Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Blaðsíða 8
8 DV. FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Gervihjarta- þegarfá að hafna lífinu Að sögn dr. Willems Kolff við háskólasjúkrahúsið í Utah munu þeir sem fá gervihjarta jafnframt fá í hendur lykil til að loka fyrir vélina sem knýr það. Eins og komið hefur fram í fréttum varð tannlæknirinn Bamey Clark fyrstur manna til að fá gervihjarta úr áli við háskólasjúkrahúsið í Utah. — Ef maðurinn þjáist og telur að það hafi enga þýðingu fyrir sig að lifa lengur getur hann notað lykilinn, segir dr. Kolff. — Eg álít aö sá sem hefur fengið framlengingu á lífi sínu á þenn- an hátt eigi líka að fá að hafna því ef hann nýtur þess á engan hátt lengur. Minnisvarðinn um George Washington, þar sem hann gnæfir yfir umhverfi sitt í höfuðborg Bandaríkjanna. Myndin var tekin í jólaundirbúningi fyrír nokkrum árum. Herforingjamir voru lítt hrifnir af MX-áætluninni Nýjar deilur hafa nú sprottið upp um áætlanir Reagans Bandaríkjaforseta varðandi MX-kjarnorkuflugskeytin, eftir að komið hefúr fram að þrír hátt- settir bandarískir herforingjar hafi í upphafi iagst gegn þeim. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings afgreiddi í gær frumvarp um f járveit- ingar til varnarmála ('tir að hafa áður fellt úr því nær milljarðar fjárveitingu sem ætluð var til smíði skotstöðva fyrir MX-flugskeytin. Vamarmálanefnd öldungadeild- arinnar kom saman í gær og upplýstist þar að þrír af fimm hershöfðingjum í sameiginlegu herráðinu hefði strax í upphafi verið andvígir MX-áætluninni. Einn þeirra hafði þó tekið fram að hann gæti stutt hana ef hún þætti greiða fyrir samningaviðræðum við Sovétmenn um afvopnanir. Reaganstjórnin setur sitt traust nú á öldungadeildina til þess að koma MX- áætluninni inn á fjárlög. Heyrst hefur þó að meðal öldungadeildarþing- manna ríki nokkur andstaða við áætl- Hótaði að sprengja minnis- merkið um George Washington Kjarnorkuandstæöingur, sem í tólf um George Washington, lét lífið í stundir hélt lögreglu höfuöborgar kúlnahríð þegar hann reyndi að aka Bandarikjanna í skefjum með því að hóta að sprengja upp minnismerkið 10 vandar- höggog fangelsi Sextugur maður var hýddur opinberlega á torgi í Sukkur (375 km norðaustur af Karachi) í Pakistan í gær til fullnustu dóms, sem hann hlaut fyrir að nema unga stúlku á brott fyrir tveim árum. Hundruð manna þyrptust að til þess að horfa á þegar böðullinn veitti Mohannad Hussain tíu vandarhögg. Tók það um hálfa klukkustund, en læknar fylgdust með og skoöuðu fangann tvívegis meðan hann tók út refsinguna. Hussain var einnig dæmdur í þriggja ára fangelsL Kaþólskum pólitíkusum bann- að að koma til Bretlands Breska stjómin hefur aflýst heim- sókn þriggja leiðtoga írskra lýðveldis- sinna til London þar sem þeir áttu að vera gestir forseta æöra borgarráðs London. Ástæðan er sprengjutilræðið í ölkránni í Ballykelly á mánudaginn, þar sem sextán biðu bana og sextíu og sex særðust. William Whitelaw innanríkisráð- herra setti í gær bann við því að þrímenningamir fengju að koma til Bretlands. Var það að beiðni Lundúna- lögreglunnar grundvöiluð á upplýs- ingum um að mennirnir hefðu allir einhvem tíma verið tengdir hryðju- verkastarfi IRA, írska lýðveldishers- Þessir þrír menn eru Gerry Adams, varaformaður Sinn Fein, Daniel Morrison, almannatengslamaður flokksins, og Martin McGuinness, fyrrum foringi í IRA. McGuinness var í eina tíð efstur á lista írsku lögregl- unnar yfir eftirlýsta hryðjuverka- menn. Þrímenningarnir eru allir kjörnir fulltrúar á hið nýja heimaþing N- írlands en hafa ekki tekið sæti sín þar frekar en flestir aðrir þingmenn kaþólikka. Mjög hefur verið lagt að borgarráði Lundúna síöustu daga aö afturkalla boð þessara þriggja manna sem ætl- uöu að kynna málstað lýðveidissinna og tala máli sameiningar Norður- og Suður-Irlands. Ken Livingstone, for- seti borgarráðs, haföi neitað aö aftur- kalla boðið. Breska öryggisliðinu á N-Irlandi hefur nú verið bannað að yfirgefa herskála sína og bækistöðvar í frítímum. burt af staðnum í gærkvöldi. Hvítur sendibill sem hann ók á ofsahraöa valt með hann en áður hafði hann sagt bíl- inn hlaöinn af sprengiefni. Lögreglan sá bílinn renna af stað skömmu eftir að myrkur skall á í gær- kvöldi og hóf þegar skothríð á hann. Ekki lá ljóst fyrir í morgun hvort mað- urinn hefði orðið fyrir byssukúlum eða látist af bílveltunni. Algert umferðaröngþveiti var síðari hluta dags í þessum hluta höfuðborg- arinnar eftir að spurðist að maður meö hálft tonn af dinamíti ætlaði að sprengja í loft upp Washington-minnis- merkið. Nærliggjandi opinberar skrif- stofur voru rýmdar og íbúum Hvíta hússins var haldið frá þeirri hliðinni sem sneri að minnismerkinu. Þegar lögreglan kom að hvíta sendi- biinum á hvolfi fann hún ekilinn hand- jámaöan við stýrið og var hann látinn. Er haldið að hann sé maöur að nafni Norman Mayer, 66 ára gamall kjarn- orkuandstæöingur frá Miami, sem margsinnis hefur haldið uppi mót- mælaaögeröum við hliðið að Hvíta húsinu. Lögreglan hafði séð annan mann smjúga inn í minnismerkið sem frægt er um heim allan af póstkortum. Þaö var eftir að umsátrinu létti. Skaut hún táragasi inn í bygginguna og leitaði í stigagöngum. Ekki kom fram í fréttum í nótt hvort nokkurt sprengiefni hefði fundist í sendibíl Mayers. Hann hafði lagt bílnum við minnis- merkið snemma í gærmorgun, stokkið út og skipað fólki að verða á brott. Stóð fólki stuggur af manninum eins og hann lét og auk þess með bifhjólahjálm á höfði og niðurfellt dökklitað öryggis- gler fyrir andlitinu. Níu ferðamenn voru inni í minnismerkinu og eftir fimm klukkustundir leyfði maðurinn þeim að fara frjálsum ferða sinna. Hann veitti einum blaðamanni viðtal og sagðist viija vekja upp umræður um algert bann við kjarnorkuvopnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.