Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1982, Side 4
DV. FIMMTUDAGUR14. OKTOBER1982.
Ný aðveituæð fyrir vatns-
veituna er stærsta málið
Steinn Kjartansson, sveitarstjóri á Súöavik. Jarðraskið sem sést er vegna vatnsveituframkvæmdanna.
I september síðastliðnum tók nýr
sveitarstjóri við störfum á Súöavík,
S leinn Kjartansson. Hann er heima-
maður í húð og hár og hefur búið
allan sinn aldur á staðnum að undan-
skildum þrem árum í Reykjavík.
Áður en hann tók viö þessu starfi var
hann verkamaður í frystihúsinu.
Lagðar voru nokkrar spumingar
fyrir Stein.
Hversu margir búa hérnúna?
.dCringum 260 manns. Fjölgunin
undanfarin ár hefur veriö lítil, þetta
hefur nokkuð svona staðið í stað. En
Súðavík hefur samt alla tíð veriö
uppgangspláss og ég vona að hún
verði það áfram. Að vísu vantar
húsnæöi, við vorum þó aö ljúka bygg-
ingu á 8 íbúða fjölbýlishúsi sam-
kvæmt leigu- og söluíbúðakerfinu. ”
Hvemig er atvinnulífiö?
„Osköp einhæft, fiskiðnaöur og
sjávarútvegur. Það hefur verið
þokkaleg vinna á árinu aö undan-
skildum 2 tímabilum, janúarstopp-
inu og svo stoppinu núna um daginn.
Við lentum sérstaklega illa út úr
þessu núna. Togarinn var í slipp en
þegar hann kom var stoppið að
skella á.”
Þið eigið einn togara?
„Já, togarinn Bessi var smíðaður
1973. Honum hefur gengið vel alla
tíð, verið happaskip og aflasæll í alla
staði.”
Er frystihúsið í sæmilegu ástandi?
„Það er hér frystihús í byggingu.
Árið 1978 var hafist handa af fullum
krafti en litilleg endurbygging hafði
verið í gangi árin áður. Eftir er að
taka í notkun pökkunarsal á efri hæð
og á neðri hæðinni geymslu að
nokkru leyti. Á efri hæöinni er líka
verið að setja upp rækjuvinnslu sem
var áður á Langeyri hér rétt fýrir
innan þorpið. Hún verður flutt bæði
til hagræðingar fyrir vinnuaflið og
vegna flutninga á hráefni. Þessi nýja
rækjuvinnsla verður hin fullkomn-
asta og að mestu leyti sjálfvirk sem
ekkivaráður.”
Unnið er af fullum krafti við að koma tækjum fyrir í nýju rækjuvinnslunni
sem opnuð verður innan skamms.
DV-myndir: Bj.Bj.
Nýja stíflan í Eyrardalsá er vel á veg komin. Rörabúnaðurinn sem þama sést
er aðeíns bráðabirgðalausn. Eftir er að ýta jarðveginum ofan stiflunnar frá en
þar kemur til með að verða myndalegt lón.
1
Svo mælir Svarthöfði
Svo mælir Svarthöfði
Svo mælir Svarthöfði
Maður les í DV að útgáfan öra &
örlygur hafi hætt viö að gefa út bók
eftir Guömund Sæmundsson um
verkalýðsbrodda ýmiskonar, af á-
stæöum sem höfundi virðast ekki
alveg ljósar, en gætu verið þær að
bókin þætti of svæsin. Þetta eru
tíðindi i bókaútgáfunni á íslandi, þar
sem á hverju hausti koma út
svæsnar útgáfur af hugverkum, og
er þó svæsnin einkum fólgin í því
hvað þau eru léleg. Ekki skal getum
að því leitt að þessháttar svæsni
standi bók Guðmundar fyrir þrifum,
heldur ber að skilja þetta svo, að
bókin sé svæsin í umtali um verka-
lýðsforingja.
Bókaútgáfan öra & örlygur hefur
ekki haft orð á sér fyrir að vera
hreinlífara útgáfufyrirtæki en þær
aðrar útgáfur, sem hér era starf-
andi. Samt virðist fyrirtækið hafa
heykst á þvi að gefa bók Guðmundar
út, eftir að hún er komin á siðari stig
' í prentsmiðju. Hefur ekki annað eins
gerst í mannaminnum, allt frá því að
Magnús Stephensen gaf út Leirgerði
forðum daga til vorra tima. Þaö er
meiri djöfulgangurinn á ferð í verka-
lýðshreyfingunni fyrst umsagnir um
hana sprengja af sér siðferðis-
ramma útgáfufyrirtækja, sem hafa
Þegar krosstrén bregðast
hingað til orðið að þola klámbylg jur í
bókmenntum, að mestu innfluttar,
og gefin hefur verið út ævisaga
Xavieru Hollander, sem að vísu vann
í annars konar verkalýðshreyfingu
en þeirri, sem Guðmundur
Sæmundsson hefur kynnst á
Akureyri.
Það er náttúrlega vitað, að sumir
verkalýðsforingjar verða oröljótir i
vinnudeilum, og kannski hafa þeir
sagt sitt af hverju við Guðmund
Sæmundsson, þegar hann vildi rugla
málin með því að bjóða sig fram tU
forsetaemþættis hjá ASt. En út-
gáfustarfseml í landinu, sem þollr
ævisögu Xavieru HoUander og Elsk-
huga Lady Chatterley prentaða á
bláan pappir og stytta í útgáfu, ætti
ekki að þurfa að kippa sér upp við
verkalýðssex Guðmundar Sæmunds-
sonar.
Hingað tU hefur það þó verið
íslenska Ieikhúsið, sem hefur haft
mest með óprenthæfa hluti að gera,
þegar ekki er verið að sýna Þorlák
þreytta. Þar hefur hver svæsnin á
fætur annarri riðið húsum, svo jafn-
vel frómum peysufatakonum hefur
legið við yfirUðum á frumsýnlngum.
Hinn íslenski menningaraðaU er því í
góðri þjálfun um þessar mundir, og
af þeim sökum var ástæðulaust fyrir
örn & örlyg að hætta viö útgáfu. Nú
verður Guðmundur verkamaöur að
gefa bók sína út sjálfur, nokkuð sem
aldrei kom fyrir Xavieru HoUander
eða D.H. Lawrence. En það er svona
með þessa verkalýðshöfunda. Þeir
eru eflaust ofsóttir nema hjá MáU &
menningu og Iðunni, þar sem
skUningurinn er ríkari á tjáningar-
þörf þeirra en almennt gerist.
Það er þó huggun harmi gegn að
bók Guömundar á að koma út. Nú er
hart í ári hjá verkalýðshreyfingunni,
10% kjaraskerðing fyrir dyrum 1.
desember, Guðmundur J. ævareiður
út af verðhækkunum og aUabaUar i
öngum sínum á þingi. Á slíkum tim-
nm þarf verkalýðshreyfingin bækur.
Hún þarf á meðvitaðri lesningu að
halda og leshópum tU að hún megi
sjá, hveraig þetta á að verða í fram-
tíðarlandinu. Sovét-ísland, hvenær
kemur þú, sagði Jóhannes úr
Kötlum. Við höfum aldrei verið fjær
því en nú eftir þriggja ára stjóra
kommúnista á landsmálum.
En þegar Ula gengur kemur
verkamaður norðan af Akureyri með
bókmenntir handa öreigunum. Hann
skýrir kannski fyrir lesendum sín-
um, hverjir þaö era, sem verst fara
með rétt öreiganna, og hverjir það
eru, sem trufla aUa meðvitaða hugs-
un innan launþegahreyfingarinnar.
Hann er á svörtum Usta hjá verka-
lýðsrekendum. En það var ekki
lýðum ljóst fyrr en nú, að hann er
líka á svörtum lista hjá bókaútgáf-
unni í landinu, og þannig settur skör
neðar en Xaviera HoUander og Elsk-
hugi Lady Chatterley. Svarthöfði.