Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Side 17
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST1982. 17 Lesendur Lesendur Bréfrttarl kvartar nndan því að bókstaflega engin aðstaða sé á Keflavíkurflug- velll fyrir þá sem annað hvort eru að taka á móti eða kveðja ástvini sina eða kunn- ingja. 6321—9428 hringdi: „Eg get ekki orða bundizt vegna þeirrar „þjónustu” sem gestum flug- vallarins í KeÐavík er boðið upp á. Ég þurfti um daginn að fara með farþega út á Keflavíkurflugvöll. Þetta var um kl. 6 um morguninn og hugðist ég fá mé’r kaffi þegar ég var búinn að kveðja gestinn. Mér láöist að athuga hvenær kaffistofan væri opin áður en ég lagði af stað. Eg spurði konu sem var að vinna þama á vellinum hvenær veitingastofan væri opnuð og tjáöi hún mér að það yrði kl. 6.45. Þama stóð ég og þó ég heföi viljaö biða eftir því að veitingastofan væri opnuö þá var engin aðstaða til þess. I flugstöðinni eru engir stólar, bókstaflega ekki neitt. Nú kemur það oft fyrir að flugvélum seinkar og þurfa þá þeir sem bíða eftir vinum eða kunningjum úr fluginu að hima uppi við vegg eöa þá að sitja á gólfinu. Þetta finnst mér alveg for- kastanlegt. Þennan sama dag um kvöldiö þurfti ég aö sækja frænku mina út á flugvöll. — Flugvélinni seinkaði og ekki var hægt að setjast niður því að veitingastofan var ekki opin. Henni LOK LOK OG LÆS er lokað kl. 19.15. Hvemig stendur á því að ekki er hægt að hafa veitinga- stofuna opna á meðan á flugi stendur? Þaö er þó sjálfsögö þjónusta aö hafa þó ekki væri nema sjálfsala þama þar sem fólk gæti fengið sér hressingu á meöan beðiö er.” ERFIÐIR TÍMAR Hörður Andrésson, 4460—2784, skrifar: Víst eru erfiðir tímar í dag. Loðnan er horfin. Þorskurinn að veröa búinn og verðbólgan 50 ef ekki 60%. Sjávarút- veginum mætti vegna betur. Stein- grímur er ágætis maður en hann verður að athuga að hann er ekki for- maður neinnar frímúrarareglu heldur ráðherra sem verður að segja nei, þegar það á við. Fjölgun fiskiskipa er brjálæðisleg. Er ég þá sammála flokksbróður mínum, Kjartani Jóhannssyni, um aö fjölga ekki skipum nema til endurnýjunar þeirra sem af- skrifuö eru, og smíða skipin hér á landi. Svo þetta að leyfa einum og einum karli aö gera út handónýtan bát sem er ekkert nema tap árum saman. Það á að hafa útgerðina stærri og veiga- meiri. Eg veit um einn kunningja sem keypti trillu. Hann fór hingað og þangað og óð í peningum. Fékk bæði peninga til styrktar útgerðinni og til að geta haldið rekstri áfram og lifði eins og greifi. Þetta er einn af þeim mönn- um sem kann að spila á kerfið. Netaveiðar ætti að leggja niður. Að vera að róa eins og Jesú Kristur, drag- andi úr haf inu oft á tiðum ónýta vöru. Við Islendingar fjárfestum mikiö í virkjunum og er ég hlynntur því að virkja hverja einustu sprænu. Þó verður að hafa einhvern hemil á svo að við sjáum fyrir endann á skuldunum. Einni virkjun mætti sleppa og þá á ég við þessa blessuðu Kröflu. Menn hafa velt því fyrir sér af hverju sú virkjun getur ekki gengið því að nú gengur allt ágætlega í Svartsengi. Þar gegnir öðru máli því þar er gufan þéttari og stabílli. I Kröflu er gufan hins vegar þurrari og þarf því geysilegt magn til þess að vélarnar virki. Nú hafa sjálfstæðismenn unnið mik- inn kosningasigur og á eftir að koma i ljós hvernig þeir standa sig. Þó lízt mér ekki nógu vel á nýja borgarstjór- ann. Ef einhvern tíma hefur verið afturhaldsmaður í Sjálfstæðisflokkn- um þá er það hann Davíð Oddsson. Hann ætlar aö lækka skatta i Reykja- vík og jafnframt því að taka rándýrt land meðfram sjávarsíðunni eignar- námi. Þaö gerir hann ekki peninga- laus. Þaö er klárt mál að þama yrði húsgrunnurinn dýr. Ég er hræddur um að þar sé nokkuð langt niöur á fast land og því tel ég skynsamlegra að byggja uppi við Rauöavatn þótt jaröfræð- ingar segi að þar sé hreyf ing. Ekki skal ég fullyrða að Davíð eigi ekki sínagóðu punkta.Hannsemur að minnsta kosti góð leikrit. En hann ætti ekki aö lækka skatta borgarbúa. Eöa ætlar hann þá að draga saman fram- kvæmdir og minnka atvinnuna? Atvinnuleysi er það versta, sem getur komiö fyrir nokkra þjóð. inga Sigrún, hafðu samband v/ð Birgit og Ritu Rita Marshall skrifar: Við — vinkona mín Birgit Lovquist og ég, eigum í vandræðum með að hafa uppi á vinkonu okkar frá Islandi. Hún heitir Inga Sigrún Qariot og átti síðast þegar við vissum heima í Kötlufelli í Reykjavík. Þar sem að við höfum ekki hugmynd um hversu mikið það kostar að auglýsa í dagblöðum ykkar von- umst við til þess að það hafist upp á henni á þennan hátt. Ri+.a í'arshall I Rt. 1 r,ox 11 1 Accord, N.Y. 12404 USA Au.:ust 9th, 1982 Gentlenen: V/e - nv nirlfriend, Rricit Lovquist, and I have a problen. e are lookinc for a friervi of ours from Iceland* Her nane is Inga Sigrum Clariot, last address vas in Reykjavik, Kotlafield(?). We would like to know how much it would cost to put an advertisenent into your newspaper, hoping we find her this way? V/e do not speak any Icelandic and hope you understand ínglish. V'e would like to put the followúnc; ad into your paper in :lnclish and in Icelandic: INGt SIGRTTV CLARIOT 7A:'~ ^CHTACT HRIGIT OR RITA. Hone to her frorr vou. Very truly yours, \a\ci lpOA0>«aC( w1*8 __________ nmiGiDi sHV ,lutt aö Aðalkennari er Þorgerfnir Gudmundsdóttir (Hogga) nýútskrifabur danskennari frá Rockford College í Bandaríkjunum. 5 vikna námskeið hefst miðvikudaginn 1. sept. Innritun og upplýsingar í síma 76350 kl. 10—12 f.h. og 17—19 e.h. Afhending skírteina að Skúlatúni 4, fjórðu hæð, þriðjudaginn 31. ágúst kl. 17—20 e.h. Líkamsþjálfun Ballettskála Ecklu Scheving SKÚLATÚNI 4 — SÍMAR 25620 og 76350 OPIÐ fimmtudaga til kl. 20.00. Aðra virka daga kl. 17.00. Verið velkomin TINNA hárgreiðslustofa Furugerði 3 sími 32935 Frá grunnskólum Vestmannaeyja Við barnaskóla Vestmannaeyja vantar tvo til þrjá almenna kennara í 6.-7. bekk, einn raun- greinakennara, einn tónmenntakennara, einn sérkennara. Upplýsingar: Eiríkur Guðnason, skólastjóri, sími 98-1944 og 1793. Við Hamarsskóla vantar : einn almennan kennara, einn tónmenntakennara. Uppl.: Halldóra Magnúsdóttir, skólastjóri, súni 98-2644 og 2265. Skólastjórar. Lögtök Eftir kröfu Tollstjórans í Reykjavík og að undan- gengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Söluskatti fyrir apríl, maí og júní 1982, svo og söluskattshækkunum, álögðum 27. maí 1982 — 18. ágúst 1982; vörugjaldi af innlendri framleiðslu fyrir apríl, maí og júní 1982. Borgarfógetaembættið í Reykjavík 19. ágúst 1982

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.