Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Síða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. AGÚST1982.
11
Lokið er vlðað grafa fyrir nýbyggingu Stjórnunarskólans á Tunguvegi 19 A. Konráö Adolphsson er búinn að gera samning við bygginganerktaka um smíði hússins. Og lögfrsðingur
borgarverkfræðings segir að byggingarleyfið verði ekki aftur kailað. íbúamir í næsta nágrenni eru hins vegar æfir vegna byggingarinn ar. DV-mynd Þó.G.
Bygging Stjórnunarskólans mikið hitamál:
íbúamir í næsta nágrenni
æfir vegna byggingarinnar
tbúar við Skógargerði, Tunguveg, undir. Voru þeir að mótmæla bygg- fundi sínum síðastliðinn þriðjudag. Á máliö. Ljóst er að byggingarsaga Konráð Adolphsson, sem rekur
Litlagerði ognokkrir viðSogaveg af- inguStjómunarskólanssemáaðrísa 'þeim fundi var Hjörleifur Kvaran, þessa húss er nokkuð undarleg. DV Stjómunarskólann.
hentu borgarráði nýlega mótmæla- á lóð númer 19 A við Tunguveg. Borg- lögfræðingur borgarverkfræðings, ræddi því við fólk sem skrifaði undir -JGH.
skjal sem sextíu þeirra höfðu skrifað arráð fjallaði síðan um mótmælin á beðinn um aö semja greinargerð um mótmælaskjalið, Hjörleif Kvaran og
Ibúar við Skógargerði:
„Húsið hefur komið
okkur algjöriega
i opna skjöldu”
„Þetta hús hefur komið okkur
aigjörlega í opna skjöldu,” sögðu
íbúar viðSkógargerði, sem DV ræddi
við.
„Að sjálfsögðu erum við ekki á
móti því að byggt verði á lóðinnL En
að reisa slíka byggingu inni í miðju
ibúðarhverfi er gjörsamlega út í
hött. Samkvæmt teikningum sem við
erum með sést að hér ér um þriggja
hæða hús að ræða. Á fyrstu og ann-
arri hæð eru mjög stórir salir, sem
mjög líklega verða notaðir undir
samkvæmi, þegar svo ber undir. Þá
er það mjög mikil röskun að fá hér
stanzlausa umferð fólks á kvöldin.
En skólinn er að mestu með starf-
semi sína á þeim tíma.
Við viljum að byggð verði íbúðar-
hús á lóðinni sem falli inn í um-
hverfið hér. Gætu tvö hús hæglega
komist fyrir á lóðinni. Allir ibúamir
hér í grenndinni eru eindregið á móti
þessu. Skógargerði er til dæmis lítil
gata, nánast botnlangi og hér er
mjög lítil umferð. Hvemig fólk sem
kemur á bílum á eins og fjörutíu
manna námskeið ætlar að finna
stæði fyrir bíla sína er okkur hulin
ráðgáta. Að vísu er gert ráð fyrir að
bílastæði hússins verði um 24 talsins.
En það sést strax að það dugir engan
veginn. Skólinn á því eftir að valda
mikilli röskun hér í hverfinu.” sögðu
íbúar við Skógargerði að lokum um
þessa umdeildu byggingu. -JGH.
Konráð Adolphsson:
„Tómur misskiln-
ingurhjáþeim
sem mótmæltu”
„Þetta er tómur misskilningur allt
saman hjá íbúunum,” sagði Konráð
Adolphsson er DV bar þetta mál und-
irhann.
„Þeir halda að ég ætli aö leigja
salina undir einhver jar skemmtanir,
en það er alrangt. Hugmynd íbúanna
er því úr lausu lofti gripin. Ég tel að
þeir sem skrifuðu undir mótmæla-
skjaliö hafi verið blekktir. Þeim var
talin trú um að hér yrði um tómar
skemmtanir að ræöa. Þeir skrifuðu
undir, en ég bendi á það að það þarf
sérstök leyfi til að halda skemmtanir
útiíbæ.”
— En nú var teikningu þinni hafn-
að árið 1977 á þeirri forsendu að
byggingin væri of stór. Var rökrétt
að leggja síöan fram teikningar af
ennstærrahúsi?
„Mér fannst það alls ekki óeðli-
legt,” sagði Konráð Adolphsson.
-JGH.
Hjörleifur Kvaran, lögf ræðingur borgarverkf ræðings:
„byggingarsaga hússins
MERKILEG 0G FRÓDLEG”
Byggingarsaga þessa húss ermjög
merkileg og á margan hátt fróðleg,”
sagði Hjörieifur Kvaran lögfræðing-
ur borgarverkfræðings um byggingu
Stjómunarskólans. En Hjörleifur
hefur samið greinargerö fyrir borg-
arráð vegna þessa máls.
„Forsaga málsins er sú, að Stjóm-
unarskólinn fékk umrædda lóð í apríl
árið 1975. Teikningar byrjuðu síðan
að berast 1977. Og á fundi Skipulags-
nefndar 21. nóvember sama ár var
teikningunum hafnaö. Gerðu þær ráð
fyrir 2750 rúmmetra húsi. Þá var
einnig gerð athugasemd viö nýting-
arhiutfall byggingarinnar, en það
var 0.5. Teikningunum var sem sagt
hafnað af Skipuiagsnefnd vegna þess
að þær gerðu ráð fyrir of stóm húsi.
Einnig þótti óþjált aö hafa slíka
byggingu í íbúðarhverfi.
Arið 1978 era síðan samþykktir
skiimálar um byggingarlóðina varð-
andi byggingamöguleika á henni. I
marz 1980 bámst síðan nýjar teikn-
ingar af húsinu. Þær voru samþykkt-
ar bæði í Skipulagsnefnd og Bygg-
inganefnd. Það sem er merkilegt við
þær teikningar er stærð byggingar-
innar. Þar er nefnilega gert ráð fyrir
3430 rúmmetra byggingu meö nýt-
ingarhlutfalli 0.96. Svona var þetta
samþykkt og síöan staðfest í borgar-
stjóm. Og það er ljóst að byggingar-
leyfið verður ekki afturkallað,”
sagði H jörleifur Kvaran að lokum.
-JGH.