Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1982, Blaðsíða 19
Enska deildakeppnin komin á fulla ferð:
Margir frægir kappari
hafa skipt um félög
Heil umferö veröur í 1. deildinni ensku i
knattspyrnunni nú í vikunni. Sjö leikir i
kvöld og fjórir á morgun. Mikiö hefur veriö
nm að leikmenn hafi skipt um félög i sumar.
Reyndar misstu 500 knattspyrnumenn vinnu
sina hjá hinum ýmsu félögum i deildakeppn-
inni. Aöeins helmingur þeirra, eða 250, hafa
komist að hjá öðrum liðum. Atvinnuleysi
breska knattspyrnumanna er því orðið
mikið vandamál. Meira en hjá flestum öðr-
um stéttum á Bretlandseyjum og er þó
ástandið víða mjög slæmt.
Við förum hér á eftir yfir helstu
breytingar hjá félögunum í 1. deild en viö
skulum fyrst líta á leikina í kvöld og á
morgun.
Þriðjudagur 31. ágúst.
Arsenal-Norwich
l Birmingham-Liverpool
Everton-Aston Villa
Ipswich-Tottenham
LutonTown-West Ham
1 Southampton-Watford
, Swansea-Coventry
Miðvikudagur 1. september.
I Man. City-Stoke
Nottm. Forest-Man. Utd.
Sunderland-Notts County
West B romwich-B righton
Lítið hefur veriö um stórsölur í sumar
i nema helst hjá Arsenal en þá eru það helstu
‘ hreyfingar.
Arsenal
Nýir leikmenn eru Tony Woodcock frá
| Köln í Vestur-Þýskalandi og Lee Chapmann
frá Stoke. Nefnd enska knattspymusam-
bandsins hefur dæmt Arsenal til að greiða
, Stoke 500 þúsund sterlingspund fyrir Chap-
mann. Vladimir Petrovic, júgóslavneski
, landsliðsmaðurinn, sem Arsenal haföi gert
samning við, kemur ekki til liösins á þessu
\ ári. Arsenal hefur engan leikmann látiö frá
sér.
Aston Villa
Enginn nýr leikmaður en líkur á að Steve
I Foster, enski landsliösmaðurinn, verði
, keyptur frá Brighton. Nokkrir hafa farið.
I Terry Bullivant til Charlton, Mark Kendall
l til Northampton, Ivor Linton til Peterbro.
' Líklegt að Ken-McNaught, skoski landsliðs-
| maðurinn, fari til Birmingham.
Birmingham
Nýir leikmenn Jan Blyth frá Coventry,
Jim Hagan frá sama félagi og Kevin
(Summerfield frá WBA. Colin Todd farinn til
, Forest.
Brighton
Neil Smillie nýr frá C. Palace. Farnir.
' Paul Clarke til Southampton og Gary Willi-
| ams til Palace. Auk Fosters er líklegt að
Mick Robinson verði seldur.
Coventry
Nýir leikmenn engir en nokkrir farnir.
I David Barnes til Ipswich, Jim Blyth til
John McGovern með Evrópubikarinn sem
fyrirliði Nottingham Forest. Orðinn leik-
maður og stjóri h já Bolton.
Joe Jordan, skozki landsliðsmaðurinn,
kominn til Southampton frá AM Milanó.
Birmingham, PeterBodak til Man. Utd. Jim
Hagan til Birmingham og Rudy Keiser,
Hoilendingur, til Nice í Frakklandi.
Everton
Nýir David Johnson og Kevin Sheddy frá
Liverpool. Báðir léku með Everton í Watford
á laugardag. Þá er Andy King kominn aftur
frá WBA. Famir. Mick Lyons til Sheff. Wed.
— fyrirliði mörg undanfarin ár — Peter
Eastoe til WBA, Joe McBride til Rotherham
og Alan Biley til Portsmouth.
Ipswich
David Barnes eini nýi leikmaðurinn.
Arnold Miihren farinn til Man. Utd. Allan
Hunter til Colchester, svo og Kevin Beattie.
Stjórinn Bobby Robson farinn. Landsliðs-
þjálfari Englands. Bobby Ferguson, sem
var 11 ár með Robson hjá félaginu nú stjóri.
Liverpool
David Hodgson keyptur fyrir 450 þúsund
sterlingspund frá Middlesbrough. Einnig
John McGregor frá Queens Park í Glasgow.
Johnson og Sheedy seldir.
Luton Town
Nýtt liö í 1. deild óg hefur fengið Billy
Kellock frá Peterbro og Paul Walsh frá
Charlton. Steve White fór í staðinn til Charl-
ton.
Manchester City
Nýir. David Cross frá West Ham (135 þús-
und pund samkvæmt úrskurði) og Graham
Baker frá Southampton. Hins vegar er
Trevor Francis farinn til Italíu, til
Sampdoria, Genúaliösins, sem er ríkasta
félag Italíu. Meira aö segja efnaðra en
Juventus. Félagið keypti einnig Liam Brady
frá Juventus.
Manchester United
Auk Miihren og Bodak er Peter Beardsley
kominn frá Vancouver. Áður Carlisle. Farn-
ir. Nikolai Jovanovic heim til Júgóslaviu.
Tom Sloan til Chester og Paddy Roche, írski
Jandsliðsmarkvörðurinn, til Brentford. Þá
er talið líklegt að Gary Birtles verði seldur
til Forest f yrir 250 þúsund sterlingspund.
Norwich City
Nýtt lið í 1. deild. Enginn nýr en famir
John McDowell til Bristol Rovers og Drazen
Muzinic aftur til J úgósla víu.
Nottingham Forest
Colin Todd eini nýi leikmaðurinn auk
markvarðar frá Hollandi. Hans Van
Breukelen. Hann er hér með hollenska
landsliðinu. Peter Shilton farinn til
Southampton, John McGovern, fyrirliði,
orðinn stjóri Bolton, og Jiirgen Röber seldur
til Bayer Leverkusen.
Notts County
Engar breytingar. Enginn keyptur eða
seldur.
Southampton
Peter Sholton kominn frá Forest, Joe i
Jordan frá AC Milano, Dennis Rofe frá
Chelsea og Clark frá Brighton. Kevin
Keegan farinn til Newcastle, Baker til Man.
City.
Stoke
Stoke hefur fengið George Berry frá * 1
Ulfunum. Chapmann farinn til Arsenal og
Dennis Smith til Y ork.
Sunderland
Nýr. Ian Atkins frá Shrewsbury. Farnir.
Kevin Amott til Sheff. Utd, Alan Brown til
Shrewsbury og Tom Ritchie til Bristol City á
ný. Sagt aö Alan Durban, stjóri Sunderland,
hafi mikinn áhuga á Robinson, Brighton.
Swansea City
Enginn nýr leikmaður en David Stewart
farinn til Hong Kong.
Tottenham
Gary Mabbutt frá Bristol Rovers og
Richard Cook frá áhugamannaliðinu
Enfield. Nýir leikmenn. Osvaldo Ardiles far-
inn til Parísar, John Cooper til Halsingborg,
Paul Wilkinstil C. Palace.
Watford
Nýtt lið í 1. deild og hefur ekki fengið nýja
leikmenn. Elton John vill gefa þeim leik-
mönnum sem unnu sætið í 1. deild í fyrsta
sinn i sögu félagsins tækifæri til að sanna
getusinail.deild.
West Bromwich
Peter Eastoe nýr. John Wile, fyrirliði í
mörg ár, orðinn stjóri og leikmaður hjá Old-
ham. Summerfield farinn til Birmingham og
King til Everton auk þess, sem Ian
Benjaminfórtil Peterbrough.
West Ham ,
Sandy Clark frá Airdrie á Skotlandi nýr.
Cross farinn til Man. City og Ray Houghton
til Fulham. hsím.
John Wfle, miðvöröurinn sterki hjá WBA o|
fyrirliði um langt árabfl,orðinn stjóri of
leikmaður hjá Oldbam.
Sjö atvinnumenn leika við
HoHand á Laugardalsvelfi
—og Þorsteinn, Trausti, Örn og Marteinn hljóta að skipa hinar fjórar stöðurnar
íslenzku landsliðsmennirnir sem
leika við Holland í Evrópukeppni A-
landsliða á Laugardalsvelli á miðviku-
dag, æfðu í gær á Laugardalsvellinum.
Leikurinn á Laugardals velli hefst kl.
18.30 og á hádegi í dag hófst forsala aö-
göngumiða við Utvegsbankann. Það
virðist frekar einfalt að spá í hvemig
byrjunarlið Islands verður. Spá DV er
þessi. Þorsteinn, Trausti, Öm, Sævar,
Marteinn, Janus, Atli, Pétur, Karl,
Amór og Lárus.
hsím. DV-mynd S.
Þór þarf aðeins eitt stig
til að komast í 1. deild
— sigraði Fylki 2-0 á Laugardalsvelli f gærkvöldi
Allir strákamir, sem leika erlendis,
vom þá komnir heim en í ísleuzka
landsliðshópnum era s jö leikmenn sem
leika með erlendum liðum.
I dag verður skýrt frá því hvaða 11
leikmenn hefja leikinn. Á myndinni að
ofan eru frá vinstri Helgi Daníelsson,
formaður landsliösnefndar, Öm Osk-
arsson, Omar Torfason, Pétur Orm-
slev, Karl Þórðarson, Trausti Haralds-.
son, Guðmundur Baldursson, Sigurður
Lárusson, Amór Guðjohnsen, Viðar
Halldórsson, Marteinn Geirsson, fyrir-
liði, Gunnar Gíslason, Sævar Jónsson,
Þorsteinn Bjamason, Lárus Guð-
mundsson, Atli Eðvaldsson og Janus
Guðlaugsson.
íþróttir
„Það má eitthvað mikið fara
úrskeiðis hjá okkur úr þessu ef við
eigum ekki að komast upp í 1. deildina.
Við þurf um ekki nema eitt stig úr þeim
tveim leikjum sem við eigum eftir til
aö ná því takmarki,” sagði hetja Þórs
frá Akureyri, Guðjón Guðmundsson,
eftir sigur Þórs yfir Fylki í 2. deild
Islandsmótsins í knattspymu á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi.
Þórsarar sigruðu í þeim leik 2:0 og
sá Guðjón, sem nú er búsettur í
Hafnarfirði og mun leika með FH í 1.
deildinni í handboltanum í vetur, um
að skora bæði mörk Þórs í leiknum.
Gerði Guðjón þau bæði í fyrri hálf-
leiknum og var vel að þeim staðið hjá
honum og félögum hans.
Þór á tvo leiki eftir í deildinni — við
Þrótt í Reykjavík og Skallagrím á
Akureyri — og þarf ekki nema eitt stig
úr þeim til að komast aftur upp í 1.
deild. Er liðið í mikilli sókn núna og
ótrúlegt að það haf i þaö ekki af.
Staöan hjá Fylki er allt annað en
glæsileg eftir þetta tap sem var það
fimmta í 16 leikjum í 2. deildinni í
sumar — en þar hefur liðið reyndar
ekki unnið nema einn leik. Stendur
Fylkir nú í botnslagnum ásamt
Skallagrími og Þrótti Neskaupstað og
ekki séð hvernig sá slagur endar.
-klp-
Gulldrengir frá Njarð-
vík sigruðu í Danmörku
á miklu handknattleiksmóti sem haldið var í Dronninglund
Handknattleikspiltar úr Njarðvík, 16
ára og yngri, sigraðu í móti sem haldið
var í Dronninglund i Danmörku fyrir
skömmu en þátttakendur vora frá
Norðurlöndunum og Þýzkalandi.
I þeirra aldursflokki, „Herrer
junior” eins og Danir nefndu flokkinn,
var keppt í tveimur riðlum frá fimm
þjóðum. Njarðvíkingarnir mættu fyrst
þýzka liðinu Nieder Eschbaek frá
Frankfurt og sigruöu það með miklum
yfirburðum. Næst lögðu þeir danskinn
að velli, Arhus með 17 mörkum gegn 6.
Þá mættu þeir öðru þýzku liði, öspel
Kley, en þar gekk ekki eins vel í fyrst-
unni og í fyrri leikjunum, en tókst þó að
lokum að merja sigur, 13:11, eftir að
hafa fengið á sig 8 víti gegn einu.
I fjögurra liða úrshtunum byrjuöu
þeir á því að sigra Wellesee, þýzkt lið
meö 15:9, eftir að hafa verið undir í
byrjun, 2:5. Síðan léku þeir aftur við
öspel Kley sem fylgdi þeim í úrslitin
og nú var róðurinn léttari, 17:6. Allir
höfðu leikirnir farið fram úti á gras-
völlum en úrslitaleikurinn við sænska
liðið Burlöy SS var spilaöur innanhúss,
í íþróttahöllinni. Njarövíkingar áttu
hug og hjörtu næstum allra áhorfenda
og sigruðu með 19:7. Dönsku strák-
amir voru svo kátir að þeir komu
hlaupandi með gosdrykkjakassa og
gáfu sigurvegurunum.
Svíamir höfðu lagt mikla áherslu á
að sigra í þessum leik. Vildu ekki hafa
sína menn í Norðurlandaliöinu gegn
Þjóðverjunum, en Njarðvíkingar voru
hvergi smeykir svo uppistaðan í NL-
liðinu var frá þeim, — og úrslitin uröu
12:11 fyrir Norðurlöndin.
Fyrir tveimur árum unnu þessir
Njarðvíkurpiltar sams konar mót í
Dronninglund með yfirburðum og voru
þá nefndir „Verdensmeister” og þeir
hafa eiginlega varið þann titil þótt
einum aldursflokki ofar sé. Líklega
fara þeir aftur út að tveimur árum
liönum, því auk blóma sem þeim vora
afhent við heimkomuna beið þeirra
símskeyti og 5 þúsund króna ávísun til
næstu ferðar, frá þeim hjónunum,
Guörúnu Stefánsdóttur og Þormari
Guðjónssyni, og þar stóð. „Til
hamingju með gulldrengina. Þama
hafa hendur staðið fram úr ermum
undirgóðristjórn.”
Fararstjórar voru þau hjónin Olafur
Thordersen og Guðný Jónsdóttir, en
Olafur hefur annast þjálfun piltanna
um margra ára skeiö með frábærum
árangri.
Að sigurlaunum fengu piltamir
töskur, verðlaunapeninga, viöurkenn-
ingarskjal og kristalsvasa með áletr-
un. Auk þess fjár sem þeir öfluðu sjáif-
ir meöýmisskonar sölu þar sem for-
eldrar réttu hjálparhönd, þá voru þeir
styrktir af Lionsklúbbi Njarðvíkur,
Sparisjóðnum í Njarðvík og Njarðvík-
urbæ.
Að sögn þeirra hjónanna var
frammistaða og framkoma piltanna tii
hreinnar fyrirmyndar og bæ þeirra og
þjóö til mikils sóma. Þeir fóru til Dan-
merkur viku fyrir keppnina og æfðu
daglega á velli sem Þorsteinn Máni
fann fyrir þá á hentugum stað. Veðrið
var ávallt hið fegursta og allur
aðbúnaöur mjög góður svo og fæðið.
-emm.
Fyrsti Evrópuleikur ís-
lands 21 árs landsliða
—verður í Keflavík kl. 18.30 í dag. Sterkt lið Islands
„Jú, ég er búinn að velja islenzka
landsliðið, leikmenn 21 árs og yngri,
sem leikur við Holland í Keflavik í dag
í Evrópukeppninni, en þetta er í fyrsta
sinn, sem ísland tekur þátt í þessari
keppni. Hún nýtur mikilla vinsælda er-
lendis. Þar leika framtíðarmenn þjóð-
anna. Það hefur verið í nógu að snúast
í dag, æfingar hjá báðum landsliðum
okkar, en Guðni Kjartansson, fyrrum
landsliðsþjálfari, er mér til að aðstoð-
ar með yngra liðið,” sagði Jóhannes
Atlason landsliðsþjálfari þegar DV
ræddi við hann í gærkvöld.
Evrópuleikur Islands og Hollands
hefst kl. 18.30 á grasvellinum í
Keflavík í dag. Byrjunarlið Islands
verður þannig skipað. ögmundur
-Kristinsson, Víking, Hafþór Sveinjóns-
son, Fram, Ömar Rafnsson, UBK,
Olafur Bjömsson, UBK, fyrirliði, Er-.
lingur Kristjánsson, KA, Jón Gunnar
Hópferð til
Akureyrar
Knattspyrnudeild Víkings hefur
ákveðið að efna til hópferðar til Akur-
eyrar á laugardag, 4. september, en þá
leika Víkingar við KA í 1. deild á Akur-
eyri. Farið verður með Arnarflugi á
hádegi á laugardag. Þeir sem hafa hug
á að taka þátt í hópferðinni þurfa að
láta innrita sig fyrir miðvikudagskvöld
í félagsheimili Vikings. Leikurinn á
Akureyri hefst kl. 14.
Staðan
2. DEILD
0:2
4 1 25:7 26
7 2 32:15 21
6 4 18:20 18
3 6 21:15 17
5 6 20:19 15
4 6 22:25 14
2 8 21:25 14
10 5 12:18 12
4 8 16:26 12
3 9 7:23 11
Staðan í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu eftir leikinn í gærkvöldi:
Fylkir—Þór
Þróttur R. 16 11
Þór Ak. 16 7
FH 16 6
Reynir S. 16 7
Völsungur 16 5
Njarðvík 16 5
Einherji 16 6
Fylkir 16 1
Skallagrimur 16 4
Þróttur N. 16 4
Leikirnir sem eftir era:
Um næstu helgi:
Völsungur—Fylkir
Þróttur N—FH
Skallagrímur—Einherji
Njarðvík—Reynir S
Þróttur R—Þór Ak.
Umaðrahelgi: v
Fylkir—Þróttur R.
FH—Völsungur
Reynir S—Þróttur N
Einherji—Njarðvík
Þór Ak-Skallagrimur
-klp-
Bergs, Val, Sigurjón Kristjánsson,
UBK, Ragnar Margeirsson, IBK, Aðal-
steinn Aðalsteinsson, Víking, Sigurður
Grétarsson, UBK, og Oli Þór Magnús-
son, IBK. Varamenn verða Friðrik
Friðriksson, Fram, Þorsteinn Þor-
steinsson, Fram, Trausti ömarsson,
UBK, Helgi Bentsson, UBK, og Valur
Valsson.Val.
hsim.
Holienzku landsliðsmennirnir æfðu á Laugardalsvelli í gær. Fannst hrottalega
kalt. „Græt það ekki,” sagði Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari. Á myndinni að
ofan era tveir af yngri leikmönnum Hollands. DV-mynd S.
Heimsmet í bodhlaupi
Bob Roggy, US A, kastaði spjóti 95,80 m.
Brezk sveit setti nýtt heimsmet i
4x800 m hlaupi á móti á Crystal Palace
leikvanginum í Lundúnum i gær. Hljóp
á 7:03,89 min.en eldra heimsmetið átti
sovézkt sveit, 7:08,1 min., sett fyrir
fjórum árum. Mikil bæting Bretanna.
Peter EUiott hljóp fyrsta sprett á
1:48,0, Garry Cook næsta á 1:47,4,
Steve Cram þann þriðja á 1:44,5 og
Sebastian Coe, heimsmethafinn í 800
m, lokasprettinn á 1:44,0 min. Glæsi-
legur árangur og ólympiumeistarinn i
800 m, Steve Ovett, ekki með. Miklir
hlauparar, Bretar.
Að öðra leyti var árangur ekkert sér-
stakur á mótinu, nema í kringlukasti.
John PoweU, USA, sigraði með 68,32
m. Luis DeUs, Kúbu, annar með 68,10.
Á frjálsíþróttamóti i Stuttgart á
sunnudag kastaði Bob Roggy, USA,
spjóti 95,80 m. Bezti árangur i ár og
annar frá upphafi. Aðeins heimsmet
Ungverjans Ferenc Paragi betra, 96,72
m. Árangur sem Ungverjinn hefur
aldrei komizt nálægt síðar.
hsim.
Fremri röð frá vinstri: Hreiðar Hreiðarson, Reynir Kristjánsson, Ölafur Ó. Thordersen fyrirliði
Kristinn Einarsson, Guðbjörn Jóhannesson, ómar Ellertsson.
Aftari röð frá v. Ólafur Thordersen þjálfari, Birgir Sanders, Jón Magnússon, Guðjón Hilmarsson,
Þórður Jörgen Ólafsson, Teitur Örlygsson, Guðný Thordersen fararstjóri.