Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1982, Blaðsíða 28
28
DV. ÞRIÐJUDAGUR31. AGÚST1982.
Andlát
Jakob V. Hafstein lögfræöingur lést 24.
ágúst. Hann fæddist á Akureyri 8.
ofttóber 1914. Sonur hjónanna Þórunn-
ar og Júlíusar Havsteen. Hann fluttist
ungur með foreldrum sínum til
Húsavíkur. Jakob hafði forustu um
stofnun íþróttafélagsins Völsungs og
var gerður heiðursfélagi þess á 50 ára
afmæli þess 1967. Hann átti sæti í
stjórn Varðar um árabil og var rit-
stjóri 50 ára afmælisrits Varðar. Hann
átti einnig sæti í stjóm félags sjálf-
stæðismanna í austurbæ og Norður-
mýri. Hann var einnig meðlimur full-
trúaráðs sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík. Jakob var í MA kvartettinum sem
um nokkur ár hélt fjölda konserta um
landallt. Eftirlifandi eiginkona Jakobs
er Bima Hafstein, eignuðust þau 3
börn. Utför Jakobs verður gerð frá
Dómkirkjunni ídag kl. 15.
Margrét Steinsdóttir, Langholtsvegi 3,
lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 28.
ágúst.
Jens Guðjón Jensson, er andaöist
fimmtudaginn 26. ágúst, verður jarð-
sunginn frá Langholtskirkju miðviku-
daginn 1. sept. kl. 13.30.
Gunnlaugur Ágúst Jónsson bíla-
kiæðningamaður, Laugateig 8, frá
Skógi á Rauðasandi, verður jarösung-
inn frá Fossvogskirkju föstudaginn 3.
sept. kl. 15.
Ásta Jónsdóttir frá Laugabóli verður
jarðsett í heimagrafreit að Laugabóli
laugardaginn 4. sept. Athöfnin hefst
meö húskveðju kl. 14.
Június G. Ingvarsson frá Kálfholti, til
heimilis aö Tryggvagötu 8b Selfossi,
lést í sjúkrahúsi Suðurlands 28. ágúst.
Jaröarförin fer fram laugardaginn 4.
september kl. 14 frá Selfosskirkju.
Ingimundur Þorgeir Þórarinsson,
Túngötu 16 Patreksfirði, lést að heimili
sinu 25. ágúst. Jarðsett verður frá
Patreksfjarðarkirkju fimmtudaginn 2.
september kl. 14.
Þorlákur Guðjónsson matsveinn,
Bmnngötu 12, Isafirði, sem lést 25._
ágúst, verður jarðsettur frá Isa-
fjarðarkirkju miðvikudaginn 1.
september kl. 14.
Kristin Sveinsdóttir, Gnoðarvogi38, er
lést 24. ágúst, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. sept.
kl. 15.
Eyþóra Thorarensen er látin.
Sigurjón Á. Sigurðsson, Vífilsgötu 24,
lést í Landspítalanum aðfaranótt 28.
ágúst.
Jón Sigurðsson rennismiður, Heiðar-
gerði 17 Reykjavík, er látinn.
Karl Eðvarð Benediktsson, Skarðs-
braut 13 Akranesi, lést í Borgarspítal-
anum 28. ágúst.
Oliver Guðmundsson, Ferjubakka 10,
lést í Landakotsspítala 29. ágúst.
Jóhann Eiríksson frá Þönglaskála viö
Hofsós andaðist 29. ágúst.
Sigríður Jakobsdóttir, sem lést á Elli-
heimilinu Grund 21. ágúst, veröur
jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 1. sept. kl. 16.30.
íjjærkvöldi [ í gærkvöidí
BEST AÐ GLEYMA
Dagskrá sjónvarpsins lauk í gær-
kvöldi með þætti um minniö, hvað
við munum og hverju við gleymum.
Að þeim þætti frátöldum er bezt að
gleyma dagskrárþáttum kvöldsins.
Þar var fátt, sem markar tímamót.
Fréttir voru rólegar. Fátt er um
stórtíöindin og því byggt á erlendu
fréttunum. Það er ágætt í bland, en
viðkunnanlegra er þó aö byrja á
helstu innlendu tíðindunum í frétta-
tímanum, nema um raunverulega
erlenda stórviðburði sé að ræða.
Iþróttaþátturinn var með hefð-
bundnu sniði og á eftir honum fylgdi
breskt sjónvarpsleikrit. Það átti að
sýna lýðræðiö í spéspegli og hefur
kannski gert það. Eg átti erfitt með
mig. Aðeins skylduræknin fékk mig
til þess að sitja framan við tækið.
Ég las það í sjónvarpskynningu
DV í gær að aðalleikkonan heföi
fengið lofsamleg ummæli fyrir leik
sinn og það kann að hafa verið rétt-
mætt. Efni þáttarins var líka hrósað
og sýnir það enn að smekkurinn er
misjafn sem betur fer.
Þá er dagskrá ríkisútvarpsins var
úti, freistaðist rýnir til þess að velja
vídeorásina. Dagskrárhöfundar þar
fóru ekki mildari höndum um hann,
þannig að tækið fékk hvíldina.
Jónas Haraldsson
Tilkynningar
Miövikudaginn 1. september ki. 20.30
veröur haldinn fundur á Hótel Borg.
Tilgangur fundarins er aö: 1. Mótmæla
þeirri stórfelldu kjaraskerðingu sem borgara-
stétt landsins dembir yfir verkafólk þessa
dagana. 2. Mótmæla því að efnahagsvandinn
sé til orðinn vegna hamslausrar eyöslu verka-
fólks á fjármunum þjóðarinnar, eins og látiði
er í veðri vaka. 3. Benda á þá staðreynd að
verkafólk ber enga ábyrgð á kreppu
auðvaldsins. 4. Afhjúpa núverandi verkalýðs-
forystu sem stéttarsamvinnumenn og svik
þeirra við hagsmuni verkalýðsstéttarinnar. 5.
Sameina verkafólk undir merkjum baráttu
þess gegn árásum auðvaldsins á kjör þeirra:
Kjörorð fundarins eru: Látum auðvaldið
borga kreppuna og byggjum hreyfbigu gegn
kjaraskerðingu.
Frumkvæðishópurinn
Gunnar Gunnarsson, Dagsbrún, Anna
Ingólfsdóttir, VR, Þorvaldur Þorvaldsson,
TR, Þröstur Jensson, Iðju, Birgir Ævarsson,
INSI, Margrét Þorvaldsdóttir, Sókn, Jón Á.
Gunnlaugsson, Dagsbrún, Asta Jónsdóttir,
VR.
Sumarblað
Æskunnar
Ot er komið júlí-ágúst blað Æskunnar, 58
síður. Meðai efnis er viðtal við Kötlu
Manú;Viltu verða skiptinemi?; Rauði Kross
Islands: Hvað getum við gert?, Alþjóðlegt
samstarf, Framkvæmdastjóri RKI; Fimmta
ferð Sindbaðs farmanns; „Hann bað mig um
að senda sér gallabuxur, Rósa Harðardóttir
tekin tali: Bama- og unglingabækur,
Fjölskylduþáttur í umsjá kirkjumálanefndar
Bandalags kvenna í Reykjavík: Hvert
stefnir? eftir Rögnu Jónsdóttur; Litli sólar-
geislinn; Laugardalurinn í Reykjavík;
Norway Cup, um unglinga í fimleikum, eftir
Sigurð H. Þorsteinsson; Póstsaga — afmæli,
eftir Sigurð H. Þorsteinsson, NM unglingar í
fimleikum 1982; Æfir fimm sinnum í viku,
viðtal við Kristínu Gísladóttur; Stjörnur;
Skátaopnan; Mjallhvít, bamasjónleikur;
Heiiabrot, Popp músík, í umsjón Jens
Guðmundsonar, ævintýri; Bréfaviðskipti; Ný
frímerki; Grænland; Bamahjal; Skrýtlur o.
m. fl. Ritstjóri er Grímur Engilberts.
Merkjasöludagar
Hjálpræðishersins
Undanfarin ár hafa Islendingar sýnt Hjálp-
ræðishemum mikið traust og mikia vinsemd
með því að kaupa blómamerki hans, ár eftir
ár. I ár verða seld merki 1. —3. september og
ágóðinn /ennur til vetrarstarfsemi Hjálp-
ræðishersins og starfs meöal barna og ungl-
inga. Vinsamlegast styrkið starfsemina.
ROKK í REYKJAVÍK
„Rokk í Reykjavík"
á myndbandi
Nú hefur Hugrenningur sf. gefið út kvikmynd-
ina Rokk í Reykjavík á myndbandi. Hafa þeir
dreift henni á helstu myndbandaleigur lands-
ins. Myndin er 90 mín., óstytt, og eru þær leig-
ur og þeir einstaklingar sem enn eiga eftir að
eignast eintak beðnir að hafa samband við
sölumann í síma 17646 og 13339.
SOS til fjögurra
ungmenna
Síðastliðið laugardagskvöld tókuð þið í mis-
gripum græna leðurjakkann minn, jakkanum
gleymdi ég í leigubU sem þið síðan tókuð frá
Melavelli upp í Sigtún. Þessi jakki er gjöf og
skiptir mig miklu máli. Eg bið ykkur því
vinsamlegast að hafa samband við mig í síma
20232 (Elin). Fundarlaun.
Mótettukór
Hallgrímskirkju
I byrjun september verður stofnaður nýr kór
við Hallgrímskirkju í Reykjavík, Mótettukór
Hallgrímskirkju. Stærð hans er miðuð við
30—40 manns á aldrinum 16—40 ára, sem hafa
það hlutverk að flytja kirkjulegar mótettur
(Schiitz, Byrd, Bach, nútímatónskáld t.d.) og
kantötur í guðsþjónustum, auk reglubundins
tónleikahaids á ýmsum tímum kirkjuársins.
Miðað verður við eina fasta æfingu á viku,
auk raddæfinga og aukaæfinga eftir verkefn-
um. Smáverkefni bíður kórsins strax 5.
september, er fluttar verða 2 Bach-kantötur
fyrir barítón og hljómsveit, en kórinn syngur
lokakóralinn í annarri kantötunni. Tónleik-
amir 5. september eru til fjáröflunar fyrir
orgelsjóð kirkjunnar, með þátttöku þýsks
einsöngvara, Andreas Schmidt, og íslenskra
hljóðfæraleikara.
Söngstjóri hins nýja mótettukórs er ný-
skipaður orgelleikari Hallgrímskirkju,
Hörður Áskelsson. Þeir sem kynnu að hafa
áhuga fyrir starfi í kórnum eru beðnir að hafa
samband við söngstjórann í síma 32219. Radd-
prófun fer fram í Hallgrímskirkju nk. föstu-
dag kl. 16—19 og laugardag kl. 11—13.30 eða
eftir samkomulagi. Kunnátta í nótnalestri er
æskileg, án þess þó að vera skilyrði.
Félag einstæðra
foreldra
Félag einstæðra foreldra óskar eftir alls
konar gömlu dóti á haustflóamarkaö sinn sem
verður um miðjan september. Sækjum. Súni
11822 og 32601 eftirkl. 20
Ferðalög
Útivistarferðir
Miðvikudagur kl. 20.
Lækjarbotnar. Létt rökkurganga með Jóni I.
Bjarnasyni. Verð kr. 60,-. Farið frá BSI, ben-
sinsölu. Frítt f. börn m. fullorðnum. SJÁ-
UMST.
Ferðafélagið Utivist.
Útivistarferðir
Helgarferðir 3.-5. sept.
Föstudagur kl. 20.00.
1. Þórsmörk. Gist í nýja Utivistarskálanum í
Básum. Gönguferðir fyrir alla. Kvöidvaka.
2. Snæfellsnes. Berjaferð, göngu- og skoðun-
arferð. Gist á Lýsuhóli. Sundlaug. Ölkelda.
SJÁUMST.
Ferðafélagið Utivist.
Frá Ferðafélagi íslanda
Helgarferðir 3.-5. sept.:
1. Ovissuferð. Gist í húsum.
2. Landmannalaugar—Eldgjá. Gist í húsi.
3. Alftavatn við Fjallabaksleið syðri. Gist í
húsi. Brottför í þessar feriir er kl. 20 föstu-
dag. 4. kl. 08: Þórsmörk—Gist í húsi. Göngu-
ferðir með fararstjóra eftir aðstæðum á
hverjum stað. Farmiðasala og allar upplýs-
ingar á skrifstofunni, Oldugötu 3.
Minningarspjöld
Styrktarfélags vangefinna
fást á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu félags-
ins, Háteigsvegi 6. Bókabúð Braga Brynjólfs-
sonar, Lækjargötu 2, Bókaverzlun Snæbjam-
ar, Hafnarstræti 4 og 9, Bókaverzlun Olivers
Steins, Strandgötu 31 Hafnarf irði.
Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins
að tekið er á móti minningargjöfum í síma
skrifstofunnar, 15941, og minningarkortin
síðan innheimt hjá sendar.da með gíróseðli.
Minningarkort Hjartaverndar
fást á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík:
Skrifstofa Hjartaverndar, Lágmúla 9, sími
83755.
Reykjavíkur Apótek, Austurstræti 16.
Skrifstofa DAS, Hrafnistu.
Dvalarheimili aldraðra við Lönguhiíð.
Garðsapótek, Sogavegi 108.
Bókabúðin. Embla, Völvufelli 16.
Árbæjarapótek, Hraunbæ 102 a.
Bókabúð Glæsibæjar, Álfheimum 74.
Vesturbæjar Apótek, Melhaga 20—22.
Minningarspjöld Langholtskirkju eru
seld á eftirfarandi stöðum. Verslunin
Njálsgata 1, Bókabúðin Aifheimum 6,
Holtablómið Langholtsvegi 126, Ragn-
heiöur, Álfheimum 12, sími 32646; Sig-
ríður, Gnoðarvogi 84, sími 34098; Sig-
ríður, Ljósheimum 18, sími 30994;
Guðríður, Sólheimum 8, sími 33115;
Safnaðarheimili Langholtssóknar Sól-
heimum.
Innbrot á
Fáskrúðsfirði
Brotist var inn í verslun Viðars Sig-
urbjörnssonar á Fáskrúðsfirði aðfara-
nótt mánudags. Ekki er fullkannaö
hverjuvarstolið.
Þetta er annaö innbrotið í verslunina
á hálfum mánuði. Fyrra innbrotið er
upplýst en enginn hefur verið tekinn
vegna hins síðara.
-Ægir, Fáskrúðsfirði.
Staðinn að meintum
ólöglegum veiðum
Vélbáturinn Hafnarey SF 36 frá
Hornafirði var staðinn að meintum
ólöglegum veiðum suður af Dyrhólaey
um klukkan hálfsjö í gærkvöldi. Það
var þyrla Landhelgisgæslunnar, TF
RÁN, sem kom að bátnum og var hann
þá um hálfa sjómílu fyrir innan
þriggja sjómílna mörkin. Hafnarey,
sem var að togveiðum, var skipað að
fara til Hornafjarðar og verður mál
skipstjórans tekið fyrir eftir hádegi í
dag. -JGH.
Lítið miðar í
samningum BSRB
Samningafundur BSRB og f jármála-
ráðuneytisins stóð til klukkan hálftvö í
nótt og var nýr fundur boðaður klukk-
anlOímorgun.
Fjármálaráðuneytið lagði fram í
gær tillögur sem gera ráð fyrir 4%
grunnkaupshækkun frá og með 1.
ágúst og 2,1% hækkun 1. janúar. BSRB
hefur ekki viljað ganga að síðari hækk-
uninni og fer fram á almenna hækkun
um einn launaflokk, eins og samiö var
um í samningum ASI og VSI.
Samkvæmt launaflokkakerfi BSRB
yrði sú hækkun hins vegar hlutfalls-
lega mun meiri en aðildarfélagar Al-
þýðusambandsins fengju i sinn hlut.
Fjármálaráðuneytið hefur einnig gert
kröfu um að gengið verði frá launalið-
um samningsins áður en farið verði að
ræða önnur atriði, en samningamenn
BSRB vilja ræða aðra þætti samhliða
launaliðnum.
Kristján Thorlacius formaður BSRB
sagði í samtali við DV í morgun að
mörg ágreiningsatriði væru enn óleyst,
en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
gang samningaviðræðnanna.
ÖEF