Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1982, Síða 2
2
DV. FIMMTUDAGUR 28. OKTOBER1982.
Verður orlofs-
frumvarpið
samþykkt
fyrir 1. des?
I gær var lagt fram ríkisstjórnar-
frumvarp í neöri deild Alþingis um
orlofsmál, orlofsfrumvarpiö svo kall-
aöa, sem boðað var meö öörum aögerö-
um 21. ágúst í sumar. Meginatriðið er
aö laugardagar teljist ekki orlofsdagar
fremur en sunnudagar og aðrir helgi-
dagar.
Jafriframt var lagt fram frumvarp
um aö lögbinda frídag verslunar-
manna sem almennan frídag.
1 athugasemdum segir meöal
annars: „Frumvarp þetta er flutt í
samræmi viö yfirlýsingu ríkisstjómar-
innar frá 21. ágúst 1982 um aðgeröir í
efnahagsmálum og leggur ríkisstjórn-
in áherslu á afgreiðslu þess fyrir 1.
desember. Astæöan er sú, aö lenging
orlofsins kemur á móti þeirri
skeröingu verðbóta sem á sér staö 1.
desember. Lenging orlofsins sam-
kvæmt þessu frum varpi þýöir 1,84% í
kaupi en að auki er svo slutt sérstakt
frumvarp um frídag verslunarmanna
þannig aö heildarbreyting samsvar ar
liðlega 2% í kaupi hjá þeim sem
minnstan rétt hafa, það er 8,33% orlof
og ekki launað leyfi á frídegi verslun-
armanna.”
Þá er vitnaö til nýlegs samnings viö
BSRB um niðurfellingu laugardaga
sem orlofsdaga og sagt aö ætlunin sé
aö breytingin nái til allra á sama tíma.
Með fjölgun orlofsdaga er gert ráö
fyrir hækkun á orlofsfé í 10,17%.
Þá er í frumvarpinu ákvæöi um aö
oriof skuli veitt i einu lagi á tímabilinu
frá 2. maítil 15. september.
Um útreikning orlofsdaga, lág-
marksorlofs, er sagt aö fyrir hvem
unninn mánuð á síðasta orlofsári skuli
orlof vera tveir dagar. Reiknast þá
hálfur mánuður eöa meira sem heill
mánuöur, en minna en hálfur mánuöur
fellurniður.
Eftir frumvarpinu, nái þaö fram aö
ganga, veröur lágmarksorlof eftir
vinnu í heilt orlofsár þannig 24 virkir
dagar þar sem laugardagar, sunnu-
dagar og aörir helgidagar teljast ekki
með. HERB.
Aðgerðir gegn
fóstureyðingum
— með aukinni aðstoð við einstæðar
mæður
Lagafrumvarp um félagslegar ráö-
stafanir til þess aö bæta úr ástæöum,
sem heimila fóstureyðingu, liggur nú
fyrir efri deild Alþingis. Er þar lagt til
að peningagreiöslur veröi hækkaöar
verulega til einstæðra mæðra og
raunar til giftra mæðra eöa í sambúð
meö tilteknar erfiöar aöstæöur.
Frumvarpið flytja fjórir þingmenn
Sjálfstæöisflokksins. Fyrsti flutnings-
maöur er Þorvaldur Garöar Kristjáns-
son, en hann hefur flutt þaö áöiu- á
þremþingum.
I greinargerö segir meöal annars aö
fóstureyöing leysi ekki félagslegan
vanda, heldur þvert á móti. Til þess
þurfti félagslegar ráöstafanir eins og
frumvarpið f jallar um. HERB
Hljómsveit bassaleikarans Charlio Haden, Liberation Music Orchestra, hólt fyrstu tónleika sina i Evrópu-
ferö í Háskólabiói um daginn ó vegum Jazzvakningar. Lók sveitin mest þjóðlegar melódíur með spuna
vöfðum inn á milli. Fjölmargir áhorfendur skemmtu sór ágætlega. Á myndinni sjást þrír meðlimir Libera-
tion Music Orch., þeir Mick Goodrick, Paul Motian og Charlie Haden. D V-mynd G VA.
Tónleikar Dómkórsins:
Nýtt íslenskt kórverk
eftir Hjálmar H. Ragnarsson
Fyrstu tónleikar á tónlistardögum
Dómkirkjunnar veröa í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20.30..Eru það
fýrstu tónleikamir af þrennum sem
haldnir veröa dagana 28.-31.
nóvember í Dómkirkjunni. Ymsir
kunnir tónlistarmenn koma fram á
þessum tónleikum en stjómandi
hinna fyrstu erMarteinn H. Friöriks-
son.
Kór kirkjunnar mun þá frumflytja
verkið Gloria eftir Hjálmar H.
Ragnarsson sem samið var sérstak-
lega fyrir kórinn. Hjálmar sagöi í
samtali viö blaðið að verkiö væri lof-
söngur meö heföbundnum latínu-
HjálmarH. Ragnarsson, tónskóld.
texta. Þaö er um margt nýstárlegt,
textinn er túlkaður á annan hátt en
venjan er meö lofsöngva til
aðmættisins og áherslan er lögö á
bænina um friö í heiminum. Verkiö
er einfalt og skýrt, sagði Hjálmar, en
hljómrænt erfitt. Sums staðar er
sungið einraddað en annars staðar
skiptist kórinn í níu raddir. Verkið er
samiösl. sumar.
Aö auki verða flutt verk eftir Pál
Isólfsson og Jón Leifs og syngur Sig-
rún Gestsdóttir einsöng í því síðar-
nefnda. Organisti er Haukur Guö-
laugsson.
PÁ
Nýtt fréttablað
á Suðuriandi
Fyrsta tölublaö nýs fréttablaös á
Selfossi mun líta dagsins ljós á föstu-
daginn. Blaðið heitir Eilítið frétta-
blað á Suöurlandi og em ritstjórar og
ábyrgöarmenn þeir Olafur Th. Olafs-
son og Þorvaldur H. Helgason, sem
báöir starfa sem kennarar viö fjöl-
brautaskólann. Blaöið mun koma út
mánaðarlega, a.m.k. í fyrstu, en
hugsanlegt er aö þaö komi örar út
meö tímanum. Eilítið fréttablaö er 12
síður aö stærö og er ætlað aö flytja
almennar fréttir af öllu Suöurlandi.
Blaösöluböm munu selja blaöið á
Selfossi og víðar og vonast aðstand-
endur eftir sem mestri útbreiöslu
þess. Fólk er einnig eindregið hvatt
til aö skrifa í þetta nýja fréttablaö.
Prentsmiöja Suðurlands á Selfossi
annast prentun.
PÁ
►
Ritstjórar hins nýja fróttablaðs:
Ólafur Th. Ólafsson og Þorvaldur
H. Helgason.
LOÐNUSTOFNINN
ENN OF LÍTILL
— hrygningarstofninn enn aðeins 265
þúsund tonn
Mælingar á stærö íslenska loðnu-
stofnsins, sem gerðar voru 3.—21.
október, sýndu að stofninn er um 560
þúsund tonn, þar af 265 þúsund tonn
kynþroska. Hrygningarstofninn er
því enn langt undir því marki, sem
miöað er viö svo aö óhætt sé að veiða
loðnu á ný en það eru 400 þúsund
tonn.
I skýrslu íslenskra og norskra
rannsóknarmanna er sérstaklega
vikiö aö góöum aöstæöum nú til mæl-
inga, gagnstætt því sem var á sama
tíma i fyrra. Því sé ekki hætta á að
mælingin nú reynist svo gölluð sem
þá.
Þá segir að við samanburö á f jölda
ársgamallar smáloðnu hafi mælst
meira af henni nú en síöustu þrjú ár.
Niðurstööur rannsóknanna fara nú
fyrir viökomandi nefnd hjá Alþjóða-
hafrannsóknarráðinu. Þ6 er strax
Ijóst að ekki verður mælt meö loðnu-
veiöum á þessum vetri. HERB.
Dalakonur söfnuðu
rúmlega tíu
þúsund krónum
Kvenfélagskonur í Saurbæjar-
hreppi i Dölum drógu ekki af sér viö
fjársöfnunina um síöustu helgi. Aö
sögn Guðrúnar Jóhannesdóttur, sem
var ein þeirra, söfnuöust 10.500
krónur sem veröur að telja umtals-
vert í fámennu byggöarlagi. Féð
fékkst meö sölu á handavinnu kvenn-
anna, kökubakstri og kaffisölu.
Verður það látið renna til elliheirriilis
sem ætlunin er aö fara aö reisa í
Búðardal. JBH.