Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1982, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR 28. OKTOBER1982.
Iþróttir
19
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Skagamenn vildu fá
• Magnús Jónatansson — knattspyrnuþjálfarinn snjalll. Mörg félög vilja fá hann til sin.
- en hann hafnaði freistandi tilboði þeirra, þar sem
hann stendur í samningaviðræðum við Breiðablik
George Kirby, enski knattspymu-
þjálfarinn góökunni sem hefur þjálfað
Skagamenn með góðum árangri und-
anfarin ár — gerði þá að bikarmeistur-
um í ár, verður ekki áfram meö Skaga-
menn næsta sumar. DV hefur frétt
eftir áreiðanlegum heimildum að
Skagamenn séu á höttunum eftir ís-
lenskum þjálfara og hafi þeir haft
samband við Magnús Jónatansson,
fyrrum þjálfara ísfirðinga, og óskað
eftir því að hann kæmi til Akraness og
þjálfaði Skagamenn.
Leikmenn Akraness vildu fá Magnús
sem þjálfara og höfum við frétt að for-
ráðamenn knattspyrnuráðs Akraness
hafi haft samband við Magnús í sl.
viku til að bjóða honum starfjð.
Magnús hafnaði boöi Skagamanna.
Eins og DV hefur sagt frá þá hefur
Breiðablik haft samband við Magnús,
sem hefur bæði verið á fundi með for-
ráðamönnum Kópavogsliðsins og leik-
mönnum iiðsins að undanförnu. Við-
ræöur standa enn yfir þannig að það er
enn ekki ljóst hvort að Magnús verður
þjálfari Breiðabliks, þó aö líkumar séu
miklar.
Þá hafa ýmis önnur lið haft samband
við Magnús eins og DV sagöi frá á dög-
unum. Það er greinilegt að mörg félög
vilja fá Magnús í herbúðir sínar, enda
hefur hann sýnt það undanfarin ár að
hann er snjall þjálfari — náð góðum
árangri með KR, Selfoss og Isfirðinga,
sem standa nú uppi þjálfaralausir.-SOS
Heppnin var ekki með
HHHHHHíHHHHHHHHHHHHHHHHHHH^HHHHHHHHHHHHHHHHHHHIHI
Istrákunum í Badaioz
larsem
— Það var nokkuð sárt að þurfa að
tapa fyrir Spánverjum 0—1 hér í Bada-
joz þvi að markið sem þeir skoruðu var
mikið heppnismark. Við fengum svo
besta tækifæri leiksins þegar nokkrar
sekúndur voru til leiksloka, en strák-
unum brást þá bogalistin. Þeir voru
svekktir þegar þeir komu inn í bún-
ingsklefann eftir leikinn, og töluðu um
að Hollendingar hefðu verið heppnir að
jafna 1—1 gegn þeim á elleftu stundi í
Keflavík á dögunum. — Því gátum við
ekki verið heppnir gegn Spánverjum
og jafnað eins og Hollendingar gerðu
gegn okkur, sögðu þeir, sagði Guðni
Kjartansson, þjálfari 21 árs landsliðs-
ins.
Guðni sagði að Ragnar Margeirsson
hefði átt mjög góða sendingu fyrir
mark Spánverjana rétt fyrir leikslok.
Knötturinn fór inn í markteig þeirra —
við fjærstöngina, þar sem þeir OU Þór
Magnússon og Trausti Omarsson voru
á auðum sjó og markmaðurinn stóð
frosinn á marklínu. OU Þór skaut —
knötturinn fór í legginn á Omari og
þaðan beint í fangið á markverðinum,
sem átti bágt með að trúa sínum eigin
augum. — Eg var búinn að sjá knött-
inn í netinu, sagði Guðni.
Guðni sagði að Trausti hefði verið að
undirbúa sig til að skjóta á markið
þegar OU Þór skaust upp að honum og
spyrnti í knöttinn. — Það var grátlegt
að sjá þetta gullna marktækifæri
renna út í sandinn, svona á iokasek-
úndunum. Markvörður Spánverja náði
rétt að sparka knettinum út á vöU
þegar dómarinn flautaði tU leiksloka.
— Strákamir stóðu sig aUir mjög
vel. Þeir börðust, en Spánverjamir
voru þó meh-a meö knöttinn. Við lágum
Tyrkirlögðu
Albani ílzmir
Tyrkir unnu sigur 1—0 yfir Albaníu-
mönnum í Evrópukeppni landsliða í
gærkvöldi í Izmir. Þegar aðeins f jórar
mín. voru til leiksloka skoruðu Tyrkir
sigurmarkið. MiðvaUarspilarinn Arif
Popped fékk knöttinn þá við vítateig og
vippaði hann honum laglega yfir
markvörð Albaníu — Musta Could.
50.000 áhorfendur fögnuðu geysUega.
aftariega, en beittum skyndisóknum,
sagði Guöni.
Heppnismark
Guðni sagði að Spánverjarnir hefðu
byrjað leikinn af miklum krafti, ai ekki
ná að skapa sér tækifæri. Þeir skoraðu
mark sitt á 26. mín. og var mikill
heppnisstimpill á því. Spánverjar áttu
skot að marki, sem ögmundur Krist-
insson markvörður — varði. ögmund-
ur náði ekki að halda knettinum, sem
hafnaöi á höfðinu á Baquero — og fór
af því í netið. Það var sárt fyrir ög-
mund að fá þannig mark á sig þvi aö
hann varði mjög vel í leiknum — þrisv-
ar sinnum afar glæsilega, sagði Guðni.
Guðni gerði tvær breytingar á Uðinu.
Trausti Omarsson kom inn á fyrir Sig-
urjón Kristjánsson og Valur Valsson
tókstöðuHelgaBentssonar. -SOS
Flösku kastað
í Ögmund
í Unglingalandsleik Spánar og
íslands í Badajoz var flösku kastað frá
áhorfendasvæðinu í ögmund Kristins-
son, markvörð tslands. Ögmundur
meiddist ekki og hélt áfram leiknum
ótruflaður af þessu atviki. Spánskir
lögreglumenn komu þegar á vettvang
og gripu þann sem kastað hafði flösk-
unni. Farið var með hann af leikvang-
inum og dólgurinn fékk að gista fanga-
geymslur lögreglunnar í nótt.
eppnismarki
Ragnar Margeirsson.
„¥ið þurfum á
Ragnari að halda”
- segir Grijzenhout, þjálfari CS Brugge
Frá Kristjáni Bernburg — frétta-
manni DV í Belgíu. — Það er sagt
frá því hér í blaðinu í dag að CS
Brugge hafi mikinn áhuga á að fá
Ragnar Margeirsson frá Keflavík
til liðs við sig út keppnistímabillð.
HoUenski þjálfarinn Han Grijzen-
hout hjá CS Brugge sagði í blaða-
viðtaU að félagið þyrfti að fá fleiri
leikmenn til liðs við félagið — í þá
hörðu baráttu sem væri framund-
an.
— Við viljum fá Ragnar sem
fyrst til Belgíu þannig að hann geti
farið að leika með okkur, sagði
Grijzenhout.
Blöðin hér segja að CS Brugge
hafi einnig áhuga á að fá finnskan
leikmann — Ukkonen, sem er 21
árs miðvallarspilari. Ef Ragnar
kemur ekki til félagsins, mun CS
Brugge bjóða Finnanum samning.
-KB/-SOS
Brooking
f uppskurð
Trevor Brooking, enski landsliðs-
maðurinn hjá West Ham, sem meiddist
i nára í HM á Spáni í sumar og hefur
ekki leikið með West Ham á keppnis-
timabilinu, verður að ganga undir upp-
skurð. Brooking mun því ekki leika
með Lundúnaliðinu á næstunni.
SK/Ð/
' TILBOD '
HUMMEL sportbúðin
Ármúla 38
Leikum á verðbólguna, bjóðum
skiði og skiðaskó á sama verði
og var í vor á meðan birgðir
endast, greiðslukjör.
White star pro 180—210
White star pro junior 165-
Blue Star 88 180—190
Blue Star Mid og GT 170-
Cup star RS og Mid 170—190 1457.
Red Star 88 180—190 2513.
Red Star 110—130 870.
Red star 140—160 978.
Red star 165—175 1134.
Racer 80—130 697.
Racer 140—150 782.
Touring gönguskiði 180—215 825.
Skiðaskór. Stefan Austurríki.
Strator keppnisskór 38—47 1591
Exsplorer keppnisskór 38—46 1666.
Champ 42—47 1148.
GT 38—17 910.
Swinger 42—47 811.
Cat 37—11 760.
Flash 38—47 7g0.
Spider 41—-47 672.
Junior 32—,37 549.
Maya 25—30 366.
Löipc gönguskór 36—47 425
Salomon bindingar —
Look bindingar —
Rottefella göngubindingar.
Asetning á staðnum,
PÖSTSENDUM
Býdur einhver betur!!!.
■lÁMlJlulEiJ búðin
Armúla 38-Sími 83555