Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Side 16
16 DV. MIÐVKUDAGUR 25. ÁGUST1982. Spurningin Fylgdist þú með Ljómarallinu? Kári I. Guðmann, forritari hjá KEA: Nei, það gerði ég nú ekki. En hef samt talsverðan áhuga á siíkri keppni. Gaf mér hins vegar bara ekki tíma að þessu sinni. Rúnar örn Marinósson, 12 ára: Já, það gerði ég. Tel að þeir Omar og Jón hafi komið mjög á óvart með því að ná öðru sætinu, þar sem þeir voru á mun kraft- minni bíl en hinir keppendumir. Hrafnhildur Eysteinsdóttir húsmóðir: Mjög lítið. Hef ekki mikið vit á þessu en lit þó á greinar í blöðum um þaö. Fylgist svona með því hverjir sigra. Nei, ég ætla ekki að skella mér í rall þótt ég eigi gamlan og góðan Fíat. Lovisa Christiansen innanhússarki- tekt: Nei, ég fylgdist ekki með því. Hef frekar takmarkaöan áhuga á svona keppni. Magnús Einarsson nemi: Nei, ekki kom. Hef engan sérstakan áhuga á ralli. Maður sér þó hverjir sigra og það dugir. Sigurður Reynir, línumaður hjá RARIK: Já, það gerði ég. Að vísu ekki; nóg. Fylgist ávallt með slíkri keppni. Nei, ég ætla ekki að demba mér út íi þetta. Lesendur Lesendur Lesendur „Eðlilegt er að sam- göngutækin séu þar sem fólkið er” — segir KR. í pistli sínum um Smyril og endastöð hans á Seyðisf irði KR. hringdi: „Vegna ferðalaga útlendinga um landiö hefur það vakið furðu þeirra að Smyrill skuli ekki hafa endastöö við Þorlákshöfn í nágrenni við Stór- Reykjavíkursvæðið. Með fullri virð- ingu fyrir íbúum Austurlands er Seyðisfjörður ekki ákjósanlegasti staðurinn gagnvart samgöngum til meirihluta íbúa landsins. Meirihlut- inn býr á Stór-Reykjavíkursvæðinu, Reykjavik, Reykjanesi og Suður- landi. Væri það því eölilegt aö skipið heföi endastöð á stað eins og Þorlákshöfn. Þar er aðstaöa fyrir skipið og greiðar samgöngur á stærsta þéttbýliskjama landsins. En þessi ákvörðun um að skipið hafi endastöö á Seyðisfirði mun vera vegna þrýstings á stjórnvöld frá Eimskip sem óttaðist að Smyrill tæki vöruflutninga frá sér. Þessi vitleysa hefur þegar kostaö mörg stórslys og valdið undmn í ná- grannalöndunum. Vegna þess hve vegakerfið er lélegt hér á landi geta menn sem ætla sér að ferðast meö skipinu átt von á því að billinn þeirra sé óökufær, er þeir koma til Seyðis- fjarðar. Það er ekki glæsilegt að koma með bilaöan bil til annarra landa. Eöa hvað fyndist mönnum um ef allt utanlandsflugið væri frá Akur- eyri af því að þar er millilandaflug- völlur? Þá geta menn hætt að þvarga um flugvöllinn í Keflavík og leyft varnarliðinu að hafa völlinn út af fyrir sig og allir landsmenn þvældust svo til Akureyrar ef þeir ætluðu að fara til útlanda. Af þessu ættu menn að sjá að eðlilegt er að samgöngu- tækin séu þar sem fólkiö er, en ekki þar sem fámennið er — með fullri virðingu fyrir fámenninu. Með von um úrbætur í næstu ferða- áætlunSmyrils.” „Með fullri virðingu fyrir íbúum Austurlands er Seyðisfjörður ekki ákjósanlegasti staðurinn gagnvart samgöngnm til meirihluta íbúa landsins,” segir KR. m.a. í bréfi sinu varðandi endastöð Smyrils. DROPINN DÝRI 8167—3209 hringdl: krónur! Eg boröa iðulega í mötu- „Ég ferðast mikið um landið og um neytinu hjá Tollstööinni og þar daginn var ég staddur uppi ó Akra- kostar mjólkin aðeins 2 krónur sem nesi og för á góöan veitingastað þar er kostnaðarverð hennar. sem heitir Stillholt. Þar fékk ég frá- Ef fjögurra manna fjölskylda fær bæra þjónustu og mjög góöan mat sér mjóik að drekka ó veitingahúsi Það var rauðspretta sem ég fékk mér þá kostar það 40 krónur fyrir einn og kostaði hún aöeins 70 kr. sem mér litra af mjólk. Þetta er alveg ótrú- finnst ekki mikið. Með þessu fékk ég legt. mér mjólk að drekka. Þetta minnir mig bara á þaö þegar Þegar ég borgaði, var upphæðin 80 að ég var á Spáni í gamla daga. Þá krónur. Eða 10 krónur fyrir 1/4 úr drakk maður romm og kók. En síöan mjólkurlítra. Eg varö alveg undr- uppgötvaði maður að kókið var andi á þessu. Að hugsa sér að einn helmingi dýrara en rommið; þannig peli af mjólk skuli geta kostað 10 aömaður sleppti bara kókinu! LÝSTEFTIR VITNUM Náttúruunnandi skrifar: Eg gæti vel trúaö því að Seðla- Upp á öllum skrattanum getur fólk bankinn myndi veita þeim manni fundið til að láta taka eftir sér. Nú verðlaun sem einhvern tima hefur nýlega létu 29 menn birta nöfin sin í séð einhvern af þessum 29 mót- blöðunum og þóttust vera að mót- mælendum uppi á Amarhóli í þeim mæla byggingu Seðlabankans, vegna tilgangi. þess að hann myndi skemma útsýnið af Arnarhóli. Þaðmá velvera. Enég Eg vil mælast til þess við stjóm er hér um bil viss um að flest af Seðlabankans (ef af byggingunni þessu fólki hefur aldrei upp á Amar- verður) að hafa fallega veitingastofu hól komið til þess að virða fyrir sér á efstu hæðinni þar sem hægt væri að landslagiö eöa að drekka í sig fegurð njóta þjóölegra veitinga og drekka í náttúrunnar. ' sig fegurð náttúmnnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.