Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982. VELDU ÞAÐ RÉTTA — FÁÐUÞÉR CLOETTA !arlsl 26 C<un fvlWaírKTÍB i rtm msftiSrtinkM -umboðið^ Sími 20350., Svissnesk quartz Fást flestum j úrsmiÖum. Lögbannið á Kambsmenn dæmt ógilt Hæstaréttardómur féll í gær í máli nokkurra vörubifreiöarstjóra í Kefla- vík gegn Vörubílastöö Keflavíkur. Lögbann á þá er þar fellt úr gildi. Forsaga málsins er í stuttu máli sú aö í september 1979 voru 3 menn reknir af stööinni vegna þess aö þeir heföu stofnað félag sem væri komið í sam- keppni við hana. Einnig var sett lögbann á leiguakstur þeirra. Mennirnir hafa síðan starfaö hjá verk- takafyrirtæki á Suðurnesjum. I héraösdómi var lögbanniö staöfest en máliö snerist viö hjá Hæstarétti. í dómsorði þar segir meöal annars aö lögbann sé fellt úr gildi og brottvikning viökomandi bílstjóra úr Vörubílstjóra- félagi Suöurnesja hinn 13. september 1979 ógild. Mál eins bílstjóranna var látiö fara áfram fyrir Hæstarétt sem prófmál. Aö sögn Auöuns Guömundssonar, stjórnarformanns Kambs h/f, félags þremenninganna, eru þeir ekkert farnir aö ræöa hvaö gera skuli nú. Hann taldi þó allar líkur á aö þeir færu fram á skaðabætur vegna þess tjóns semþeirheföuorðiðfyrir. -JBH. „Ekkert gosstríð” „Þaö er langt í frá aö þaö sé eitthvert veröstríö á gosdrykkja- markaönum í uppsiglingu eins og sum blööin og útvarpiö hafa látiö í veöri vaka,” sagði Pétur Björnsson, for- stjóri Vífilfells, í viötali viö DV í morgun. „Þaö sem við hjá Vífilfelli erum að gera er aö viö erum meö kynningar- verð til neytenda á nýjum drykkjum á lítraflöskum. Er þar um aö ræöa TAB, Fresca, Sprite og Fanta. Það var löngu ákveöiö að gera þetta í jólamánuðinum og áöur en viö geröum þaö var haft samband viö Verölagsstofnun og ráögast um þetta einstaka tilfelli um afslátt til neytenda á vörum í þessum iðnaöi”. Afslátturinn sem Vífilfell veitir á þessum drykkjum er 15%. Sagt var að Sanitas hefði svaraö þessu meö því aö birgja upp allar verslanir og stór- markaöi af gosdiykkjum á gamla veröinu áöur en gosdrykkir hækkuðu í verði í síöustu viku um 11%. , JCaupmenn vissu um þessa hækkun og pöntuöu gosdrykki frá okkur áöur en hún kom til framkvæmda,” sagði Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas. „Þeir sem pöntuöu og fengu afgreitt fyrir 2. desember fengu aö sjálfsögöu vöruna á gamla veröinu en þeir sem pöntuöu eftir þaö fengu hana á því nýja. Þama er því síður en svo um neitt gosstríö aö ræöa,” sagðihann. -klp- LOKI Já, það er ekki ál-litlegt á- standið. Aðrar lausnir hefðu getað orðið ódýrari —segir hagsýslust jóri um álklæðningu Þjóðarbókhlöðunnar „Aörar leiöir hefðu vissulega veriö færar varöandi útlit þjóöarbókhlöö- unnar,” sagöi Magnús Pétursson hagsýslustjóri er hann var inntur álits á hinum dýru álklæðningu sem sett veröur á þjóðarbókhlööuna. „Það hefði veriö möguleiki að út- búa einhvers konar klæðningu úr fíberplötum eöa jafnvel steyptum einingum, skeyttum saman á hom- um. Málið var til meðferðar hjá Iön- tæknistofnun og Rannsóknarstofnun byggingariðnaöarins og sú síðar- nefnda komst aö því aö álklæöningin gæti oröiö mjög hentug lausn.” Magnús var spuröur hvort aörar leiöir heföu ekki orðið ódýrari. „Jú, þaö er ljóst aö aðrar leiöir, t.d. fíber- plötur, hefðu orðið mun ódýrari, a.m.k. efnislega séð. Þetta er hins vegar spurning um aö sameina styrk og útlit og hvaö þaö snertir eru ál- plöturnar heppilegastar. Þær ættu að' mynda mjög samfellda umgjörö um húsið og f alla vel aö gluggunum.” PÁ „Hún er ólíkindatól, ýsan." Þeir gætu hugsað sem svo þessir menn, þar sem þeir horfa yfir Reykjavikur- höfn og velta fyrir sór fiskveiðistefnu, aflabrögðum og gæftum og öðrum óútreiknanlegum náttúrufyrir- bærum. -óbg/DV-mynd EÓ. Atakafundur i ríkisstjom Búist var við átakafundi í rikis- stjóminni í dag. Á dagskrá yröu meðal annars álmálið og vísitölu- máliö. Tómas Árnason viðskiptaráöherra sagði í viðtali við DV í morgun aö framsóknarmenn legöu mikla áherslu á nýtt vísitölukerfi. Vísitölu- nefnd hefur klofnað eins og fram hefur komiö. Fulltrúar Gunnars- manna og Framsóknar vilja aö vísitölutímabilið veröi lengt nú þegar, þannig aö næst komi til verö- bótahækkunar 1. apríl. Fulltrúi Alþýöubandalags vill aö lengingin komi ekki strax til framkvæmda, svo að næsta verðbótahækkun yröi 1. mars eins og venjulega. Fulltrúi Alþýðubandalags vill ennfremur hafa fasta prósentu sem frádrátt í vísitölugrunni en hinir nefndar- mennirnir vilja halda þeim frádrætti sem er, plús „orkufrádráttur”. Þeir segja, aö meö því yrði frádráttur í vísitölu svipaöur og nú er, búvöru- frádrátturinn lækkaöi en í staðinn kæmi nýr orkufrádráttur. Með til- lögu fulltrúa Alþýðubandalags muni hins vegar frádráttur sá minnka sem í gildi er, áöur en kauphækkun er út- reiknuö. Þetta deilumál verður væntanlega rætt á fundi ríkis- stjómarinnarídag. Auk þess munu stjórnarliðar deila um álmálið á fundi sínum í dag. -HH „Eins og á hávertíð” — gottfiskirí á Faxaflóa „Þaö hefur veriö gott fiskirí síöast- liöinn hálfan mánuð og mikil ýsa veidd í netinnarlega á Faxaflóa,” sagðiGuð- mundur Símonarson á Hafnarvigtinni í samtali viö DV. „Þetta hefur veriö aðeins dræmara síðustu tvó daga en um tíma var þetta eins og á hávertíð.” 10 til 20 bátar hafa landaö afla, svo till eingöngu ýsu, í Reykjavíkurhöfn und- anfarinn hálfan mánuð. Hefur aflinn ýmist verið verkaöur í Reykjavík, seldur beint í fiskbúðir eöa fluttur til Eyrarbakka og annarra plássa. Tölu- vert hef ur verið um aö siglt sé meö afla \ og sent út í kæligámum. Bátar frá Reykjavík, Eyrarbakka og Þorláks- höfn hafa stundaö veiðar síðustu tvær vikur á þessum slóðum. ás Fjárráð fólks minni en áður Greinilegt er að fólk virðist hafa minni fjárráö fyrir jólin í ár en oftast áður. Fólk veltir æ meir fyrir sér verði' hlutanna og hagar innkaupum ööru- vísi. Þetta er algengt viökvæöi hjá kaup-| mönnum þessa dagana en DV for- vitnaðist um sölumál í nokkrum verslunum í gær. Hrafn Bachmann í KjötmiöstööinM sagöi aö kaupmáttur fólks væri allur annar en áöur. Nú neyddist fólk til aö horfa í aurana og ætti t.d. erfiðara meö aö standa í skilum viö mánaðamót.. Hrafn sagöi einnig aö neysluvenjur fólks væru aö breytast og verökannan- ir undanfariö vektu fólk til umhugsun- ar. Hvað matvörukaupmenn snerti færi samkeppni vaxandi. Hjá Fálkanum og Heimilistækjum fengust þær upplýsingar aö sala heföi verið með daufara móti aö undan- fömu. Fólk hefði minna fé milli handa, en áður. Það er mikið spáö í verö á heimilistækjum og mikiö skoöað, var samdóma álit starfsfólks þessara verslana. Þó var tekið fram að sala ætti eftir að aukast síðustu tvær vikumarfyrir jól. Hjá bóksölum kvaö hins vegar við annan tón og bjartsýnni. Haft var sam- band viö Bókhlööuna og Bókaverslun Snæbjarnar og voru verslunarstjórar beggja sammála um þaö að ekki virtist ætla aö véröa minni sala á bókum en áöur, enda heföi meöalverð þeirra ekki hækkað nema um 50% meðan aðrir vömflokkar hefðu hækkað mun meira. PÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.