Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1982, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1982, Page 17
DV. MANUDAGUR1. NOVEMBER1982. 17 Lesendur Lesendur Þessi forsiðumynd DV föstudaginn 22. þ.m. vakti athygli Lovísu Einars- dóttur vegna þess að bróffáninn fyrir miðri mynd errifinn. Lovisa segirþað vera tii skammar að ekki fáist hór taufánar. — Orð i tima töluð. BRÉFFÁNAR HALDA EKKIREISN GEGN ÍSLENSKU VEÐURFARI Lovisa Einarsdóttir skrifar: Forsíðumynd DV föstudaginn 22. október sl. er tilefni þessara lína þar eö ég rak augun í að bamið fremst á myndinni er með rifinn fána. Árum saman hefur ekki annað veriö á boð- stólum en bréffánar. Þeir halda ekki reisn gegn islensku veðurfari heldur tætast niður, sbr. myndina. 17. júní og við opinberar móttökur er fáninn helst í höndum barnanna. Má það heita þjóðarskömm aö ekki skulu fást taufánar, eins og voru til hér fyrr á árum, svo hægt sé að fagna hátíðum og þjóöhöfðingjum meö sómasamlegt þjóðartákn í höndum. Hjá norskættaðri vinkonu minni hef ég séö fallegan taufána. Hún fékk hann sem barn. Höfðu foreldrar hennar átt hann á undan henni og alltaf er fáninn jafn nothæfur og fallegur. 1986 verða liðin 200 ár frá því að Reykjavík fékk kaupstaöarréttindi. Vil ég hér með benda hátíðamefnd þess afmælis á það verðuga verkefni að láta framleiða taufána fyrir æsku borgarinnar; fána sem halda veðri og vindi og hægt er að „tjalda” lengur en til einnar nætur. Rikisútvarpið á sór víða trygga stuðningsmenn. í. dag berast hljóðvarpi hlýjar kveðjur. Til Ríkisútvarpsins: Nokkrar frómar óskir gamals útvarpsunnanda H. G. skrifar: Nokkrar frómar óskir til RUV frá gömlum útvarpsunnanda: I. Að svokallað „frjálst” útvarp aug- lýsenda, fjárbrallsmanna og rokk- ara eigi sem lengst í land. 2. Að afnotagjald útvarps/sjónvarps verði innheimt með gjöldum til ríkissjóös og stofnuninni síöan skilað sínum hlut óskertum. 3. Að RtJV hafi sína eigin dagskrár- stjóm. Hætt verði að kjósa útvarps- ráð eftir pólitískri hlutaskiptareglu á Alþingi. Sumir kalla þessa ráðs- menn „varðhunda flokkanna’’.^ Forði mér samt frá svo syndsam- leguorðbragði! 4. Að tímasetning fastra dagskrárliða verði látin standast, a.m.k. öðru hverju. Iþróttaþáttur í sjónvarpi fer t.d. hvað eftir annaö 10 mínútur fram í næsta dagskrárliö. Þetta er ekkihægt. 5. Að orðuþáttur Olafs Sigurðssonar verði endurtekinn, en bætt við í lok- in skrúðfylkingu krossbera við mót- töku Finnlandsforseta. Annars ánægjuleg heimsókn og veri hann Koivistó guði bífalaður. Þingmönn- um til skoðunar endurtek ég fyrri tillögur mínar á prenti þess efnis, að krossberar borgi skatt af dingaling- inu. 6. Að morgunbænir verði ekki fluttur „niðursoðnar”, heldur komi prestar og annað gott fólk upp í útvarp hverju sinni og flytji okkur orðið ferskt, mælt af munni fram eins og andinn inngefur, ekki kassettubæn- ir. Þettaeru mjúku klossamir, sem Náttúrulækningabúöin mælir meö ÞETTA ERU HELSTU KOSTIRNIR: > Þeir eru meö 5 mm þykku viðar-innleggi. > Þeir eru léttir sem fis, með mjúkum sóla. Það dregur úr slysahættu. > Þeir mynda enga smelli eða skelli þegar þú gengur á þeim á stein- gólfum, þeir eru alveg hljóðlausir og það kunna sjúklingar á sjúkra- húsumaðmeta. > Þeir fara betur með hrygginn og fæturna en aðrir skór, þannig draga þeir úr þreytu og auka vinnuafköst. • Þeirendastogendastogsparaþvípeninga. > Þeir eru stöðugir á hálum gólfum. • Þeir eru til í mörgum geröum og litum. • Ein gerðin er með stálfóðrari tá og verndar þannig fætur þeirra, sem vinna með þunga hluti. > Þeir eru til í númerum 35—46. Þeir fást í Náttúrulækningabúðmni að Laugavegi 25, sími 10262 og 10263. > Við sendum þá í póstkröfu hvert á land sem er, eins og aðrar vörur okkar. » Starfshópar, sem kaupa mörg pör, fá afslátt. NATTURULÆKNINGABÚÐIN Laugavegi 25, símar 10262 og 10263 LONDON Dömudeild Austurstræti 14 — Sími 14260 lár, dökkblár, hvítur, r. kr. 1075,00 Póstsendum um land allt Litir: Blár, brúnn, vínraudur, gra Verð: kr. 1150, Létt hetta

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.