bað verkalýðsfélögin um að afla sér verkfallsheimilda einmitt á þessum sama tíma? Ég veit ekki betur. Hvað um vorið — 15. maí, þegar samningarnir eiga að renna út? Er það hentugri tími til aðgerða? Þegar vertíðinni er lokið! Þegar skrapið stendur yfir hjá togurunum og mörg frystihúsanna myndu fagna því að losna undan launakostnaði á óarðbærasta timanum. Þegar orlofs- tími er að hefjast, skólafólk að koma á vinnumarkaðinn en verkafólkið að búa sig undir sumarleyfi! Heldur há- skólaforystan í ASI, að skóla- krakkarnir séu öflugustu liðs- sveitirnar í verkfallsbaráttu af því að hennar eigin reynsla af slikum á- tökum takmarkast við að sitja á rassinum á göngum og stigum í menntamálaráðuneytinu? Tomas Nielsen sagði um þá á- kvörðun, þegar launuðu sér- fræðingarnir voru leiddir til forystustarfa í ASÍ, að slikt gæti ekki gerst hjá Alþýðusamböndum annarra Norðurlanda. — Svona menn kaupum við, en kjósum ekki, sagði þessi norræni verkalýðsforingi. Nú upplifir íslenzkt alþýðufólk reynsluna af því að hafa kosið sér tölvur á toppinn. Þær tölvur reikna nú og reikna til þess að reyna að færa mönnum heim sanninn um, að undanhald og frestun sé áfangasigur og kyrja þann söng óaflátanlega þótt allur almenningur viti betur. Mesta niðurlæging háskólaforystunnar í ASÍ er þó líklega mynd af henni á- samt texta, sem birtist í Tímanum nýlega. í málgagni Framsóknar- flokksins birtist mynd af forseta og varaforsta ASÍ og undir henni stóð eitthvað á þá leið, að mikill væri nú munurinn á hve miklu betri og skynsamari forysta þeirra fyrir verkalýðshreyfinguna væri en forysta forvera þeirra. Já, Ásmundur og Björn. Hversu miklu er ekki skynsamlegri að mati Framsóknarflokksins forystá ykkar fyirr ASÍ en manna eins og Snorra Jónssonar, Björns Jónssonar, Hannibals Valdimarssonar og annarra „óskynsamra” forystumanna íslenzkrar verkalýðs- hreyfingar á árunum áður! Þvílíkur munur að hafa tölvurnar á toppnum! Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður. Skrifað í skýin eftir JÓHANNES R. SNORRASON BOKMENNTAKYNNING HJÁ EYMUNDSSON EYMUNDSSON Austurstræti 18 Höfundar verða 1 versluninni a sama tíma og árita bækurnar. 1 'il - - 1 Klukkan 3 til 5 í dag mun 1 JÓN SIGURBJÖRNSSON - $ leikari lesa úr eftirtöldum bókum: - j Fimmtán gírar áfram eftir ÍNDRIÐA G. ÞORSTEINSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.