Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1982, Qupperneq 18
18
DV. FIMMTUDAGUR14. OKTÖBER1982.
íþróttir
íþróttir
íþrótt
íþrótt
Gordon Stracban.
Strachan
fórá
kostum
— þegarSkotarunnu
A-Þjóðverja 2:0
íGlasgów
Skotar lögöu A-Þjóðverja að velli
2—0 í Evrópukeppni landsliða þegar
þjóðirnar mættust á Hampden Park í
Glasgow í gærkvöldi. Það voru þeir
John Wark og Paul Sturrock sem
skoruðu mörk Skota.
Það var ekki fyrr en á 54. mín. að
Skotum tókst aö skora fyrra mark sitt.
John Robertsson átti þá frábæra
sendingu fyrir mark A-Þjóðverja
þar sem John Wark var á réttum stað
og skallaði hann knöttinn glæsilega í
netið. Sturrock, sem kom inn á sem
varamaður fyrir Alan Brasil, skoraði
fljótlega eftir aö hann kom inn á — með
góðu skoti eftir fyrirgjöf John
Robertson.
Maður leiksins var hinn smávaxni
Gordon Strachan frá Aberdeen, sem
átti sniildarleik á miðjunni — gerði
varnarleikmönnum A-Þjóðverja oft
lífiö leitt meö leikni sinni og hraða.
-SOS.
DV ræðir við kunna menn eftir leikinn á Wembley:
„Strákamir nýttu
ekki tækifærin”
— þegar V-Þjóðverjar unnu sigur, 2-1, yfir Englendingum
Frá Halldóri Einarssyni — frétta-
manni DV á Wembley: — „Kalli
kóngur” — Karl-Heinz Rummenigge,
fyrirliði V-Þýskalands, tryggði V-
Þjóðverjum sigur 2:1 yfir Englending-
um hér á Wembley í gærkvöldi. Leik-
menn v-þýska liðsins fögnuðu þessum
sigri geysilega — það var eins og þeir
hefðu orðið heimsmeistarar hér.
Rummenigge þeysti að Jupp Derwail,
landsliðseinvaldi V-Þýskalands, eftir
leikinn og faðmaði hann að sér. Já,
gleðin var mikil.
Englendingar voru betri framan af,
en fyrri hálf ieikurinn var þó lítt spenn-
andi. Það var greinilegt að leikmenn
liðanna tóku ekki mikla áhættu —
léku yfirvegað. Strax í upphafi ieiksins
lenti Karl-Heinz Forster hjá Stuttgart í
samstuöi við Paul Mariner og meiddist
lítils háttar en á 5. mín. varð hann að
yfirgefa leikvöllinn eftir að hafa lent í
samstuði við Ray Wilkins. Hann var
fluttur á sjúkrahús, þar sem sauma.
þurfti saman djúpan skurð á kálfa.
Englendingar fengu fyrsta
marktækifærið. Þaö var nýliðinn Gary
Mabbutt, sem lék stöðu hægri bakvarð-
ar, sem átti skot að marki V-Þjóðver ja
á 36. mín. — knötturinn skall á stöng-
inni. 1 upphafi seinni hálfleiksins átti
Cyrille Regis skot að marki, sem Toni
Schumacher markvörður varði
meistaralega og síðan varði hann
glæsilega skalla frá Ricky Hill.
Devonshire sendi knöttinn þá fyrir
markið, þar sem Regis var og skallaði
hann knöttinn til Hill. Það er ekki hægt
að segja að Schumacher hafi verið
vinsælasti leikmaðurinn hér á Wem-
bley. Hinir 68.000 áhorfendur, sem sáu
leikinn, bauluðu alltaf á hann þegar
hann fékk knöttinn.
Þá fór að rigna
Pierre„litli” Littbarski kom inn á á
65. mín. og við komu hans færðust V-
Þjóðverjar allir í aukana. Littbarski
og Rummenigge brutust laglega í
gegnum vöm Englendinga á 73. min.
og þeirri sókn lauk með því að
Rummenigge vippaði knettinum
skemmtilega yfir Peter Shilton, mark-
vörð — 0:1. Aðeins 10 mín. seinna sendi
Littbarski knöttinn skemmtilega fyrir
mark Englendinga — þar var
Rummenigge á réttum staö og skoraöi
— 0:2. Þess má geta, að þegar
Rummenigge skoraði fyrra mark V-
Þjóðverja, byrjaöi að rigna gífurlega
— eins og hellt væri úr f ötu.
Bobby Robson, landsliðseinvaldur
Englands, setti þá Graham Rix og
Tony Woodcock hjá Arsenal og blökku-
manninn Luther Blissett hjá Watford
inn á 10 mín. fyrir leikslok og færðist
þá líf í leik enska liðsins.
Tony Woodcock minnkaöi muninn í
1:2 á 85. mín. með stórglæsilegu marki.
Rix sendi þá snjalla sendingu til hans.
Woodcock tók við knettinum og sendi
hann með þrumuskoti upp undir þver-
slána — út við markhomið. Þaðan
þeystist knötturinn niður — inn fyrir
marklinuna og þandi síðan út þaknetið.
Ekki tókst Englendingum síðan aö
jafna metin þrátt fyrir þunga sókn
„Mér fannst þetta allt hálf lélegt,
bæði liðin og dómaramir. Lið ÍR er
mjög slakt og á ekki heima í 1. deild,”
sagði Gils Stefánsson, liðsstjóri FH,
eftir leik FH og ÍR í 1. deild ísiands-
mótsins f handknattleik. Lokatölur
31—23 og aldrei spuming um það
hvemig leiknum lyktaði. Staðan í leik-
hléi var 13—6 FH í vil.
„Mér fannst við hafa mikla yfirburði
í þessum leik en það var langt frá því
að við lékjum vel. iR-ingar drógu
okkur niður með getuleysi sínu og við
vitum að við getum leikið mun betur,”
sagðiGils.
Það er óþarfi að hafa mörg orð um
þennan leik svo ójafn sem hann var.
lokamínúturnar. Englendingar áttu
alis 22 skot að marki V-Þjóðverja í
leiknum — á móti 15 skotum v-þýsku
leikmannanna.
Alan Devonshire, Cyrille Regis og
Cary Mabbutt voru bestu menn enska
liðsins, ásamt Ricky Hill. Butcher,
Armstrong og Paul Mariner vora væg-
astsagtlélegir.
, Rummenigge, Schumacher og Litt-
barski voru bestu menn V-Þjóðverja.
Liðin vora skipuð þessum leikmönn-
um: ~
England: Shilton, Mabbutt, Thomp-
son, Butcher, Sansom, Wilkins, Hill,.
Armstrong (Rix), Devonshire, Regis
(Blissett), Mariber (Woodcock).
V-Þýskaland: Schumacher, Kaltz,
Strack, Karl-Heinz Forster (Hieron-
ymus), Bernd Forster, Dremmler,
Briegel, Matthaeus, Meier (Litt-
barski),Klaus Allofs (Engels).
FH-ingar hafa tekið stefnuna á
Islandsmeistaratitilinn í ár en iR-ing-
ar falla að öllum likindum beint í 2.
deild. Það virðist nokkuð ljóst.
Mörk FH: Hans Guðmundsson 7,
Þorgils Ottar og Kristján Arason 5,
Finnur Amason 4, Guðjón Guðmunds-
son 3, Sveinn Bragason og Guðmundur
Magnússon 2 hvor og Pálmi Jónsson
eitt mark.
Mörk ÍR: Bjöm 8, Einar 6, Guöjón 4,
Andrés 2 og þeir Atli, Þórarinn og Olaf-
ur eitt mark.
Leikinn dæmdu þeir Grétar Vil-
mundarson og Ævar Sigurösson og
hafa þeir báðir dæmt betur.
SK.
-HE/-SOS
Lélegur leikur
í Hafnarf iröi
— þegar FH-ingarsigruðu IR-inga
auðveldlega 31:23
Hans Guðmundsson skoraði 7 mörk1 fyrir FH og
hér er eitt þeirra í uppslglingu. DV-mynd S.
{ Ásgeir |
! áfram hjá
{ ÞróttiR. |
IAsgeir Elíasson, fyrrum lands- ■
liðsmaður í knattspyrnu úr Fram, I
I hefur veriö endurráðinn þjálfari .
■ Þróttar, sem er nýliöi í 1. deildar- ■
I keppninni i knattspymu. Asgeir I
| hefur þjálfað og leikið með Þrótti j
I sl. tvö ár með mjög góðum árangri. |
sagði Bobby Robson, landsliðseinvaldur Englands
Frá Halldóri Einarssyni — frétta-
manni DV á Wembley:
— Þetta var góður leikur að mörgu
leyti. Ég var sérstakiega ánægður með
fyrstu 55 min. en strákarair máttu þó
nýta tækifærin sem þeir fengu, sagði
Bobby Robson, landsliðseinvaldur
Englands, eftir leikinn á Wembley i
gærkvöldi.
Robson var mjög ánægður með ungu
leikmennina Gery Mabbutt hjá Totten-
ham og Ricky Hill frá Luton. — Þeirl
léku vel og eru greinilega menn fram-
tíöarinnar, sagöi Robson, sem vildi
ræða um þá leikmenn sem ollu von-
brigðum hér á Wembley — eins og
Terry Butcher, Dave Armstrong og
Paul Mariner.
Bobby Robson skipti þremur
leikmönnum inn á í einu á 80. min.
Þeim Graham Rix, Tony Woodcock og
Luther Blissett. — Þeir komu með nýtt
blóð en það dugði þá ekki, sagði Rob-
son.
„Alltaf að nota
þá bestu"
Við hliðina á mér á Wembley sat
Glenn Hoddle, enski landsliösmaö-
urinn hjá Tottenham, sem er meiddur.
Hann sagðist vera ánægður með
leikinn.
— Það hefur verið mikil pressa á
Bobby Robson sem hefur gert miklar
breytingar á enska liöinu, sagði
Hoddle.
— Var rétt hjá Robson að setja Kevin
Keegan út?
— Nei, ég tel að landsliðsþjálfarar
eigi alltaf að velja sína sterkustu leik-
menn á hverjum tíma. Ekki að
einbiína á framtíðina eingöngu, sagöi
Hoddle, sem var mjög hrifinn af leik
Alan Devonshire og Gery Mabbutt.
Hvað með framtíðina hjá
Tottenham.
— Ég er bjartsýnn. Það hefur komið
i ljós að við eigum marga góða unga
leikmenn. Það sést best á því að við
Ray Clemence höfum ekki getaö leikið
með að undanfömu. Aðrir leikmenn
hafa komið inn í staðinn og þeir hafa
haldið merkinu á lofti, sagði Hoddle.
„Nýttu ekki
færin sín"
Bob Wilson hjá BBC og fyrrum
markvörður Arsenal sagði að Englend-
ingar hefðu átt meira í fyrri hálf-
leiknum og fyrstu mín. í þeim seinni. —
Þaö var greinilegt að Jupp Derwall,
fyrirskipaði sínum leikmönnum að
slaka á — taka engar óþarfa áhættur.
Mismunurinn á liðunum var, aö V-
Þjóðverjar nýttu tækifæri sín en
Englendingar ekki. Devonshire,
Mabbutt og Ricky Hill voru bestu
leikmenn Englands sagði Robson.
-HE/-SOS.
Karl-Heinz Rummenigge
Engiendingum.
— skoraði tvö gullfalleg mörk gegn
„1 ial li” vai r_ ki Ól ig-
ut im iá Wc ííi nl \}\ ey
Halldór
Einarsson
á Wembley
h