Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1982, Side 19
18 DV. MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGUST1982. íþróttir • ÍHt íþróttir íþrótt íþrótt Sæbjörn Guðmundsson rennir sér inn í markteig Blikanna eftir hornspymu en tókst ekki að koma fstinum á knöttinn, sem þeyttist áfram og rétt framhjá stöng marksins. DV-mynd: S. Dómari í aðalhlutverki í jafntefíi KR og Blikanna — Blikamir vildu fá tvær vítaspymur f leiknum en ekkert var dæmt „Ég vil ekkert segja. Get raunveru- lega ekkert sagt sem formaður aga- nefndar KSÍ nema það að þessi úrslit voru mikil vonbrigði fyrir okkur í Breiðabliki,” sagði Gunnar Steinn Pálsson, liðsstjóri Blikanna, eftir að KR og Breiðablik gerðu jafntefli 1—1 í 1. deild á Laugardalsvelli i gærkvöldi. Tíunda jafntefli KR-inga i deildinni. Vonbrigði Breiðabliks voru mikil í sambandi við að tvívegis var Sigurjón Kristjánsson felldur innan vítateigs KR í siðari hálfleiknum án þess að dómarinn Villi Þór sæi ástæðu til að dæma vítaspyrnu á KR-inga. Jafnvel hörðustu KR-ingum hefði þó ekki kom- ið á óvart þó dæmd hefði verið vita- spyrna í öðru hvoru tilfellanna. En hvað um það, jafntefli varð og voru það .að mörgu leyti réttlát úrslit i all- skemmtilegum ieik á rennblautum og háltun veliinum. Þó verður að viður- kennast að dómarinn var KR-ingum hagstæður. í heild var þetta ekki dagur Villa Þórs. Hann hefur oftast dæmt betur. Eftir þessi úrslit á KR enn mögu- leika á Islandsmeistaratitlinum þó þeir möguleikar hafi minnkað eftir jafntefliö í gær. Breiðablik er hins veg- ar enn í fallhættu með 15 stig úr 16 leikjum. A eftir að leika við Val á Laugardalsvelli og KA í Kópavogi. KR á eftir að leika við IBK í Keflavík og Val á Laugardalsvelli. Skiptist ítvöhorn KR-ingar mættu mjög ákveðnir til leiks. Voru mun sterkara liðið fyrsta hálftímann. Litlu munaöi að þeir skor- uðu strax á 4. mín. Sæbjöm Guð- mundsson skallaði y fir í opnu færi fy rir miðju marki. Þá átti Agúst Már Jóns- son skot sem Guðmundur markvörður Blikanna Ásgeirsson varði og hann varði einnig á síðustu stundu lúmskt skot frá Sæbirni. Þá átti Elias Guö- mundsson opið færi undir lok hálfleiks- ins en var of seinn. Blikamir fengu ekki umtalsverð færi í hálfleiknum. Þó átti Þórarinn Þórhallsson fast skot af löngu færi rétt y fir mark KR. I síöari hálfleik snerist dæmið við. Blikarnir skoruöu strax á 48. mín. Eftir aukaspyrnu fékk Sigurjón Kristjánsson knöttinn rétt utan víta- Laval og Lens með fimm stig Lens sigraði ígærkvöld en Laval gerði jafntefli „Við vorum óheppnir aö vinna ekki St. Etienne á heimavelli. Jafntefli varð 0—0 en sanngjamt hefði verið að Laval hefði unnið með tveggja marka mun. En það má segja að þetta hafi jafnaö sig upp. Við vorum mjög heppnir að sigra Auxerre í 2. umferðinni,” sagði Karl Þórðarson, þegar DV ræddi við hann í gær. „Lens vann góðan sigur á nýliðum Mulhouse á útivelli 1—3. Ég talaöi við Teit Þórðarson nýlega og hann reikn- aði fastlega með að leika gegn Mul- house. Var orðinn góður af meiðslun- um sem þjakað hafa hann aö undan- förnu. Hins vegar veit ég ekki hverjir skoruðu mörkin í Mulhouse né hvort Teitur var þeirra á meðal,” sagði Karl ennfremur. Þá gat hann þess að hann kæmi heim í Evrópuleikinn við Holland 1. september. Talsvert var um óvænt úrslit í 3. um- ferð 1. deildarinnar frönsku í gær- kvöldi. Bordeaux tapaði á heimavelli fyrir Nantes, Bastia sigraöi meistara Monaco 2—0., Paris SG tapaði í París 2—3. Laval og Lens hafa byrjað mjög vel. Eru með fimm stig hvort liö eftir þrjá leiki. Karl var ánægöur með leik Laval-liðsins í gær nema hvað mörkin vantaði. -hsím. Fá grasvöll ef þeir komast í 2. deildina — Siglfirðingar vilja halda íBilly Hodgson Siglfirðiugar eru staðráðnir í þvi að komast upp í 2. deildina í knattspym- unni. Hafa þeir góða möguleika til þess nú þegar fyrsta umferðin í úrslita- keppninni í 3. deildinni er lokið. Þar stendur þó allt og fellur með leikjum liðsins við Víði úr Garði og leikjum Víðis við Tindastól frá Sauðárkróki. Siglfirðingamir hafa haft mjög góðan þjálfara í sumar. Er það Skotinn Billy Hodgson, sem áður var hjá FH. Em þeir ákveðnir í að fá hann aftur næsta sumar — hvort sem þeir verða þá í 2. eða 3. deild. Þá em Siglfirðingamir staðráðnir í að koma sér upp grasvelli og hafa bæjaryfirvöld lofað að gera eitthvað róttækt í þeim málum. Verður það að gerast ef liðiö kemst upp í 2. deildina því þar verða þeir að leika flesta úti- leikina á grasi — annað þekkist varla orðið þar. -klp- teigs. Lék inn í vítateigshomið og skor- aði með föstu lágskoti neðst í markið alveg út við stöng. Fallegt mark og óverjandi fyrir ágætan markvörð KR, Halldór Pálsson. Eftir markið urðu Blikamir at- kvæðamiklir. Sigurður Grétarsson átti skot rétt framhjá af stuttu færi og Sigurjón var felldur innan vítateigs. Ekkert dæmt. Urn miðjan hálfleikinn fóm KR-ingar að koma meira inn í myndina og mikil harka færðist i leik- inn. Helgi Bentsson og Sigurður bókaðir, svo og Guðjón Hilmarsson, KR. Erling Aðalsteinsson kom inn sem varamaður hjá KR og litlu munaði að hann skoraði með sinni fyrstu spymu eftir mistök Olafs Björnssonar. En á 32. mín. jafnaði KR. Sæbjöm tók aukaspyrnu eftir mikið þóf, bókan- ir og fleira svo leikurinn virtist vera aö leysast ^pp. Spyma hans var góð. Inn í teiginn og stóri miðvörðurinn hjá KR, Jósteinn Einarsson, skallaði í mark Blikanna. 1—1 og þau úrslit urðu úrslit leiksins. Sigurjón var aftur felldur inn- .an vitateigs kominn í gegn og hinum megin fékk Guðjón gott færi. Spymti framhjá Blika-markinu. Þokkalegur leikur miöað við aöstæð- ur. Jósteinn, Guðjón og Ottó sterkir í vörn KR, Elías byrjaði vel en hvarf svo að mestu. Sæbjöm beztur. Blikaliöið jafnt en var lengi að ná sér á strik. Sigurjón mjög skemmtilegur í framlin- innu og Vignir Baldursson á miðjunni. Þá mátti ekki líta af Sigurði. Vömin opnaðist stundum illa þrátt fyrir sterk- anleikOlafs. -hsim. Sigur Man. Utd. á Spáni Man. Utd. sigraði i fjögurra liða knattspyraumóti sem lauk á Spáni á laugardag. Til úrslita lék United við Zaragoza, spánska 1. deildarliðið og sigraði 5—3 eftir framlengingu . 3—3 eftir venjulegan leiktíma og þá skor- uðu Wilkins, Birtles og Davies mörk United. Bryan Robson tvö í framleng- ingunni. í keppninni um þriðja sætið léku ungversku liðin MTK og Honved. MTK sigraði 8—0. -hsím. VOIW iE?S8» Þróttur upp í 1. deild í kvöld? Þrótturum nægir jafntefli til að tryggja sér sigur i 2. deild íslandsmótsins i knattspyrau i kvöld. Þá leika Þróttararnir við Reyni frá Sandgerði á Laugardalsvellinum og hefst leikurinn kl. 19. 1 kvöld verða einnig tveir þýðingarmiklir leikir i úrslitakeppninni í 4. deild islandsmótsins. Í Þorlákshöfn leika Þór og Stjarnan, Garðabæ, og á Ólafsfirði leika Leiftur og Valur, Reyðarfirði. -klp- Þeir ensku þyngja viðurlögin — Nú er „rauða spjaldið” á loft fyrir brot sem „það gula” varsýntfyriráður Enska knattspyrausambandið hefur samþykkt nýjar og strangar reglur sem dómurum ber að fara eftir í deildarkeppninni ensku sem byrjar um næstu helgi. Samkvæmt þessum nýju reglum er það „rauða spjaldið” eða brottvísun af leikvelli, ef leikmaður feilir andstæðing, sem er kominn eða hefur komizt i gegn, aftan frá. Þá ber dómaranum einnig að sýna „rauða spjaldið” þeim Ieikmanni sem gripur vilj- andi knöttinn ef hann er að missa hann yfir sig eða framhjá og hann stefnir á samherja. Þessi brot hafa verið mjög algeng í ensku knatt- spyraunni—eins og annars staðar—en tekið vægt á þeim samkvæmt knattspyraulögum. Þeir ensku eru ekki sáttir við hversu vægt er tekið á þessum brotum, og hafa þyngt viðurlögin hjá sér. Hefur það mælzt vel fyrir bæði meðal leikmanna, þjálfara, dómara og annarra. Nú er að eins að bíða og sjá hveraig framkvæmdin á þessu verður í vetur. -klp- Gömlu Framfélag- amiríþjálfaraskéla Þrír gamlir félagar úr handboltanum hjá Fram, sem allir hafa nú snúið sér að þjálfun, sóttu nýlega mikið þjálfaranámskeið í Friburg i Þýzkalandi. Þetta voru þeir Sigurbergur Sigsteinsson, Björg- vin Björgvinsson og Pétur Jóhannsson. Pétur þjálfar Stjörauna í 1. deildinni í vetur, Sigurbergur verður með HK og Björgvin verður að- stoðarþjálfari hjá Stjöraunni i 1. deild. -klp- íslendingar á sigl- ingamótimi erlendis Siglingamenn hafa heldur betur lagt land undir fót í sumar og hafa þeir keppt í fjórum erlendum mótum. Helglna 31. júli til 1. ágúst kepptu þeir Gunnlaugur Jónasson og Jóhannes Ævarsson á Laserbátum í Danmörku. Með sigur af hólmi fór Danmerkurmeistarinn, Erik Jakobsen, en Evrópu- meistarinn frá því í fyrra, Stefan Myralf, sem kom hingað til lands í vor og þjálfaði ísiendinga, varð að láta sér lynda 6. sætið. 5—8. ágúst tóku fjórir Islendingar þátt í Norðurlandamóti á Laser-bátum í Noregi. Lentu þeir í ýmsum erfiðleikum með bátana sem þeir höfðu á leigu, t.d. brotnaöi reiðinn hjá einum þeirra og missti hann þar með af keppni tvisvar sinnum. Á endanum höfnuðu þeir Gunnlaugur Jónasson, Jóhannes Ævarsson, Rúnar Steinsen og Aðalsteinn Loftsson í 85., 93., 97. og 98. sæti af 105 keppendum. A sama tíma og Lasermenn kepptu í Noregi, kepptu félagar þeirra í Topper-heimsmeistaramóti í Englandi. Keppendur voru 80 og hö&iuðu þeir Jón Gunnar Aðils, Guðmundur Kjærnested og Guðmundur Guðmundsson í 40., 42. og 45. sæti. 21.—22. ágúst var fimm piltum boðið til keppni á Topper-bátum í Noregi. Fimm ungir menn slógu til og þágu boðið og höfnuðu þeir félagamir Baldvin Björgvinsson, Guðmundur Guðmundsson, Guð- mundur Kjærnested, Jón Aðils og Ottar Hrafiikels- son í 15., 16., 18., 20. og 28. sæti. DV. MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGUST1982. 19 íþróttir íþróttir íþróttir Eþróttir !K,w'ív»« ,*>»>«*' ** *• «*> «*■> BRÆÐURNIR SKILUÐU ALDREIINN KORTUM — og voru þvf dæmdir úr leik í minningarmótinu á Akureyri ■ Nafnarnir Gunnar Þórðarson og '^Ghmnar Sólnes urðu i tveim efstu sæt- unum í minningarmótinu í golfi um Ingimund Araason sem haldið var á Jaðarsvellinum á Akureyri um helg- ina. Þeir félagar urðu einnig í tveim fýrstu sætunum í fyrsta minningar- mótinu sem haldið var fyrir tveim árum. Gunnar Þórðarson lék 36 holurnar á 159 höggum en Gunnar Sólnes var á 160. Þriðji varð Þórhallur Pálsson, GA, á 163 höggum, en síðan komu þeir Hall- dór Rafnsson, GA, Kjartan L. Pálsson, NK, Sverrir Þorvaldsson, GA, og Jón Aðalsteinsson, GA, á 168 höggum. Bræðurnir Jón Þór og Héðinn Gunnarssynir voru með örugga for- ustu í mótinu eftir fyrri daginn — Jón lék þá á 73 höggum og Héðinn, sem er Akureyrarmeistari í golfi, var á 74 höggum. Allt fór í háaloft hjá þeim síðari daginn — golfleikurinn, skapið Paisley hættir hjá Liverpool — í lok leiktímabilsins Bob Paisley, hinn kunni fram- kvæmdastjóri Liverpool, tilkynnti i gær að hann mundi hætta hjá Liver- pool í lok leiktimabilsins sem nú er að hefjast. Undir stjóra Paisley hefur Liverpool unnið 18 verðlaunagripi, m.a. þrisvar orðið Evrópumeistari og fimm sinnum Englandsmeistari. Paisley er kominn nokkuð á sjötugs- aldur og hefur verið nær hálfa öld hjá Liverpool, fyrst sem leikmaður, síðan þjálfari og að lokum st jóri. Mickey Thomas, landsliðsmaður Wales, er á föram frá Brighton tfl Stoke, sem mun greiða 200 þúsund sterlingspund fyrir Thomas. -hsim. og hvað eina — og endaði það meö því að þeir skiluðu ekki inn skorkortum sínum og voru því sjálfkrafa dæmdir úr keppni. I keppninni með forgjöf varð 14 ára piltur, Olafur Gylfason (Kristjánsson- ar iþróttafréttamanns með meiru) öruggur sigurvegi. Var hann á 139 höggum nettó. Næstir komu Sverrir Þorvaldsson, GA, og Jón Aðalsteins- son, GA, á 148 höggum. Um 60 manns tóku þátt í þessu golf- móti sem fram fór i sannkölluðu „stuttbuxnaveðri”. Mótið fór líka mjög vel fram og verðlaun voru glæsi- leg að vanda, en þau voru gefin af KEA, Taki hf. og Vangi hf.. . -klp-. Víti Breitner og sigur á Fortuna — Stuttgart vann Schalke 2-1 á heimavelli Paul Breitner skoraöi sigurmark Bayern Miinchen gegn Fortuna Diisseldorf i gærkvöid í 2. umferð Bundesligunnar úr vitaspyrnu. ÚrsUt 1—0. Bayern sótti miklu meira í leikn- um en WoUgang Kleff átti frábæran lelk i marki Fortuna. Þeir Kari-Heinz Rumme- nigge og nýUðinn Norbert Nachteigh áttu mjög góðan leik f Uði Bayero. Stuttgart sigraði Schalke 2—1 á heimavelU. Komst í 2—0 og var fyrra markið mikið klaufamark markvarðar Schalke, Norbert Nigbur, á 9. mín. Tyrkinnllyas Tuefecki skor- aði mark Schalke en hann Iék áður með Stutt- gart. Lewis, sá bezti, haltraði í mark - Góður árangur á f rjálsíþróttamóti í Köln Bezti frjálsíþróttamaður heims, bandaríski blökkumaðurinn Carl Lew- is, haltraði af velli eftir 100 m hiaup í Köln um helgina. Tognaði rétt í lokin og varð annar á 10,24 sek. Sigurvegari varð Calvin Smith, USA, á 10,12 sek. — hlaupari sem Lewis hafði sigrað örugglega nokkrum dögum áður í Vestur-Berlín. Hvort Lewis verður lengi frá keppni er ekki vitað á þessu stigi málsins. Mjög góður árangur náðist á þessu frjálsíþróttamóti í Köln. Sebastian Coe sigraði auðveldlega í 800 m og keppti þó gegn nokkrum stórhlaupurum. Helztu úrslit urðu annars þessi. 800 m hlaup 1. Sebastian Coe, Engl. 1:45,10 2. James Robinson, USA, 1:45,74 3. Hans-Peter Wemer, V-Þ. 1:45,97 4. Steve Scott, USA, 1:46,65 Hástökk kvenna 1. UlrikeMeyfarth,V-Þýzk., 1,94 2. Birgitte Holzapfel, V-Þ., 1,88 Þrístökk 1. Willie Banks, USA, 16,82 2. Keith Connor, Engl., 16,70 3. Zhu Zhen-Xia, Kína, 16,66 Hástökk •1. Dwight Stones, USA, 2,28 2. Carlo Thranhardt, V-Þ., 2,28 3. Paul Frommeyer, V-Þýzk., 2,28 4. Jacek Wszola, Póllandi, 2,24 5. Leo Williams, USA, 2,24 6. Dietmar Mögenburg, V-Þ., 2,24 7. Gerd Nagel, V-Þýzkal., 2,20 Langstökk 1. Larry Myricks, USA, 8,30 2. Stanislaw Jaskulka, Póll., 7,69 3. Joachim Busse, V-Þýzk., 7,66 Stangarstökk 1. Giinther Lohre, V-Þýzk., 5,50 2. Vlad. Kozakiewicz, Póll., 5,30 3. Tadeusz Slusarski, Póll., 5,30 4. Peter Vollmer, V-Þýzk. 5,30 Miluhlaup 1. Tom Byers, USA, 3:55,83 2. Sammy Koskei, Kenýa, 3:56,79 3. Amar Brahmia, Alsir, 3:58,17 3000mhlaup 1. Thomas Wessinghage, V-Þ., 7:39,34 2. Bill McChesney, USA, 7:40,19 3. Henry Rono, Kenýa, 7:41,71 400 m grindahlaup 1. David Lee, USA, 48,48 2. Harald Schmid, V-Þýzk., 48,80 3. James King, USA, 49,38 400 m hlaup 1. Bert Cameron, Jamaika, 44,75 2. Mike Paul, Trinidad, 44,88 3. Hartmut Weber, V-Þýzk., 44,99 4. Walter McCoy, USA, 45,00 5. Sunder Nix, USA, 45,75 6. Alberto Juantorena, Kúbu, 45,80 200mhlaup 1. James Butler, USA, 20,47 2. Stanley Floyd, USA, 20,72 3. James Gilkes, Guyana, 20,80 -hsim. Karlsruhe komst í efsta sæti með 1—0 sigri á útivelli. Það var gegn Bochum og Eintracht Frankfurt vann stórsigur á heimavelli á BayerLeverkusen, 5—0. -hsim. Föster beztur íÞýzkalandi Karl-Heinz Föster, varaarmaðurinn sterki hjá Stuttgart og fastamaður í landsliði Vestur-Þýzkalands í knatt- spyrau, var kjörinn bezti knattspyrau- maðtir Þýzkalands á siðasta leiktíma- bili af sérfræðingum knattspyrau- blaðsins Kicker. Blaðið efnir til sliks kjörs á hverju ári. Karl-Heinz hlaut 164 atkvæði. í öðra sæti varð þýzki landsliösmaðurinn hjá Köln, Pierre Littbarski, með 146 at- kvæði. Karl-Heinz Rummenigge, Bayera, fyrirliði þýzka landsliðsins, varð í þriðja sæti með 118 atkvæði. -hsím. Bjarai Bessason Bjarni Bessa afturtilÍR eftiráramót Handknattleikslið ÍR æfir af fullum krafti þessa dagana undir stjóra nýja þjálfarans Gunnlaugs Hjálmarssonar. Verður hann með mjög ungu Iiði í 1. defld karla i vetur en meðalaldur þess er rétt um 21 ár. ÍR-ingarair hafa orðið fyrir mikiiii blóðtöku frá þvi að þeir komu upp úr 2. deildinni í vor. Þeir hafa misst fjóra leikmenn, þá Jens Einarsson til KR. Brynjar Stefánsson tfl Fram, Sigurð Svavarsson til Fram og Guðmund Þórðarson i Stjörnuna. Allt eru þetta leikreyndir menn en ÍR-ingar vonast til að fá einn leik- reyndan og góðan aftur til sin eftir ára- mótin. Það er Bjarai Bessason sem var þeirra aðalmarkaskorari hér um árið. Hann stundar nú nám i Danmörku og leikur þar með HG. Biða ÍR-ingarnir eftir að heyra frá honum og hvort hann komi til þeirra síðar í vetur. -klp- B-keppnin í handknattleik 1985: Norðmenn buðu betur en ísland — Möguleiki á landsleikjum við Júgóslava ífebrúar „Okkur tókst ekki að fá B-keppni heimsmeistarakeppninnar i hand- knattleik 1985. Hún verður háð i Noregi og við vorum einfaldlega felldir á þvi að Norðmenn buðu hagstæðari kjör fyrir þátttökuþjóðiraar. Vissulega von- brigði en ekkert við því að segja,” sagði Jón Erlendsson, varaformaður Handknattleikssambands íslands, þegar DV ræddi við hann i gær. Hann er nýkominn af fundi alþjóðahand- knattleikssambandsins sem hann sat ásamt þeim Júliusi Hafstein, formanni HSt, Araa Araasyni og Þórði Sigurðs- syni. Þátttökuliðum í B-keppninni 1985 verður fjölgað í 16. Þátt tekur eitt lið frá hverri heimsálfu. Að sögn Jóns náöust spennandi verkefni fyrir ís- lenzka landsliðið í handknattleik. Júgóslavar eru reiðubúnir að koma hingað í febrúar næstkomandi og leika hér 17. og 18. febrúar. Þeir verða þá í keppnisferð til V-Þýzkalands, Svíþjóð- ar og Noregs og þarf að ná samkomu- lagi við þessar þjóðir til að fá Slavana hingað. Að því er unnið. Tékkar leika hér í október 1983. Þá koma Hollend- ingar nær örugglega og Sovétmenn hafa lýst áhuga á samskiptum við okk- ur. -hsim. DV —ÁGÚST 1982 CHARLOTTE TESKE, VESTU R-ÞÝZK A HLAUPA STJARNAN HLJÓP Á Póstsendum Iþróttabúðin Borgartúni 20 Sími 28411 Tag. ELITE 2310 Verðkr. 381,00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.