Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1982, Page 40
NÝJA
AGFAFILMAN
ÓTRÚLEGA SKÖRP
OG NÆM FYRIR LITUM
ÓDÝRARI FILMA SEM
FÆST ALLS STAÐAR
86611
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
SKRIFSTOFA
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
27022
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1982.
ÓskarMagnússon
fréttastjóri DV
Frá og meö þessum mánaðamótum
hefur Oskar Magnússon veriö ráöinn
sem fréttastjóri DV ásamt meö Jónasi
Haraldssyni núverandi fréttastjóra.
Öskar er f;edd"r 13. apríl 1954. Hann
hefur stai.aó vi"fjölmiðla, var blaða-
maöur á Vísi á sumrum og hjá Frjálsu
framtaki og hefur unniö aö dagskrár-
gerð í útvarpi. Hann er nú aö ljúka viö
lögfræöipróf.
Oskar er kvæntur Hrafnhildi Sigurö-
ardóttur.
Áttræðurmaður
mikið slasaður
Áttræöur maöur slasaðist mjög al-
varlega er hann varö fyrir strætis-
vagni í Hafnarstrætinu um klukkan
hálfellefu í gærmorgun.
Atvik voru þau aö strætisvagninn ók
eftir Vesturgötunni og beygði inn í
Hafnarstrætiö. Er hann var á móts viö
Bifreiðastöö Steindórs gekk gamli
maðurinn yfir götuna í átt að bifreiða-
stööinni. Strætisvagninn lenti á mann-
inum sem kastaöist mjög harkalega í
götuna. Hlaut hann mikiö höfuöhögg
og er talinn höfuökúpubrotinn.
Maöurinn var fluttur á slysadeild
Borgarspítalans og er líðan hans eftir
atvikum.
-JGH
Verðbætur af
verðtryggðum
reikningum
hækkaí3,75%
Bankastjóm Seölabankans hefur
ákveðiö að frá og meö 1. október nk.
skuli veröbætur af verötryggðum inn-
lánsreikningum hækkaðar úr 3% í
3,75%. Á heilu ári jafngilda sérstakar
verðbætur þá 55,5% í stað 42,6 eins og
veriöhefur. ác
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
Stöðvar f ramleiðslu
á frystum karfaflökum
Sölumiöstöö hraöfrystihúsanna
stöövaöi í gær vinnslu á karfaflökum
fyrir Rússlandsmarkaö frá og meö
október. Aö sögn Eyjólfs Isfeld
Eyjólfssonar, forstjóra Sölumið-
stöövarinnar, eru þessar ráöstafanir
geröar vegna þess aö þegar í júní var
búiö aö framleiða upp í samninga við
Sovétríkin fyrir þetta ár. Vonast
hefði veriö eftir aö viöbótar-
samningur yröi gerður viö Sovét-
menn um sölu á karfaflökum á þessu
ári en nú væri útséð um aö þaö
tækist.
Væru því þegar fjrir í landinu
birgöir sem gera mætti ráð fyrir aö
næmu um helmingi af því magni sem
um yröi samið á næsta ári. Undir
slíkri birgðasöfnun gætu frystihúsin
ekki staðið, sagði Eyjólfur.
Karfaafli hefur aukist mikiö á
síöustu tveimur árum. Á síöasta ári
kom sama staöa upp hjá
frystihúsunum af þeim sökum, en þá
náöust viöbótarsamningar viö Sovét-
menn um sölu á karfaflökum. Karfi
er einnig seldur til Bandarikjanna,
Evrópulanda og Japan, en þar er um
aðrar vinnsluaðferðir aö ræða.
Samband íslenskra sam-
vinnufélaga hefur ekki fyrirskipaö
stöövun hjá sínum frystihúsum, en
að sögn Olafs Jónssonar, aðstoöar-
framkvæmdastjóra sjávarafuröa-
deildar SlS, er staöa þeirra mjög
svipuö og annarra frystihúsa. Sagði
hann aö þaö yröi rætt á næstunni
hvort grípa ætti til stöðvunar.
-ÓEF.
Slökkviliðið i Reykjavík var kvatt að skúr við Ægissiðuna igærdag
klukkan fjögur. Logaði talsvert i skúrnum en i honum voru fiskinet.
Þegar slökkviliðið kom á vettvang hafði eldurinn teygt sig i stóran
bragga sem var við hliðina á skúrnum. Slökkvistarf gekk greiðlega,
en skemmdir urðu talsverðar á skúrnum.
DV-myndir: S.
•:
„Iðnaðinum var fórnað fyrir skammtímaárangur í verðbólgustríðinu,” segir formaður iðnrekenda
LOKI
Striplið í Þjóðleikhúsinu
ætti að þyngja kassa
Sveins duggunariitið.
„GENGIÐ RANGT SKRAÐ,
UNDIRBOD YFIRVOFANDI”
„Iönaðurinn almennt á nú viö
gífurlega erfiðleika að glíma. Sam-
keppnisiðnaðurinn, sem keppir nær
allur á Evrópumarkaði, ýmist viö
innflutning eða með útflutningi, er
hins vegar aö hruni kominn í heilum
greinum. Það er ljóst og á þaö höfum
við margbent, aö iðnaðinum var
fómað árið 1981 fyrir skammtímaá-
rangur í verðbólgustríðinu. Það
ætlar aö veröa banabitinn,” sagöi
Víglundur Þorsteinsson, formaöur
Félags islenskra iönrekenda í sam-
taliviðDVímorgun.
„Síðustu misserin hefur gengi
krónunnar farið svo á misvíxl aö
samkeppnin frá og í Evrópu er okkar
iðnaði um megn. Fyrirtækin hafa
veriö rekin meö tapi og fjármagns-
kostnaður hefur hlaöist upp. Á
þessum tíma hafa sem dæmi að.
minnsta kosti níu fyrirtæki ' í
fataiðnaði verið lögð niður og sú
þróun heldur áfram. Þar hafa þegar
tapast 120 framleiðslustörf og nú
hefur verið skýrt frá uppsögnum 17
starfsmanna hjá Sportveri.
Sú hætta vofir nú einnig yfir fata-
iönaöinum aö hingað streymi
fatnaöur á undirboöum. Þeirra
hefur þegar oröið vart og dæmi um
aö innfluttar vörur fáist nú í
verslunum á veröi sem ekki dugir
fyrir efniskostnaði. Það hafa safnast
fyrir miklar fatabirgðir hjá verk-
smiðjum víða i Evrópu, vegna
erfiöleika þar. Viö þessu verður aö
bregðast áöur en þaö verður um
seinan. Þaö er unnt aö beita undir-
boðstollum.”
„Jú, vandi iönaöarins er stjóm-
völdum fullkomlega ljós,” sagöi Víg-
lundur,, ,en þessi atvinnuvegur hef ur
nú verið látinn víkja fyrir öörum
hagsmunum í þjóðfélaginu.”
DV er kunnugt um hver þau níu
fyrirtæki í fataiönaöi eru, sem
Víglundur vísar til: -Föt, Faco,
Elgur, Solido, Klæði, Skinfaxi, Elísa,
Skyrtugerð H. Guðjónssonar, Belgja-
gerðin.
-HERB.