Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1982, Blaðsíða 33
DV. FIMMTUDAGUR14. OKTOBER1982.
33
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Viðar Atfreðsson
hættur að
stjórna lúðra-
sveitinni
Viðar Alfreðsson sagði upp
starfi sínu sem stjórnandi
Unglingalúðrasveitar Kefla-
víkur fyrir um það bil mán-
uði. Ekki mun uppsögn hans
alveg hafa gengið hávaða-
laust fyrir sig. Hefur mál
þetta vakið athygli og vanga-
veltur manna á meðal, að
sögn Víkurfrétta í Keflavík.
Viðar segist hafa sagt upp
þar sem hann hafi ekki sætt
sig við breytingar sem fyrir-
hugaðar voru á starfsreglum
hljómsveitarinnar þess efnis
að öll málefni hennar heyröu í
framtíöinni undir skólastjóra
og skólanefnd Tónlistarskóla
Keflavikur. Segist Viðar ekki
hafa séð starfsgrundvöU með
skólastjóranum, Herbert H.
Ágústssyni. Aðra ástæðu fyr-
ir uppsögninni segir Viðar
vera þá að foreldrafélag skól-
ans hefði lýst yfir óánægju
sinni i sinn garð án þess að
ræða nokkuð við sig áður.
Herbert H. Ágústsson
skólastjóri seglr að vegna
óánægju foreldra með mál-
efni hljómsveitarinnar hafi
skólanefndin ákveðið hinar
nýju starfsreglur.
Kiwanis-, lions-
og rotarymenn
safna fyrir stein-
ullarverksmiðju
Mikið steinuUarkapphlaup
stendur nú yfir milli Þoriáks-
hafnar og Sauðárkróks.
Suðuriand stendur að baki
Þorlákshöfn en Norðurland
að baki Sauðárkróki. Kepp-
endur keppast við að láta
aðra landsmenn vita hve
hlutafjársöfnun gangi vel.
I blaðinu Feyki á Sauðár-
króki lesum viö að um f jöru-
tíu sjálfboðaUðar séu þar að
.safna fyrir steinuUarverk-
smiðju. Séu þetta aðaUega
félagar úr Kiwanis-, Lions- og
Rotaryklúbbunum á Sauðár-
króki. Haft var efth- fram-
kvæmdastjóra norðienska
steinullarfélagsins að menn
voru almennt ánægðir með
undirtektir á Sauðárkróki.
Undirtektir utan Sauðár-
króks og næriiggjandi
sveitarfélaga væru hins
vegar dræmar.
Frúin keppir við
Ómar
Eiginkona Ómars Ragnars-
sonar, Helga Jóhannsdóttir,
virðist hafa fengið skammt af
einni bakteríu eiginmanns-
ins, raUbakteríunni. Helga
ætlar nefnUega að taka þátt í
haustraUi sem framundan er.
Ekki ætlar hún aö keppa með
Omari heldur hyggst hún
sjáU aka öðrum bU, fjöl-
skyldubUnum. Aðstoðar-
maður hennar verður sonur
þeh-ra hjóna, Þorfinnur.
Skýringin á lítilli
viðkomu
Fréttaritari DV á Suður-
nesjum, emm, sendi eftirfar-
andisögu:
Á einhverri samkundu hjá
Sambandi sveitarfélaga á
Suðurnesjum voru menn að
skrafa um íbúatöluna á
Reykjanesskaganum. Þótti
mönnum viðkoman HtU en
voru ekki á eitt sáttir hvað
yUi — hvort það væri pUIan
eða getuleysi — þar tU gaU
við í einum fundarmanna:
„Skýringin er ofur cinföld.
Hann HaUi Gisla er alltaf að
drepa tittlinga.”
Ástralskar stúlk-
ur taka með sér
unga menn frá
Súóavík
Þegar ungar, erlendar
stúlkur, aðallcga frá
Ástralíu, tóku að vinna i
frystUiúsum viða um land
fyrir nokkrum árum ætluðu
margir að sumar þeirra
myndu setjast hér aö tU
frambúöar. Sú hefur líka
orðið raunin á. Á Þingeyri
hafa tU dæmis þrjár stúlkur
sest að.
Þessu er öfugt farið á Súöa-
vík. Þar eru forráðamenn at-
vinnulifsins nú arfavitlausir
vegna þess að stúlkumar eru
að taka þaðan f jóra eða fimm
unga menn með sér út i heim.
Er það mikU blóðtaka fyrir
svo fámennt byggðariag.
Umsjón: Kristján Már
' Unnarsson
Kvikmyndir Kvikmyndir
Laugarásbíó—Innrásin á jörðina:
MÁTTLÍTIL
MYND
Laugarásbfó, Innrásin á jörðina (Conquest of
the Earth).
Stjórn: Sidney Hayers, Sigmund Neufeld £r
Barry Crane.
Handrit: Glen A. Larson.
Kvikmyndun: Frank P. Beascoechea, Mario
Dileo ít Ben Colman.
Aðalhlutverk: Kent McCord, Barry Van Dyke,
Lorne Greene, Robyn Douglas, Wolfman Jack.
Framleiðendur: Jeff Freilich, Frank Lupo ít
Gary B. Winter.
Enn gefst fólki kostur á að skoða
geimstríðsmynd. Innrásin á jörðina
heitir sú sem hér verður tU umfjöll-
unar og sýningar standa yfir í
Laugarásbíói. Sérkenni hennar af
geimstríösmynd að vera er aö helsti
hluti hennar gerist á jörðu niðri.
Við erum leidd inn í geimfarið
Galaktiku, sem hefur veriö á
hrakningum um himingeiminn ár-
um saman. Skipver jar þess eru orðn-
ir ærið þreyttir á útivistinni. Þá fýsir
aö ná landi einhvers staöar þar sem
þeir geta notið nokkurs næðis. Þeim
kemur til hugar að stefna til jarðar.
tbúarnir þar eru jú skyldir þeim að
uppruna.
Adam, sem stjórnar Galaktiku, og
helsti ráðgjafi hans, Zen, undirbúa
sendingu tveggja manna tU jarðar til
þess að athuga allar aðstæður. Sendi-
mennirnir eru búnir til fararinnar og
fá ýmis tæki sér tU hjálpar. Þeir eru
tU dæmis færir um aö gera sig ósýni-
lega ef líf þeirra Uggur við.
Þeir félagar halda svo tU jarðar —
lenda vitanlega í Bandaríkjunum,
hvað annað? — og kynnast þar fljót-
lega þarlendri fréttakonu frá sjón-
varpsstöð. Tvímenningunum frá
Galaktiku var fyrirskipað að ná sam-
bandi við mann einn, Martinson að
nafni, en það gengur erfiðlega og það
erfiði þróast fljótlega út í eltingaleik
við aðra geimfara sem komist hafa á
snoðir um fyrirbærið jörð eftir að
hafa njósnað um Galaktikumenn.
Þetta eru hinir hræðilegu Cylonar og
vélmenni þeirra. Og brátt hefst hinn
mesti eltingaleikur, vitanlega upp á
lífog dauða.
Þetta er, að mati undirritaös, aU-
hjákátlegur efnisþráður ogsemsUk-
ur varla hæfur tU kvikmyndunar. Þó
er sums staðar í myndinni viðleitni tU
að gera alvarlega geimstríðsmynd,
en sú viöleitni fellur um sjálft sig
þegar litið er til smáatriðanna í
myndinni. Þau eru mörg hver
afkáraleg og rýra mjög spennu og
áhrif myndarinnar. Sérstaklega á
þetta við um mörg tilsvörin í mynd-
inni. Þegar Martinson og tví-
menningamir hittast tU aö mynda
fáum við aö heyra frá hinum fyrr-
nefnda að hér sé sennilega um
merkUegasta fund heimssögunnar
að ræða! Á öðrum stað Ukir hann tví-
menningunum við komu frelsarans í
heiminn! Og það er ekki annað hægt
en aö hlæja að þessum fullyrðingum.
Myndin tekur sig þannig of alvar-
lega, þessi atriði hafa sennUega átt
aö vekja mögnuö hughrif áhorfenda,
en útkoman verður ekki annað en
brosleg þegar tU kemur.
Þetta á greinilega að vera spennu-
mynd, en er það ekki. Hvergi er að
finna merkilega uþpbyggingu í
myndinni sem úr gæti orðið spenna.
Hvað sem sagt verður um efnis-
þráð og uppbyggingu myndarinnar,
þá verður ekki annað sagt en kvUc-
myndun hennar sé ágætlega unnin.
Sömu sögu er reyndar að segja um
aUa tæknivinnu.
En þessir tveir kostir megna ekki
að rétta við slagsíöuna sem heUdar-
útUt myndarinnar fær vegna lélegs
handrits, slæmrar uppbyggingar og
slakrar spennu. Þetta er því mynd
undir meðallagi góð.
-Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Kvikmyndir Kvikmyndir
Nýjar bækur
„M"-Samtöl IV.
Matthías Johannessen
Bókaklúbbur Almenna bókafélags-
ins hefur sent frá sér 4. bindi af
Samtölum Matthíasar Johannessens.
Þrjú fyrri bindin, M-Samtöl I, H og
III, komu út hjá bókaklúbbnum árin
1977—79. Er hér um aö ræða samtöl
sem Matthías átti við konur og karla á
tímabilinu 1950—1970 og flest birtust í
blöðum á sínum tíma, einkum Morgun-
blaðinu.
Umsjónarmaöur útgáfunnar er
Eiríkur Hreinn Finnbogason.
„M”-Samtöl IV er 250 bls. aö stærð.
Aftast í bókinni eru myndir af öllum
viömælendunum.
Bókin er unnin í Prentstofu G.
Benediktssonar.
íslenskar
smásögur
1847 -1974
2. bindi
Ritstjóri
Kristján Karlsson.
Ut er komið hjá Bókaklúbbi
Almenna bókafélagsins 2. bindi
íslenskra smásagna undir ritstjórn og
í allri umsjá Kristjáns Karlssonar.
Fyrsta bindi smásagnanna kom út
snemma á þessu ári.
I þessu öðru bindi smásagnanna eru
sögur eftir höfunda sem byrjuðu að
þbirta slíkt efni á tímabihnu um 1920 —
uml945.
Þórir Bergsson: SiggaGunna, Jakob
Thorarensen: Bréfi svarað, Davíö Þor-
valdsson: Skóarinn litli, Guömundur
G. HagaUn: Guö og lukkan, Indriöi
Indriðason: Um tvennt að velja; Krist-
mann Guðmundsson: Sumarnótt á
Bláskógaströnd, Hjörtur HaUdórsson:
Friðsamleg þróun, Halldór Stefáns-
son: Hégómi, Kristján Albertsson:
Marcel vegabóndi, Þórunn Elfa: Er
Jósefína búin að ráða sig?, Sigurður
Helgason: Samúö, Stanley Melax:
Grafarinn í Lýsufirði, Sigurður
Róbertsson: Skuldaskil, Guðmundur*
Daníelsson: FaðU- og sonur, Steindór
Sigurðsson: Laun dyggðarinnar,
Olafur Jóhann Sigurðsson: Snjór í
apríl, Halldór Laxness: KórviUa á
Vestfjörðum.
Kristján Karisson ritar formála um
íslenska smásagnagerð og er hann
framhald af formála hans fyrir fysta
bindi. Og enn mun framhald þessarar
ritgerðar birtast í næsta bindi smá-
sagnanna.
I lok bindisins er höfundatal með
upplýsingum um höfunda bindisins og
smásagnaritun þeirra.
íslenskar smásögur 2. bindi er 344
bls. Hún er unnin í Prentsmiðjunni
Odda.
abri^f
HÖGGDEYFAR
Ný sending í:
• Volvo • Galant
• Saab • Escort
• Bronco • Cortina
• Mazda • Taunus
áBBBfc . HABERChf
Skeifunni 3e. Sími 84788
GASOL S/F
BOLHOLTI 6. SÍMI 84377.
ÞETTA
FÆST ALLT
FYRIR AÐEIIMS KR: 3.650,-
' I *
KöMPLKTT
CASS VÍSTS VTtiVftTNVSIG