Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1982, Qupperneq 35
DV. MÁNUDAGUR 25. OKTOBER1982.
43
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Ásgrímur með
lengri starfsaldur
t sandkomi ð miðvikudag-
inn var sagt frá baktjalda-
makki við ráðningu í stöðu
bankastjóra Utvegsbankans
á Akureyri. Ásgrímur Hiimis-
son fékk stöðuna, en Jóhann
Sigurðsson, sem verið hefur
fulitrúi bankastjóra Útvegs-
bankans á Akureyri undan-
farin ár, varð undir í barátt-
unnl.
Ásgrímur hefur að undan-
fömu verið útibússtjóri
Útvegsbankans í Glæsibæ í
Reykjavik, en áður stjóraaði
hann útibúi bankans á Seyðis-
firði. Það var lagt niður. Þar
áður var Asgrimur skrif-
stofustjóri og fulltrúi banka-
stjóra Útvegsbankans á
Akureyri. Gegndi hann þá
bankastjórastörfum um
skeið, í f jarveru Braga Sigur-
jónssonar. Ásgrimur hefur
starfað hjá Útvegsbankanum
frá 1. júni 1964, en Jóhann
byrjaði nákvæmlega ári síð-
ar. Það er þvi Ásgrímur sem
hefur lengri starfsaidur.
Sagði upp
störfum
Ekki var Jóbann sáttur við
þessi málalok. Hann hefur
þvi sagt upp störfum hjá
bankanum og mun ætla að
flytja búferlum til Reykjavík-
ur.
Enn ein prent-
smiðja
Ný prentsmiðja er að taka
til starfa á Akureyri. Verður
hún til húsa i bakhúsi við
Brekkugötu 7. Eigendur
hennar era Traustl Haralds-
son og Sigurður Vatnsdal sem
lengi hafa starfað hjá Prent-
verki Odds Björassonar.
Hefur smiðjan fengið nafnið
„Petit” eftir mælieiningu i
prentverkinu.
Onnur sjónvarps-
dagskrá
Trausti og Sigurður standa
einnig að útgáfu á sjónvarps-
dagskrá, ásamt Einari
Stefánssyni og Einari Pálma
Ámasyni. Á fyrsta tölublaðið
að koma út í vikunni. önnur
slik sjónvarpsdagskrá er
fyrir á Akureyri en þessi rit
hafa að geyma dagskrá sjón-
varpsins og auglýsingar, en
lítið annað.
Af frömmurum
Fyrsta umferð í prófkjöri
Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra
er afstaðin. Það eru eingöngu
fulltrúar í kjördæmisráði
flokksins sem eru kjörgengir
í þessu prófkjöri sem er þrjár
umferðir. Fyrst var kosið 12
manna úrtak. Ekki komu úr-
slitin þar á óvart. Ekki var
upplýst hver hefði hlotið flest
atkvæði heldur eingöngu
gefin upp nöfn þeirra 12
manna sem náðu kosningu.
Samkvæmt heimildum DV
fékk Guðmundur Bjarnason
fiest atkvæði. Þar með hefur
hann skotið Stefáni Valgeirs-
syni og Ingvari Gíslasyni aft-
ur fyrir sig, en þeir skipuðu 1.
og 2. sætið við síðustu kosn-
ingar, en Guðmundur það
þriðja.
í næstu umferð verða
valdir 6 úr þessum 12 manna
hópi, en i siðustu umferð
verður sexmenningunum rað-
að niður. Þau úrslit verða
blndandl.
fhald í vanda
Ekki var búist við prófkjöri
hjá Sjálfstæðisflokknum i
Norðurlandskjördæmi eystra
vegna framboðs við komandi
kosningar. í síðustu viku
samþykkti miðstjóra flokks-
ins prófkjörsreglur sem setja
strik í reiknlnginn. Þar er
meðal ákvæða að skrifi 25%
flokksbundinna manna undir
kröfu um prófkjör skuU próf-
kjör fara fram hvað sem hver
segir. Hefði þetta ákvæði
verið í gUdi við siðustu
alþingiskosningar hefðu Jón
G. Sólnes og hans menn að
iíkindum fengið fram próf-
kjör. Spuraingin er hvað ger-
ir Jón G. Sólnes nú?
Náttúrubók
Bókaútgáfan Skjaldborg
hf. á Akureyri er stórtæk.
Þessa dagana era að koma út
hjá forlaginu 23 bókatitlar;
skáldsögur, barnabækur,
endurminningar og hestabók,
svo að eitthvað sé nefnt. Ein
bókin nefnist Mannleg tU-
brigði eftir Benedikt Pálsson
sem er dulnefni höfundar.
Rétta nafn höfundar er Vig-
fús Björasson. FjaUar bókin
um ástir áttræðs manns og
fimmtugrar konu og er byggð
á atburðum sem raunveru-
lega áttu sér stað. Heyrst
hefur að margir Akureyring-
ar á þessum aldri hafi orðið
felmtri slegnir þegar efni
bókarinnar spurðist út.
Umsjón: Gisli Sigurgeirsson.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
St jörnubíó—Absence of Malice:
Morð og mannorðs-
rán án ásetnings
Stjörnubíó: Absence of Malice.
Leikstjóri: Sydney Pollack.
Höfundur handrits: Kurt Luedtke.
Stjórnandi kvikmyndatöku: Owen Roizman.
Höfundur tónlistar: Dave Grusin.
Aöalloikarar: Paul Newman, Sally Field, Bob
Balaban, og Melinda Dillon.
Bandarísk, árgerð 1981.
Ein af bandarisku goðsögnunum
fjallar um blöðin og blaðamennina.
Þeir slíta sér út í hættulegu starfi og
berjast til að fá sannleikann fram, þó
að skúrkar reyni hvað þeir geta til að
setja fótinn fyrir blaðamennina.
Samkvæmt goðsögninni eru blaða-
mennirnir síðustu verðir lýðræðisins
og fletta ofan af hverskonar óþverra-
skap af miklum móöi. Auövitað er
fótur fyrir goðsögninni og stundum
tekur raunveruleikinn að líkjast
henni eins og þegar þeir félagar
Woodward og Bernstein flettu ofan
af kónunum sem stóðu aö Watergate-
hneykslinu.
Goðsögnin um blaðamennina hefur
verið drjúg uppspretta að Holly-
woodmyndum. Menn hafa heillast af
sérkennilegum heimi blaðanna:
fréttamönnunum sem þeytast um
allar jarðir, spennunni og hraðanum
kringum útgáfustarfsemina.
Áhorfendur vita til að mynda að fjör
færist í leikinn þegar þeim er sýnd
risastór prentvél sem spýtir út úr sér
kynstrum af forsíðufréttum.
Hvað eftir annað hafa blaðamenn
verið aðalpersónur eða að minnsta
kosti mikilvægar aukapersónur í
kvikmyndum. Oft er blaðamaðurinn
jafnframt aöalhetjan.
Absence of Malice líkist mörgum
öðrum myndum um blöð og blaða-
menn. Þessi mynd gagnrýnir blaða-
menn harðlega, og það er svo sem
ekki í fyrsta sinn sem blaðamenn eru
teknir óblíöum tökum í kvik-
myndum. Muna ekki allir eftir
atriöum með sísnuðrandi blaða-
mönnumsem ætla hreinlega aötroða
fómarlamb sitt undir og kaffæra þaö
með spurningum? Höfundur hand-
rits er Kurt Luedtke, en hann mun
hafa veriö blaðamaöur og yfirmaöur
á ritstjórn á árum áður. Þaö leynir
sér heldur ekki að maðurinn hefur
troðið gólffjalir ritstjórnarskrifstofu
því að allt sem fram fer á ritstjóm-
inni í Absence of Malice er með raun-
sæislegu yfirbragði.
Luedtke hefur tekið nokkrar
siðferðilegar spurningar blaða-
mennskpnnar til umfjöllunar. Hvað
mega blaðamenn ganga langt? Er
þeim heiniilt að stofna lífi og starfi
saklausra manna í hættu með
skrifum sínum? Hvernig á að nota
nafnlausa heimildarmenn? Hvemig
eiga blaðamenn að meðhöndla þá
sem færa þeim misjafnlega áreiðan-
legar fréttir? Er réttlætanlegt að
valda fólki sársauka? Absence of
hins vegar FBI menn og saksóknari
Floridafylkis. Svolitiö öfugsnúið eða
hvað?
Ekki er vert að rekja þráð
myndarinnar hér, en lausn flækjunn-
ar er fólgin í stuttum en iaggóðum
yfirheyrslum hjá föðurlegum
rannsóknardómara. Dómarinn er al-
máttugur og talar í gamansömum
tón til „barnanna sinna”.
Þrátt fyrir ýmsa vankanta er
Absence of Malice ljómandi góð
Paul Newman blaðar i Miami Standard, en í Stjörnubíó er nafn blaðsins
„þýtt” DV. Aðrar viðlíka misbeppnaðar tilraunir til staðfærslu má víða sjá i
textanum með Absence of Malice.
Malice segir spennandi og ácemmti-
lega sögu og meginkosturinn við
myndina er wel unnið handrit. Sam-
tölin eru lifandi og það er varla nema
þegar blaöakonan játar syndir sínar
að væmni veröur vart í orðræðum
myndarinnar.
I Absence of Malice verður blaða-
kona (Sally Field) fyrir því að
óprúttnir FBI-menn notfæra sér
fréttaþorsta hennar. Hún skrifar
lygafrétt um saklausan borgara sem
er ef til vill ekki svo mikill sakleys-
ingi. Borgarinn (Paul Newman) er
nefnilega sonur stórglæpamanns og
frændi hans er þó nokkuð voldugur
mafíuforingi. Vondu karlarnir eru
kvikmynd. Sally Field stendur sig
vel í hlutverki blaðakonunnar og
áhorfendur geta velt því fyrir sér
hvers vegna í ósköpunum þeim líkar
vel við stúlku sem er búin aö haga
sér eins og rakinn óþverri. Paul
Newman er alltaf sami góði bláeygi
strákurinn og Sydney Pollack hefur
stýrt gerð myndarinnar styrkri
hendi.
P.S. Nafn myndarinnar þýöir nán-
ast „An ásetnings” og er hugtak úr
bandarískri lögfræði. Hafi blaða-
maður skrifað eitthvað án ásetnings
er ekki hægt að sækja hann til saka
fyrirskrif sín.
Sólveig K. Jónsdóttir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Buxur,
b/ússur
og peysur
í mik/u
úrva/i
Allt
á
frábæru
verði.
Partner sportbúðin,
LAUGAVEG/30
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
BMW 520 árg. 1980 Renault 14TL árg. 1978
BMW518 árg. 1980 Renault 14TL árg. 1977
BMW 518 árg. 1977 Renault 12TS árg. 1978
BMW323Í árg. 1981 Renault 12 station árg. 1979
BMW 320 árg. 1980 Renault 12TL árg. 1977
BMW316 árg. 1980 Renault 5TL árg. 1973
BMW320 árg. 1981 Renault 4 Van árg. 1977
BMW 320 autom. árg. 1980 Renault 4 Van árg. 1978
Renault 20TL árg. 1978 Renault 4TL árg. 1980
Renault 20TL Renault 18TS árg. 1977 árg. 1980 Opið:
Renault 18TL árg. 1979 laugardaga kl. 1—6.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633