Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Blaðsíða 24
24 DV. FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER1982. DV. FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER1982. 25 Amór bestur í Belgíu Frá Kristjáni Bernburg — fréttamanni DV í Belgíu. — Arnór Guðjohnsen hefur nú tekið forustuna í keppninni um nafnbótina „Besti knattspyrnumaður Belgíu.” Arnór er nú efstur á blaði með 39 stig og það þrátt fyrir að hann hafi misst af tveimur leikjum með Lokeren. Arnór hefur þar með skotið landsliðsmönnum Belgíu ref fyrir rass. Fjórir leikmenn hafa hlotið 38 stig en það eru: Ludo Coeck. Anderlecht, Eric Gerets, Standard Liege, Michel Dewolf, Molenbeek, og Hubert Cordiez, AA Gent. Simon Tahamta hjá Standard Liege er meö 35 stig og Juan Lozano hjá Anderlecht er með 36 stig. -KB/-SOS Pow Arnór Guðjohnsen. Rómverjar ekki í jólaköttinn Leikmenn Roma fengu kr. 125.000 fyrir að leggja Köln að velli 2-0 íUEFA-bikarkeppninni Frá Axel Axelssyni — fréttamanni DV í V-Þýskalandi: — 1 FC Köln, sem lék án Gerd Strack — hefur verið skorinn upp við slitnum Iiðböndum — Paul Steiner og Harald Konopka, mátti þola tap, 0:2, fyrir Roma í UEFA-bikarkeppninni í Róm í gær og þar með voru Rómverjarnir búnir að tryggja sér rétt til að leika í 8-liða úrslitunum. Hver leikmaður Roma fékk kr. 125.000 í bónus fýrir sigurinn. Þar sem f rídagur var á Italíu í gær var leikurinn leikinn í gærdag og hófst hann nokkru eftir áætlaðan leiktíma, þar sem mikið var skotið upp af reyksprengjum þannig að mik- ill reykmökkur lá yfir vellinum. Leikmenn Köln byrjuöu með því að leika varnarleik og ætluöu þeir greinilega að halda fengnum hlut - þeir unnu 1:0 í Köln. Rómverjar sóttu meira í fyrri hálfleik en náðu þó ekki aö skapa sér veruleg marktækifæri, Þeir settu síðan á fulla ferð í seinni hálfleik og áttu þeir Bruno Conti og Brasilíumaöurinn Falcao stórgóðan leik á miðjunni. Roma skoraði sitt fyrra mark á 55. mín. Fyrirliði liðsins, Agostino di Bartolomei, tók þá aukaspymu og skaut að marki. Toni Schumacher varði en missti knöttinn út þar sem Maurizio Lorio var vel staðsettur og skallaði hann knöttinn í netiö. Roma skoraöi sitt annað mark á 88. mín. eftir hornspyrnu. Falcao fékk knöttinn á auöum sjó og skoraði örugglega — 2:0. 65.000 áhorfendur fögnuðu geysi- lega. Óskabyrjun Dundee Utd Skoska liðiö Dundee United fékk óskabyrjun í Bremen, þar sem 40 þús. áhorfendur sáu Paul Hegarty skalla knött- inn í netiö hjá Bremen eftir aðeins 3 mín. Eftir þaö sóttu leikmenn Bremen mikið í leiknum, sem var geysilega fjör- ugur. Landsliösmaðurinn Völler jafnaöi, 1:1, á 49. mín. meö skalla. Stal undan 18 3 millj. frönkum... Frá Kristjáni Bernburg — fréttamanni DV í Belgíu. — Nú liggur það ljóst fyrir hvað fyrrum formaður franska liösins St. Etienne, Roger Rocher, stal mikilli peningaupphæö undan sl. keppnistímabil. Það var sagt frá því hér í fréttum í gær að upphæðin hefði veriö 18,3 milljónir franskra franka, eða um 130 milljónir bel- gískra franka. Ekki eru öll kurl komin til grafar í málinu. „Það er slæmt að missa Þorberg” — sagði Hilmar Bjömsson. Óvíst hvort Guðmundur Guðmundsson kemst til A-Þýskalands Þorbergur f gifsi næstu sex vikurnar — Það er að sjálfsögðu mjög slæmt að missa Þorberg Aðalsteins- son út úr hópnum þegar undirbúningurinn fyrir B-keppnina er að byrja á fullum krafti,sagði Hilmar Björnsson landsiiðsþjálfari i stuttu spjalli við DV í gærkvöld. Hilmar sagði að þá væri óvist hvort Guömundur Guðmundsson úr Víkingi kæmist meö landsliðinu til A- Þýskalands. — Það veröur ljóst í dag. — Hvað með Sigurð Gunnarsson úrVíkingi? — Sigurður gat ekki leikið með Víkingum í Prag vegna meiösla en hann er að verða góður. Eg mun sjá hann leika með Víkingi gegn Dukla Prag og þá mun koma í ljós hvort hann kemst meö til A-Þýskalands. — Eg reikna meö að þurfa aö bæta við einum eða jafnvel tveimur leik- mönnum í landsliðshópinn fyrir keppnina í A-Þýskalandi, sagði Hilmar. -SOS Vafasamt að fyrirliði landsliðsins geti leikið i B-keppni heimsmeistarakeppninnar „Liöböndin voru öll sundurtætt og liöpokinn farinn á þumalfingri hægri handar. Eg var fljótt skorinn upp eftir að ég kom heim frá Tékkóslóvakíu á þriðjudagskvöld og læknirinn Leifur Jónsson, segir mér að aðgerðin hafi tekist vel,” sagði Þorbergur Aðalsteins- son, fyrirliði Islandsmeistara Víkings og íslenska landsliðsins, þegar DV ræddi við hann í gær. Þorbergur slasaöist illa eftir aðeins fimm minútur í fyrri leik Dukla og Víkings í Evrópukeppni meistaraliða í Prag á sunnudag og gat ekki leikið meir. Völler fór illa með fjögur önnur tæki- færi í leiknum — átti skot í slá og síðan í stöng. Þar aö auki skallaöi hann yfir skoska markið úr dauðafæri og einu sinni var skoti frá honum bjargað á marklínu. Ekki tókst leikmönnum Bremen að knýja fram sigur. Þar sem Dundee Utd. vann fyrri leikinn, 2:1, komst liðið áfram á samanlagðri markatölu 3:2. Stórsigur Kaiserslautern vann stórsigur, 4:0, yfir Sevilla. 35 þús. áhorfendur sáu Svíann Thorbjörn Nielsson skora með skalla af 11 m færi á 10. min. og síðan skoruðu þeir Geye, Brehme, sem skoraði úr aukaspyrnu af 40 m færi, og Eilenfeldt. Kaiserslautern vann samanlagt4:l. -Axel/-SOS Brasilíumaðuriim Falcao skoraði hið þýðingarmikla mark Roma. Afgreiðum | )á i ki iáh c itel- um — gerum lá \ rellin um” Benfica er ostdðvandi — og hefur tekið stefnuna á UEFA-bikarinn Benfica frá Portúgal hefur tekið stefnuna á UEFA-bikarinn. 65.000 áborfendur sáu þetta gamalkunna félag vinna öruggan sigur, 4:0, yfir FC Zurich frá Sviss í Lissabon í gærkvöldi og þar með er Benfica komið áfram í 8- liða úrslitin ásamt Kaiserslautern, V- Þýskalandi, Valencia, Spáni, Bohemi- ans Prag, Tékkóslóvakíu, Anderlecht, Belgíu, Dundee United, Skotlandi, Roma, Italíu, og Craiova frá Rúmeníu. Flestir veöja nú á Benfica, sem leikur mjög góða knattspyrnu. Filipovic, Diamantino og porúgalski landsliöamaðurinn Nene (2) skoruöu mörk liðsins. • Craiova frá Rúmeníu lagöi Bordeaux frá Frakklandi að velli — eftir framlengdan leik. Frakkarnir unnu fyrri leikinn 1:0, en Rúmenarnir höföu yfir, 1:0, meö marki frá Ticleanu eftir venjulegan leiktíma í gærkvöldi og þurfti því aö framlengja leikinn. I framlengingunni skoraði Geolgau annað mark Craiova. • Bohemians Prag lagöi Servette frá Sviss aö velli, 2:1, í Prag og vann þvísamanlagt4:3. • Anderlecht frá Belgíu tapaöi 0:1 í Saraheovo í Júgóslavíu. Þaö kom ekki að sök því að Anderlecht vann fyrri leikinn6:l. • Valencia frá Spáni lagði Spartak Moskva að velli, 2:0, í Valencia og vann því samanlagt 2:0. Liðin skildu jöfn í Moskvu á dögunum — 0:0. -sos Dregið hefur verið í riöla í Reykja- víkurmótinu í innanhússknattspyrnu, sem fer fram í Laugardalshöllinni 5. janúar. A-RIÐILL: — Þróttur, Valur, Fylkir og Víkingur. B-RIÐILL: — Armann, Fram, KR og IR. -SOS. Þorbergur Aðalsteinsson sést hér ásamt börnum sínum Sonju og Aðalsteini. Hann þarf að vera með gifs á hægri handlegg næstu sex vikurnar. DV-mynd: Einar O. Víkingur, síðasta von íslands í Evrópumótunum: „Viö munum að sjálfsögðu ekki setja leikmenn Dukla Prag á lélegt hótel. Þeir verða á Hótel Esju eins og fyrir- hugað var og það er ekki mannlegt að hefna sín þó einhver hafi einhvern tímann verið settur á lélegt hótel. Við ætlum ekki að afgreiða Tékkana á hót- elum, við ætlum að gera það á vell- inum,” sagði Jón Valdimarsson, for- stöðumaður handknattleiksdeildar Víkings, á blaðamannafundi í Nausti í gær. Síðari leikur Víkings og Dukla Prag í Evrópukeppni meistaraliða verður í Laugardalshöll á sunnudag kl. 20. Það kom greinilega fram á fundin- um að Víkingar hyggja á hefndir á vellinum. Það verður ekkert gefið eftir. Allt sett á fulla ferð, tekin áhætta til að reyna að vinna upp átta marka muninn frá fyrri leiknum. Þeir Páll Björgvinsson og Sigurður Gunnarsson leika með Víking á sunnudag. Léku ekki í Prag. Pólski þjálfarinn snjalli hjá Víking, Bogdan Kowalczyk, sagði að undir eölilegum kringumstæðum ætti Víking- ar að vinna Dukla Prag. „Það verður tekin áhætta á sunnudag og ekki fariö neinum vettlingatökum um tékknesku leikmennina. Annaö hvort gengur það upp eða ekki en það verður tekin áhætta,” sagði Bogdan en undir stjórn hans hafa Víkingar orðið Islandsmeist- arar þrjú síöustu árin og oftast með meiri yfirburðum en dæmi eru til hér áður. Bogdan var ekki sama sinnis og stjórnarmenn Víkings. Hann vill setja — segir lón Valdimarsson, formaður handknattleiksdeildar Víkings M Bogdan vill setja leikmenn Dukla Prag á lélegasta hótel sem finnst M Engin blóm — aðeins blóð í Laugardalshöll ásunnudag Tékkana á lélegasta hótel sem hér er hægtaðfinna. Enginn eftirlitsdómari Jón Valdimarsson rakti að nokkru feröasögu Víkings til Tékkóslóvakíu og leikinn við Dukla þar. Margt af því hefur komið fram hér áður í blaöinu en þess má geta að enginn eftirlitsdómari var á leiknum í Prag og ungversku dómararnir algjörir heimadómarar. Sex sinnum var leikmönnum Víkings vikið af velli, aöeins í síðari hálfleikn- um. En þeir voru mun lengur út af en tólf mínútur, því tékkneskir tímaverö- ir sáu sér leik á borði í eftirlitsleysinu að láta leikmenn Víkings vera utan vallar mun lengur en tvær mínútur hverju sinni. Eitt sinn, þegar Steinari Birgissyni var vikið af velli í annað sinn í leiknum, var hann utan vallar háttáfjóröumínútu. Allt var á sömu bókina lært. Mikið ósamræmi milli dómaranna og sá sem studdi Tékka betur hafði alltaf vinn- inginn. Víkingur skoraði gott mark á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks. Inni- dómarinn dæmdi mark — útidómarinn sagði aö leiktiminn hefði verið búinn. Tímaverðir studdu hann auðvitaö og hann hafði sitt fram. Víkinga örugg- ir að knötturinn lá í markinu áður en flautan gall. Fjórum sinnum dæmdi annar dómarinn Víkingum innköst sem hinn breytti í innköst fyrir Tékka, jafnvel eftir stangarskot í Víkings- markið og enginn Víkinganna hafði komið við knöttinn. Austurblokkin er söm viö sig á íþróttasviðinu en hér heima fáum við oftast Norðurlanda- dómara, okkur miður hliðholla. Nær helming leiktímans í síðari hálfleik voru Víkingar einum færri. Það hafði sitt að segja og þá tókst Dukla að tryggja sér gott forskot. „Þetta er það versta sem ég hef nokkru sinni lent í,” sagði Olafur Jóns- son, en hann er eini leikmaöur Víkings sem leikiö hefur alla Evrópuleiki félagsins í handknattleik. „Tékkunum leyfðist allt og lömdu okkur og börðu. Við munum taka þá föstum tökum á sunnudag. Ekkert gefiö eftir. Þetta verður blóöugur leikur.” Einn leikmanna Víkings á „blóma- leik” á sunnudag — leikur þá sinn hundraöasta leik í meistaraflokki Vík- ings. „Það veröa engin blóm á sunnu- dag,” sagði Jón Valdimarsson og annar bætti við. „Aöeins blóð”. hsim. Hlaupa fyrir peninga! Norska hlaupadrottningin Grete Waitz ferðast nú um heiminn og tekur þátt i öllum meiriháttar laughlaupum sem háun á kost á. Er fullyrt að hún fái stórar peningaupphæðir fyrir hvert hlaup, en erfiðlega hefur gengið að sanna það. Hún tók um helgina þátt í 12 km víða- vagnshlaupi á Nýja Sjálandi og varð þar í öðru sæti á eftir Dixon frá Nýja Sjálandi. Þær stöllur urðu einnig í 1. og 2. sæti á móti Astralíu fyrir nokkrum dögum og fengu ýmislegt annaö en verölaunapening um hálsinn fyrir þaö að sögn erlendra blaða. -klp- „Eg hafði skorað bæði mörk Víkings á þessum fimm mín- útum, staðan þá 3—2 fyrir Dukla að ég held. Fyrra markið skoraði ég eftir gegn- umbrot og það síðara meö langskoti. Eg fann mig vel í leiknum og var að reyna þriðja Imarkskotiö þegar einn varnarmanna Dukla sló bylmings- högg á skothöndina. Beinlínis karatehögg. Allt búið og ég fór á sjúkrahús í Prag. Þetta er ákaflega grófur leikmaður, stór varnarköggur, sem aðeins kom inn á í vörnina. Tveir Frakkar tóku vfta- spyrnu gegn ís- landi 1957 Frá Kristjáni Bernburg — fréttamanni DV í Belgíu. Það hefur mikið verið skrifað um markið sem Johann Cruyff skor- aði fyrir Ajax um sl. helgi — þegar hann tók vítaspyrnu og sendi knöttinn til Danans Jesper Olsen og fékk siðan knöttinn aftur og skoraði. Markið hefur verið sýnt hvað eftir annað og þá hefur einnig verið sýnt sögufrægt mark frá 1957 en þá var svipað mark skor- að. Það voru Frakkar sem skor- uðu markið í landsleik gegn Is- lendingum í Nantes. Frakkar unnu leíkinn sem var liður í HM — 8—0. Viðtal hefur verið haft við leikmanninn sem skoraði mark- ið. Það er Rik Coppens sem er nú þjálfari Beerschot hér í Belgíu. KB/-SOS Hann lék Guðmund Guðmundsson grátt í leiknum síðar án þess að fá nokkuð tiltal frekar en þegar hann braut á mér. Eg verð með höndina í gifsi í sex vikur eöa langt fram í janúar. Þaö er ekkert hægt að flýta þessu, það veröur aö fá að gróa. Eg vona að ég verði jafn- góður í fingrinum á eftir því aðgeröin heppnaðist vel og ég er mjög þakklátur Leifi lækni. En maður veit ekkert fyrr en gifsið verður tekið af. Vona og bið í lengstu lög að ég fái ekki staurfingur. Eins og málin standa í dag eru kannski litlar líkur á að ég geti tekið þátt í B- keppni heimsmeistarakeppninnar í handknattleik. En læknarnir eru snjallir og hafa oft gert kraftaverk á þessu sviði. Það er ákaflega svekkjandi að veröa fyrir slíku slysi á miðju keppnistíma- bili og þaö aðeins vegna fólsku mót- herja. Svekkjandi vegna allrar þeirrar vinnu sem maður hefur lagt á sig í sumar, haust og vetur til að vera í sem bestri æfingu meö félagsliði sínu og landsliðinu. Það er erfitt aö sætta sig við það og ég vona að félagar mínir í Víkingsliöinu láti Tékkana finna fyrir sér á sunnudag og sigri Dukla Prag með miklum mun þó ég geti ekki leikiö með,” sagði Þorbergur Aðalsteinsson, þessi stórskytta Víkings og íslenska landsliðsins, að lokum. Víkingur og landsliðiö geta illa veriö án hans í þeim miklu verkefnum sem framundan eru. , hsím. Kristján Arason. Kristján skoraði tólf mörk — en það dugði FH ekki gegn Zeljeznicar, sem vann 31-27 Kristján Arason skoraði 12 mörk fyrir FH gegn júgóslavneska liðinu Zeljeznicar í vináttuleik í Laugardals- höllinni í gærkvöldi. Ekki dugði það framlag hans til sigurs því að Júgó- slavarnir unnu 31—27. Ahuginn var ekki mikill í herbúöum FH því aö eftir að FH-ingar höfðu skor- aö fyrsta mark leiksins, 1—0, svöruðu Júgóslavarnir með átta mörkum í röð og komust í 8—1 og þeir héldu síðan fengnum hlut — komust í 17—9 og voru yfir í leikhléi 17—12. FH-ingar skoruðu fyrsta markið, eins og fyrr segir. 48 mörkum seinna komust þeir aftur yfir — 25—24, en Júgóslavarnir voru síðan sterkari á lokasprettinum og unnu öruggan sigur. Landsliðsmennirnir Kristján Arason og Þorgils Ottar Mathiesen voru skástu leikmenn FH-liðsins, sem lék illa. Mörk FH skoruðu: Kristján 12/4, Þorgils Öttar 6, Pálmi 4, Guðmundur M. 2, Hans 2, og Finnur 1. -sos íþróttir íþróttir íþrótt íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Þú færð jólagjöf íþróttamannsins i Soörtu § Stiga og Butterfly borðtennisvörur Landsins mesta úrval Borðtennisborð Spaðar, 20 teg. Gríndur Carbon spaðar Hulstur-töskur B orð tennisskór ,PORTVðRU™,#lUN,M Gúmmí, 5 teg. Net og uppistöður Kú/ur — Gúmmí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.