Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1982, Blaðsíða 3
DV. FJMMTUDAGUR 28. OKTOBER1982.
3
Gleymdist að boða
Flugbjörgunarsveitina
—leiðinleg mistök, segir Guðjón Petersen
hjá Almannavömum
„Björgunaræfingin i gær sannaöi
aö sé farið eftir skipulaginu þá
virkar þaö,” sagöi Guöjón Petersen
hjá Almannavörnum í morgun.
Nokkur atriöi fóru þó úrskeiðis.
Á slysstað gekk allt hægt fyrir sig.
Sagði Guðjón þaö mál flugvallar-
manna og ætti eftir aö koma í ljós
hver orsökin væri. Langur tími leið
frá því vélin brotlenti og þar til
fyrstu sjúklingarnir komust í sjúkra-
hús. Að áliti Guðjóns er sá timi of
langur. Um umferðina á Keflavíkur-
veginum kom fram aö ákveðið hafi
verið að truQa hana sem minnst. I
alvöru tilfelli gæti komið til hreins-
unar á veginum en sumir teldu það
óþarft.
Meiriháttar misskilningur kom
upp milli Rauöa krossins og banda-
riska björgunarliðsins. Þeir sem litið
voru meiddir voru Quttir á sjúkra-
húsið en áttu að fara í flugstöðina þar
sem Rauði krossinn var.„Þetta var
hreinlega breyting á skipulaginu og
sá þáttur því ekki prófaður eins og
átti að gera.
Tvennt má enn nefna sem fór á
verriveg: „Viðgerðumþaumistöká
skrifstofu Almannavama að boða
Flugbjörgunarsveitina í Reykjavík
ekki fyrr en of seint fyrir einhvern
leiðinlegan misskilning. Einhver
misskilningur var líka hjá Tíma-
mönnum hvenær blaðið þeirra fer í
dreifingu. Eg las það á skrifstofunni
kl. hálfþrjú.”
-JBH.
Trésmíðafélag
Reykjavíkur
mótmælir bráða-
birgðalögunum
— og gagnrýnir forystu ASÍ
„Trésmíðafélag Reykjavíkur mót-
mælir þeirri aðför að frjálsum
samningum, sem felst í bráöabirgöa-
lögunum, og telur að með slíkum
aðgerðum sé allt tal um frjálsan
samningsrétt og samráð við verkafólk
orðin tóm.” Þannig hljóðar hluti úr
samþykkt sem gerð var á félagsfundi í
Trésmíðafélagi Reyk ja víkur nýlega.
Á öðrum stað í samþykktinni er deilt
á forystu ASl, þar sem segir: „Enn
einu sinni hefur það gerst að stjómvöld
hafa grípiö inn i nýgeröa kjarasamn-
inga, með þeim hætti að skerða vísi-
tölubætur á laun. Enda ekki við öðru að
búast, þegar forysta ASI virðist hafa
gefið tóninn í síðustu samningum þar
sem gengið var þvert á það grand-
vallaratriði að laun skuli vera að fullu
verðtryggð.” -JGH.
Samtök áhugamanna um
fjölmiðlarannsóknir:
FUNDURUM
ÚTVARPSLÖG
Samtök áhugamanna um f jölmiðla-
rannsóknir halda almenna fund um
álit útvarpslaganefndar laugardaginn
næstkomandi, klukkan fjórtán á Kjar-
valsstöðum. Markús Á. Einarsson, for-
maður útvarpslaganefndar, verður á
fundinum til að kynna drög nefndar-
innar að nýjum útvarpslögum og svara
fyrirspumum.
SUNNLENSKAR
konur ;
SAFNA FE
—peningamir ganga til sjúkrahússins
áSelfossi
Að sögn Höllu Aðalsteinsdóttur, for-
manns Sambands sunnlenskra
kvenna, söfnuðust 126.500 krónur núna
um helgina sem eiga að ganga til
endurbóta á gamla sjúkrahúsinu á Sel-
fossi sem er meiningin að endurbæta
og hafa fyrir eldri langlegusjúklinga á
meðan beðiö er eftir nýbyggingu viö
Sjúkrahús Suðurlands. I Samtökum
sunnlenskra kvenna eru 29 félög í
Ámes- og Rangárvallasýslu. Nokkur
félög hér á svæðinu gátu ekki starfað
um þessa miklu söfnunarhelgi vegna
mikUla anna og ætla þau aö senda á
næstu dögum peninga til sambandsins.
Halla formaður gat þess að
verslunareigendur á Selfossi heföu
stutt vel viö bakið á konunum við þetta
myndariega framtak. Era konumar
mjög ánægðar með þetta fyrsta fram-
tak sitt til gamla sjúkrahússins til þess
að geta hlynnt að hinum öldruðu lang-
legusjúklingum.
Á Selfossi söfnuðust 68 þúsund
krónur. Þess má geta aö gamla
sjúkrahúsið hefur staðið ónotað síðast-
Uðið ár en nú á að fara að endurbæta
það með forgangshraöi. Það má líka
geta þess í lokin að Sjúkrahús Suður-
lands, hið nýja hús sem tók til starfa
fyrir tæpu ári, er að fyliast af langlegu-
s júklingum. Er það mest aldrað fólk.
-Regína, Selfossi / JBH.
Mikið
saltað
áhöfn
Hjá Fiskimjölsverksmiðju
Homafjarðar höfðu á mánudaginn
verið saltaðar 4625 tunnur af síld og
von var á 370 tunnum frá Djúpa-
vogi í viðbót. Það er Fífill GK sem
verið hefur fengsælastur Hafnar-
báta en hann hefur landað 1719
tunnum. Á sama tíma í fyrra höfðu
verið saltaðar 8393 tunnur af síld og
var þá 30. október síðasti söltunar-
dagur. PÁ/Júlia, Höfn.
Hr. Pótur Sigurgeirsson biskup og séra Bernharður Guðmundsson skoða
hór fyrsta tölublað Viðförla.
Nýtt
mánaðarblað
kirkjunnar
Fyrsta tölublað tímaritsins Víðförla
er nýlega komið út. Þetta er nýtt
mánaöarblað kirkjunnar og tekur það
við af Fréttabréfi Biskupsstofu.
Utgáfan Skálholt gefur blaöið út. Auk
fréttamiðlunar af kirkjulegu starfi
innanlands sem utan, mun Víðförli
f jalla um ýmis mál líðandi stundar út
frá kristnum sjónarhóli. Svo sem
kunnugt er, var efnt til samkeppni um
heiti blaðsins og bárust um 80 tÚlögur.
Dómnefnd skipuöu séra Jónas Gísla-
son, dósent, Guðmundur Einarsson,
framkvæmdastjóri og Sæmundur
Guðvinsson, fréttafulltrúi. Niðurstaða
dómnefndar var sú, að engin þeirra
tillagna sem bárast, uppfyllti það sem
leitaö var eftir. Því var ákveðið að
blaðiö bæri heitið Víöförli. Það nafn
haföi Sigurbjörn biskup Einarsson
gefið Skálholti en hann hélt um alllangt
skeið úti guðfræðitimariti með sama
nafni. Ritstjóri Víðförla verður séra
Bemharður Guðmundsson fréttafull-
trúi sem áður stýrði FréttabréQ
Biskupsstofu. Afgreiðsla blaðsins er á
Biskupsstofu en prentun þess annast
Dagsprent á Akureyri. -PÁ.
Lúxus heimilistæki
á hagstæðu verði.
-nr.-.T .i- Láttu ekki dragast
Eftirtalin tæki verða seld. að hafa samband.
KS - 405 knliskipur,
hœð 175,380 Iftra, litir: gulur og rauður.
SK — 355 knli- og frystiskápur,
. hsað 175,190 litra knlir, 126 litra f rystir,
litir: gulur og rauður.
KS - 345 knliskipur,
hssð 156, 334 litra, litir: hvitur, beiga, gulur og
rauður.
KS — 356 knliskápur mað frysti,
hnð 156, 310 litra knlir, 24 litra frystihólf, litur:
hvitur.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A -
SlMl I6995
FG — 300 frystískápur,
hnð 155, 271 litri, litir: hvitur, beige, gulur og
rauður.
KSU — 260 kæliskápur,
hnð 132,260 lítra, litir: gulur og rauður.
KF — 285 kmli- og frystiskápur,
hnð 142, 215 litra kmlir, 50 litra frystir, litur:
rauður.
Mjög góður afsláttur vegna litilsháttar útilltsgalla
sem eingöngu eru á hliöum skápanna. Aðeins fáir
skápar af hverri gerð.
DRAGIÐ EKKI AÐ GERA GÓD KAUP.
staðgreiðsluafslAttur.
VILDARKJÖR.