Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1982, Blaðsíða 14
14 DV. FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER1982. IMauðungaruppboð veröur á bifreiöunum L-1784 á Volkswagen árg. 1971 eign Elliða G. Nordal.L-395 Oldsmobile árg. 1978 eign Hilmars Jónassonar, L-324 Seania arg. 1973 eign Jóns Sigurjónssonar, aö kriifu Péturs A. Jóns- sonar hdl. og bifreiðin L-1917 Blazer árg. 1972 eign Jóns Guönasonar aö kröfu Sigríöar Thorlacius hdl. fimmtudaginn 16. desember mestkom- audi og hefst kl. 14 viö lögreglustöðina Hvolsvelli. Sýslumaðurimi í Rangárvallasýslu. Reykvíkingar Almennur borgarafundur um heimili til skammtímavistunar fyrir þroskahefta veröur haldinn í Súlnasal Hótel Sögu í dag fimmtudaginn 9. desember og hefst kl. 20.30. Fundarstjóri veröur Albert Guðmundsson, forseti borgarstjórnar. Ávörp flytja: Heilbrigðismálaráðherra, Svavar Gestsson, og borgarstjórinn í Reykjavík, Davíö Oddsson. Frummælendur: Ulfar Þórðarson læknir Jóhanna Kristjónsdóttir skólastjóri Skúli Johnsen borgarlæknir Dóra Bjarnason félagsfræðingur Siguröur Þorgrímsson læknir Asta Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur Arinbjörn Kolbeinsson læknir Ragnheiður Jónsdóttir húsmóöir AUGLÝSENDUR! Vinsamlegast ATHUGIÐ Vegna ofurálags á auglýsingadeild og íprentsmiðju nú í desember viljum við biðja ykkur um að panta auglýsingar og skila handritum, myndum og filmum fyrr en nú L OKA SK/L fyrir stærri auglýsingar: VEGNA MÁNUDAGA fyrirkl. 17 fimmtudaga, VEGNA ÞRIÐJUDAGA fyrirki. 17 föstudaga, VEGNA MIÐVIKUDAGA fyrirkl. 17 mánudaga, VEGNA FIMMTUDAGA fyrir kl. 17. þrið/udaga, VEGNA FÖSTUDAGA fyrir kl. 17 miðvikudaga, VEGNA HELGARBLAÐS I yrirkl. 17 fimmtudaga, VEGNA HELGARBLAÐSII (sem er eina fjórlitablaðið) fyrir kl. 17 föstudaga, næstu viku á undan. Auka/itir eru dagbundnir. Með jólakveðju. Auglýsingadeild LSÍÐUMÚLA 33, REYKJAVÍK SÍMI91-27022. I n *•••••••• Menning Menning Menning „...að jörðin sé skítur hafið hland og himinninn keitufroða” Þaö er liðlega mánuöur síöan DV haföi samband viö mig og baö mig að fjalla um þessa bók. Af ýmsum ástæöum hefur þaö dregist á langinn aö koma þessari umsögn frá mér en þaö hefur oröið Guðmundi Sæmunds- syni tilefni til að skjóta inn pistli í blaöið þar sem þessi þögn er túlkuö sem partur í alheimssamsærinu mikla gegn Guömundi Sæmundssyni og sann- leikanum. Alltaf hafa veriö uppi menn sem hafa veriö öörum hagari aö búa til úlfálda úr mýflugum og sýnir þetta atvik, ekki síöur en bókin, aö í þessari iöju verður Guömundur aö teljast í fremstu röö. Ekki verður annaö sagt en aö vel sé vandað til útgáfu þessarar bókar. Hún er í stóru broti, meö stóru letri og gleitt á milli lína, textakaflar yfirleitt stutt- ir, rammar og myndefni ríkulega notaö. Uppsetning bókarinnar minnir um margt á námsbækur þær sem um þessar mundir eru gefnar út fyrir nemendur grunnskólans, enda er undirfyrirsögn bókarinnar „Kennslu- bók fyrir verkalýösformenn — með verkefnum — ”. Sennilega heföi þetta þótt lipur blaðamennska heföi þaö birst sem framhaldsgreinar í blaöi og lævís áróður fyrir skoöunum höfundar, en þjappað saman innan bókarspjalda minnir þetta efni helst á köku í ofni, sem lofar góöu í upphafi, en fellur síöan og sígur saman. Og fátt er jafn- hryggilegt í þessum heimi og leifar slíkrarköku. Verkalýðsaðallinn býr í húsum Strax í upphafi blasir þettá viö. I for- mála varar höfundurinn lesandann við aö túlka hana sem „grín eöa spé”, þótt háöskur tónn gæti gefið þaö til kynna. Aö mati höfundar er hún nefnilega „sannleikur, gagnrýni og alltof rétt lýsing á ríkjandi ástandi í verkalýðs- hreyfingunni”. En strax á næstu síðu birtast leiöréttingar á textum meö myndum af húsakosti ýmissa atvinnu- rekenda og verkalýðsforingja. Meiningin meö birtingu þessara mynda er auösæilega sú, aö gefa í skyn sameiginlegan lífsstíl þessara tveggja andstæöinga og gera meö því verkalýðsforingjana tortryggilega. En í „leiðréttingunni” kemurekkiaöeinsí ljós aö ruglaö hefur veriö saman nöfn- um um hver býr hvar heldur og að „ekkert skal hér fullyrt um hvort við- komandi menn eigi þessi hús eða hluta þeirra eöa hvort þeir eigi ekki' sumir þeirra miklu fleiri hús”! Við athugun á myndum af húsakosti verkalýösforingjanna kemur í ljós aö ýmsir þeirra búa í þokkalegum, nýleg- um raöhúsum sem ekki viröast skera sig verulega úr því sem fjöldi manna innan verkalýöshreyfingarinnar hefur getaö veitt sér. Og hús Ásmundar Stefánssonar, Einars Olafssonar og Haralds Steinþórssonar virðast 30— 40 ára gömul, íbúöir í þeim gætu veriö á bilinu milli 4 og 8 og engin vitneskja er gefin um, hvort þessir bílífismenn búa í kjallara eöa hanabjálka eöa hæöunum þar á milli eöa hvort þeir eru eigendur eða leigjendur. Hins vegar gefur leiöréttingin rækilega í skyn aö þeir eigi kannski miklu fleiri hús. Þarna er tónn bókarinnar settur. Öfund og hleypidómar Slegið er á alla strengi öfundar og hleypidóma í garö forystumanna verkalýðssamtakanna frá ysta hægri til ysta vinstri. I baksýn er dregin upp mynd af baráttumönnum fyrri tíma, sem ódeigir fórnuöu eigin hag og fjöl- skyldu sinnar fyrir trú á málefniö, inntu ómæld störf af höndum án umbunar, og uppskáru aö launum of- sóknir og fyrirlitningu forréttinda- stétta þjóöfélagsins. Nú "sé öldin önnur: Verkalýösleiötogar geti haft góö laun, búiö í húsnæöi, sem ekki er heilsuspillandi, notiö viröingar sam- borgaranna, haft völd og áhrif. Þetta móti svo viðhorf þeirra á þann veg aö þeir reki verkalýösfélögin á svipaðan hátt og kapítalistinn fyrirtæki sitt, þ.e. fyrst og fremst meö eigin hag fyrir augum, séu verkalýðsrekendur. Tekiö er undir gagnrýni frá vinstri um skort á lýöræöi í hreyfingunni, um bolabrögð forystunnar gagnvart hvers konar gagnrýni, skort á upplýsingastreymi innan hreyfingarinnar sem leiöi til þátttökuleysis og óvirkni hinna al- mennu félaga o.s.frv. Laun foringjanna Gagnrýni af þessu tagi er ekki ný. Stundum og sums staðar á hún rétt á sér„ eins og gengur. Annars staöar er hún notuð af þeim sem sjálfir vilja ryöja sér braut til valda og áhrifa, án tillits til þess hvort hún komi heim viö staöreyndir. Hafa ber í huga að þjóðfélagiö hefur tekiö stakkaskiptum og verkalýðshreyfingin meö. Fjárhag- ur hennar hefur eflst. Hún getur því borgað starfsmönnum sínum kaup. I staö árviss atvinnuleysis ríkir nú sam- keppni um vinnuafl meö tilheyrandi boöum um nætur- og helgidagavinnu. Bókmenntir Ólafur Hannibalsson Vilji samtökin því fá hæfa menn til starfa veröa þau því að geta boðiö mönnum svipað kaup og ef þeir væru í sínu starfi úti á vinnumarkaönum. Samt er hin alþjóðlega verkalýös- hreyfing þekkt sem lélegur vinnuveit- andi: Oft er ætlast til aö starfsfólk inni af höndum ómælda yfir-, nætur- og helgidagavinnu án annarrar umbunar en fastakaups og þannig oft þverbrotn- ar þær reglur sem aörir vinnuveit- endur hafa oröiö að gangast undir, ein- mitt meö skírskotun til hugsjóna starfsfólksins. Hætt er viö aö Guð- mundi Sæmundssyni og fleirum blöskraöi ef samviskusamlega væri krafist greiöslu á öllum þeim stundum sem sannanlega eru fram lagðar við gerö samninga, undirbúning þinga og ráöstefna o.s.frv., eins og hjá hverjum öörum vinnuveitanda, auk þess sem Vinnueftirlitiö heföi sennilega sitthvaö aö athuga viö brot á ákvæðum um há- marksvinnutíma og lágmarkshvíld. En Guömundur velur þær „staö- reyndir” einar, sem honum henta viö samningu þessarar bókar og leiöa til þeirrar niöurstööu sem er fyrirfram ákveöin. Hann hefur hlotiö menntun í fræöimannlegum vinnubrögöum. Þá menntun notar hann býsna ísmeygi- lega til að gera heillegt kerfi úr eigin hleypidómum, bábiljum, þekkingu og hindurvitnum. Ófara hefnt Bókin er þannig byggö upp að í fyrstu sjö köflunum er dregin upp mynd af vegferö framagjams ungs manns til æöstu starfa í verkalýðs- hreyfingunni og komiö víöa viö. Undir hvaöa aöila veröi dyggilega aö þjóna á leiðinni og hverja veröi aö berja niður. Slegiö er föstu að stjómmálaflokkarnir ráöi öllu og því ráölegast aö þjóna dyggilega undir einhvern þeirra á öllum sviöum. Jafnframt er í þessum köflum rækilega undirbúiö þaö sem öömm þræöi er annar aöaltilgangur bókarinnar: Aö sverta Jón Helgason formann Einingar á Akureyri, en fyrir honum tapaði Guömundur í stjórnar- kosningu í Einingu á sl. ári. Mynd aí Jóni á bls. 12 milli þeirra Bjöms Þór- hallssonar og Ásmundar Stefánssonar, (gefur í skyn „samtryggingu stjórn- málaflokkanna”) kynning á Jóni með mynd á bls. 13 og er þaö mjög ónákvæm lýsing á upphafi ferils Jóns í verkalýöshreyfingunni. Á bls. 44 eru myndir frá samningafundi þar sem Jón óskar Baröa Friðrikssyni til ham- ingju meö nýafstaöiö afmæli hans. Texti undir myndunum segir hins vegar: „Einn af fulltrúum verkalýös- ins á samningafundi sýnir einum af fulltrúum atvinnurekenda auömýkt sína og lotningu”. Einn gegn öllum Á þennan hátt eru eölileg mannleg samskipti manna á öndveröum meiöi um ákveðinn þátt þjóömála gerö aö undirstööu kenningar um eitt alls- herjarsamsæri gegn alþýðu manna þar sem samsærismenn taka að vísu á sig ýmis gervi en er öllum stjórnaö utan og ofan aö, af einu skuggalegu afli. I kafla 8 er svo barátta alþýö- unnar gegn mykraöflunum útfærö í raunveruleikann meö dæmi um kosningabaráttu í vlf. Einingu viö Eyjafjörö. Reynt er aö varpa yfirskini hlutleysis á f rásögnina meö því að nota nöfnin „Jón formaður” og „ungi maðurinn” um Jón Helgason og Guðmund Sæmundsson og í mynd- birtingum af þeim aö setja svarta leppa yfir augun til aö gefa til kynna aö ekki sé endilega um viðkomandi per- sónur að ræða heldur dæmigeröa full- trúa afla ljóss og myrkurs sem tekist geti á í hvaöa verkálýösfélagi sem er. Dæmi um illt innræti Jóns er, aö hann býöur unga manninum sæti á lista meö sér og þar með setu í stjóm, sem hann þiggur. En „ungi maðurinn” veit, að Bjamfríður Leós- dóttir varaform. Vlf. Akraness Jón Ó. Kjartans- son form. W. Vestmannaevia NOKKRIR ÓRÓLEGIR ALLABALLAR Kolbeinn Frið- bjamarson form. Vlf. Vöku Siglu- firði. Dagbjört Sigurð- ardóttir form. VI.- og sjóm.fél. Bjarma Eyrar- bakka „Órólega deildin" i Alþýðubandalaginu er lika með i alheimssamsærinu, "alveg til i að makka og gera baksamninga." Ibls. 87!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.